Búnaðarrit - 01.06.1917, Blaðsíða 4
162
BÚNAÐARRIT
1. A5 kjöt hefir hækkað í verði síðan sláturhúsunum
fjölgaði og verkun þess varð betri, en þó einkum þaðr
að sæmilegur markaður hefir fengist erlendis fyrir vel
verkað dilkakjöt.
2. Að fráfærur hafa þar af leiðandi lagst niður, en
við það hefir málnytan minkað, og mönnum ekki þótt
taka því, að senda kúarjómann einan til smjörbúanna.
3. Að samfara sívaxandi fólkseklu hefir það reynst
mjög erfitt, að fá unglinga til að smala eða gæta ánna
að sumrinu og stúlkur til að mjalta.
4. Að smjör hefir hækkað í verði innanlands síðari
árin, sem mest er smjörbúunum að þakka, en það hefir
haft þau áhrif, að margir hafa horfið frá smjörbúa-
félagsskapnum, er þeir vissu sig geta íengið svipað verð
fyrir smjörið annarsstaðar.
5. Að nú eru yfir höfuð allar afurðir í hærra verði,
og meiri peningavelta í landinu en var áður, eða um
það leytið, sem fyrstu búin voru stofnuð.
Þetta allt, hvað með öðru, hefir hjáipast að til þess
að rýra smjörbúastarfsemina og stuðlað að því, að sum
búin hafa hætt eða verið lögð niður. Práfærnaleysið veldur
þó, ef til vill, mest.u um afturförina í þessu efni. Nú
eru fráfærur nálega alstaðar lagðar niður nema um
Suðurlandsundirlendið og á Vestfjörðum. Pólkseklan hefir
og gert sitt til. — Það hefir mörgum veizt mjög erfitt,
að fá smala til þess að gæta ánna, jafnvel hvað sem í
boði hefir verið. Og kvenfólkið hefir sett það upp, þegar
það hefir ráðið sig í kaupavinnu hjá bændum, að þurfa
ekki að mjólka, að minsta kosti ekki ær. Sumir bændur
hafa einnig álitið það blátt áfram ekki borga sig, að
taka stúlkur frá heyskapnum til þess að nytka ærnar,
og má vel vera að svo sé sumstaðar á landinu. En það
er hæpið, að sú skoðun hafi alment við rök að styðjast,
með því verði, sem nú er á smjöri, bæði utanlands og
innan. En hér skal eigi rætt frekar um það að
sinni.