Búnaðarrit - 01.06.1917, Blaðsíða 23
BÚNAÐARRIT
181
pest) — afarhættulegur sjúkdómur fyrir nautgripi og
margar aðrar jórturdýrategundir, þar á meðal sauÖfé —
sem hvað eftir annað herjaði Evrópu og fleiri álfur á 18.
og 19. öldinni, er nú útrýmt úr allri Norður-, Yestur-
og miklum hluta Mið-Evrópu. Illkynjuð lungnaveiki í
nautgripum (Ondartet Lungesyge hos Oksen) — mjög
illkynjaður og hættulegur sjúkdómur — er einnig út-
rýmt úr Norður-Evrópu. Hundaæðinu (Hundegalskab) er
útiýmt úr Norður- og Vestur-Evrópu, en finst þó í Græn-
landi, og svona mætti halda áfram að telja.
í flestum, ef ekki öllum, siðuðum löndum eru þess
vegna sett lög og reglur um innflutning búfénaðar, og
sé innflutningurinn leyfður, sem víðast mun vera til-
fellið, gildir það leyfl einungis nokkur lönd. Sýkingar-
hættan við innflutninginn þykir of mikil, ef hann er leyfð-
ur frá mörgum löndum. í Danmörku skifta lögin um
innflutning búfénaðar löndunum niður í 3 flokka. I fyrsta
flokki eru einungis Svíþjóð og Noregur. Þaðan er leyfður
innflutningur búfjár með heilbrigðiseftirliti, og er í sér-
stakri reglugerð ákveðið, hvernig honum skuli varið.
í öðrum flokki eru Bretland og Finnland. Þaðan er bann-
aður allur innflutningur búfjár, að hestum undanskildum,
og auk þess er bannaður allur innflutningur á mjólk,
heyi, hálmi og húsdýraáburði. í þriðja flokki eru öll önnur
lönd. Gilda þar sömu ákvæði og fyrir annan flokk að
því viðbættu, að þaðan má heldur ekki flytja inn nýtt
eða linsaltað kjöt, húðir eða skinn eða úrgang frá slátur-
húsum. Af sérstökum hagfræðislegum ástæðum er leyfð-
ur innflutningur hesta frá öllum löndum gegn ströngu
heiibrigðiseftirliti. Undanþágur frá ákvæðum laga þessara
getur stjórnin veitt samkvæmt tillögum dýralæknaráðs-
ins, og eru undanþágur þessar alioft veittar.
Eg tel mjög sennilegt, að þótt innflutningur búfjár yrði
leyfður hér á landi, að það leyfi mundi einungis ná til
fárra landa og þá til þeirra, sem að því er sýkingar-
hættu snertir væru talin hættuminst. Yrðu það þá senni-