Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Side 158

Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Side 158
Við skulum varast öll skyndisvör við þessum spurningum. Slík svör fela vísast í sér sleggjudóma sem ógna mannlegri skynsemi og rökræðum. En það telst von- andi ekki vera óréttmæt krafa til fjölmiðla að þar séu stundaðar vandaðar um- ræður um hagsmunamál þjóðarinnar. Ábyrgð fjölmiðla hlýtur að felast í þeirri skyldu að upplýsa landsmenn sem best um málefni sem snerta almannaheill. Ef á þessu eru alvarlegir misbrestir, þá vaknar sú spurning hvort unnið sé í anda þess lýðræðis sem á að gegnsýra þjóðfélagið. Ef þið viljið stjórna lífi ykkar, kandídatar góðir. þá komist þið ekki hjá því að takast á við spurningar um þjóðfélag okkar. af þeim toga sem hér er vikið að. Hlutverk og dómgreind Þá kem ég að síðari spurningunni um ábyrgðina. Gagnvart hverjum eruð þið ábyrg? Áður en ég svara þeirri spurningu vil ég benda á að forsenda þess að manneskja sé ábyrg gagnvart öðrum er sú að hún beri ábyrgð á sjálfri sér. Sá sem ber ábyrgð á sjálfum sér er um leið ábyrgur gagnvart sjálfum sér og öðrum. Hverjir eru þessir aðrir? Þið eruð ábyrg gagnvart þeim sem geta með réttu. ef til- efni gefast, sakað ykkur um að hafa brugðist sér. Hverjir eru í þeirri stöðu? Bersýnilega ykkar nánustu aðstandendur og vinir. starfsfélagar og fólk sem þið vinnið fyrir - og raunar allir sem þið hafið skyldur við eða eruð skuldbundin með einum eða öðrum hætti. Hér blasir við ábyrgð ykkar gagnvart mannfélaginu í heild sinni sem gerir réttmætar kröfur um að þið vinnið störf ykkar af heilindum og vandvirkni. Ábyrgð ykkar getur líka náð til genginna forfeðra og þá ekki síður komandi kynslóða sem munu dæma þá sem nú lifa af ákvörðunum sem skipt hafa sköpum fyrir líf þeirra og lífsskityrði. Hvers vegna berið þið ábyrgð gagnvart þeim aðilum sem hér hafa verið taldir? Við því er ekkert einfalt svar. heldur ræðst svarið hverju sinni af þeim hlutverkum sem þið gegnið í lífi viðkomandi og hvaða þýðingu þau hafa. Ábyrgð foreldra gagnvart ungu barni sínu á sér svo augljósar ástæður að það þarf naumast að nefna þær; barnið á atlt sitt undir forsjá foreldranna. Ábyrgð borgara gagnvart ríkinu er álíka augljós; ef hún væri ekki til staðar myndi ríkið umsvifalaust hrynja. Ábyrgð kennara gagnvart nemenda er einnig deginum tjósari: ef hún er ekki fyrir hendi verður kennslan marklaus og námi nemandans ógnað. Hvað skiptir mestu til þess að þið getið borið þá ábyrgð sem fytgir hlutverkunum sem þið takið að ykkur? í fæstum orðum. dómgreind ykkar og skilningur á því sem gera skal. Hvort tveggja hefur vonandi eflst í námi ykkar við Háskóla íslands. Nú hef ég varpað til ykkar. ágætu kandídatar. þeirri spurningu hvernig þið hyggist axla ykkar ábyrgð. Þið getið vissulega spurt á móti hvernig Háskólinn og kennar- ar hans hafi axtað sína ábyrgð gagnvart ykkur. Þið skuluð ekki hika við að segja okkur til syndanna og benda á það sem betur má fara í starfi Háskólans. Háskól- inn og deildir hans þurfa - ekki síður en aðrar stofnanir og fyrirtæki - á réttsýnni og rétttátri gagnrýni að halda. Um leið og Háskólinn þakkar ykkur fyrir samfylgdina tit þessa og óskar ykkur til hamingju með prófgráðuna. þá vonast hann til þess að þið fylgist áfram með starfi hans og takið þátt í því af áhuga. Fólk á ævinlega að táta eftir sér að tæra það sem það langar til! Forvitni, þroski, auðmýkt Ræða 19. júní 1999 Hvað gefur lífinu gildi? Ég óska ykkur. ágætu kandídatar. fjölskyldum ykkar og aðstandendum hjartan- lega til hamingju með daginn. Nú standið þið á tímamótum og því er vet til faltið að horfa í senn yfir farinn veg og skyggnast fyrir um hið ókomna. Ég hvet ykkur til að nýta þessa hátíðarstund tit að hugteiða og ræða hvað gefur tífinu gildi. Hér er af mörgu að taka: Auður, völd og frægð eru oft nefnd sem eftirsótt veraldargæði. Vísindi. listir og leikir eru huglæg gæði sem fólk sækist eftir. Réttlæti. vinátta og frelsi eru meðat þeirra siðferðisgilda sem mest eru lofuð. í dagsins önn getur einn einasti kaffibotli eða hlýlegt bros bláókunnugrar manneskju gefið lífinu gildi. Þessi ólíku dæmi sýna okkur að það er ekki til neinn einfaldur. sameiginlegur mætikvarði á þau gæði sem gefa lífinu gildi. 154
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.