Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Page 102
Fyrirlestrar og kynningar
Háskóladeildin í Vestmannaeyjum stóð fyrir fjölmörgum fyrirlestrum og nám-
skeiðum á síðasta ári, en þar ber hæst:
• „Kvótakerfið (hvernig getur myndast sátt um kvótakerfið?)": Fyrirlesari var
Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Hann fjallaði um titurð kvótakerfisins og
þróunina fram að þeim lögum um stjórn fiskveiða sem sett voru 1990. Einnig
fjallaði hann um þá reynslu sem síðan fékkst af kvótakerfinu og loks um þá
annmarka sem sumir sjá á kerfinu. Fyrirlesturinn var mjög vel sóttur og voru
fjörlegar umræður að honum toknum.
• „Saga lækningarannsókna á Islandi": Fyrirlesari var Ólafur Grímur Björnsson
rannsóknalæknir. Fyrirtesturinn fjallaði um sögu lækningarannsókna á íslandi
og var hann tengdur samnefndri sýningu á vegum samstarfsnefndarinnar sem
haldin var í Byggða- og bókasafni Vestmannaeyja og opnuð á sjómannadaginn.
• „Mið-Austurlönd í fortíð. nútíð og framtíð": Námskeiðið var hatdið í samstarfi
við Endurmenntunarstofnun og Yale-háskóla. Kennarar voru sérfræðingar í
málefnum Mið-Austurlanda og komu alla leið frá Yale-háskóta til íslands.
Mætingin á námskeiðið í Eyjum var títið minni en í Reykjavík og þótti það
takast afspyrnu vel.
„Athafnaverið" er verkefni í umsjón háskótadeildarinnar í Eyjum og með tilkomu
þess hafa opnast nýir möguleikar til námskeiðahalds. Athafnaverið er búið full-
komnum tölvu- og fjarfundabúnaði sem hentar vel fyrir minni námskeið sem eru
oft haldin á vegum fyrirtækja og stofnana í Reykjavík. Gerður var samningur við
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands þess efnis að öll námskeið sem boðið
er upp á í fjarkennslu yrðu send til Vestmannaeyja. Alls voru níu námskeið í boði
og nýttu Vestmannaeyingar sér fimm þeirra. Eftirfarandi námskeið voru kennd í
Eyjum:
• Gigtarsjúkdómar (Björn Guðbjörnsson, lyflækningadeild FSA)
• Skipulagsgerð sveitarfétaga (Ásdís Htökk Theodórsdóttir, Skipulagsstofnun. og
Matthildur Etmarsdóttir. Skipulagsstofnun)
• Lífsleikni í leikskólum (Atdís Yngvadóttir. Námsgagnastofnun. og Bryndís
Garðarsdóttir, Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar)
• Mat á verðmæti fyrirtækja og rekstrareininga (Davíð Björnsson. fyrirtækja- og
stofnanasviði Landsbankans og Gunnar Engilbertsson, Viðskiptastofu
Landsbankans)
• ATM-gagnanet fyrir kröfur framtíðar (Davíð Gunnarsson, Landssímanum.
Sæmundur E. Þorsteinsson. Landssímanum. og Örn Orrason. Ftugleiðum)
Heimsóknir til Rannsóknasetursins eru fjölmargar frá fyrirtækjum. opinberum
stofnunum. ráðuneytum og sveitarstjórnum sem hafa óskað eftir að fá að kynnast
starfseminni. Einnig hefur forstöðumaður kynnt setrið í fjölmörgum fyrirlestrum í
háskólum og hjá fjölmörgum félagasamtökum, en þar má nefna Kiwanis. Ak-
óges. Round Table. Lions og Rotary. Þá hefur Þorsteinn I. Sigfússon stjórnarfor-
maður kynnt starfið á vettvangi Háskólans. fyrir atþingismönnum og fyrir stjórn-
arnefndum í rannsóknaáætlunum í Brussel.
Kennsla á háskólastigi
Veturinn 1998-1999 bauð Háskóli íslands upp á fjarkennslu í ferðamátafræðum í
titraunaskyni. Háskóladeitdin í Vestmannaeyjum hóf þegar viðræður við aðstand-
endur fjarkennslunnar og varð það til þess að fimm Vestmannaeyingar hófu nám
í ferðamálafræðum í gegnum fjarkennslubúnað Athafnaversins. Haustið 1999 var
boðið upp á tvö fög í fjarkennstu í ferðamátafræðum og var það þriðja önnin sem
kennd var í gegnum Athafnaverið í Eyjum.
Verkefni
Helstu verkefni sem unnið var að árinu voru:
• „Áhrif umhverfis á form og þroska Yoldiella nana (Bivalvia. Protobranchia) á
mismunandi dýpi." Markmið verkefnisins er að kanna áhrif setgerðar. hitastigs
og þrýstings á útlitsform samlokana af ættkvíslinni Yoldiella í hlýsjónum
sunnan við Island. Verkefnið er styrkt af Lýðveldissjóði. Verkefnisstjóri: Páll
Marvin Jónsson.
• Vistvænar humarveiðar. I ársbyrjun 1998 hófust tilraunaveiðar með humar-
gildrurvið Vestmannaeyjar. Markmið þeirra erað kanna hagkvæmni gildr-
uveiða miðað við togveiðar. ásamt því að rannsaka líffræðilega þætti og út-
breiðslu. Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins. Haraldi Böðv-
arssyni hf.. Netagerðinni Ingólfi. Hafrannsóknastofnun og Hampiðjunni.
Verkefnisstjóri: Páll Marvin Jónsson.
• Atferli lunda við fæðuleit. skráning dýpis og hitastigs með DST-rafeinda-
merkjum. Markmið verkefnisins er að rannsaka atferli lunda með hjálp raf-
98