Búnaðarrit - 01.06.1917, Blaðsíða 77
BÚNAÐARRIT
235
vegna vorkuldanna. Byggingar sömuleiðis með lang-
minsta móti. Byggingareíni nær því ófáanlegt, og afar-
dýrt, ef það fékst.
Talið er að hagur landsmanna stæði yfirleitt með betra
móti árið 1916.
Einar Hélgason.
Jarðyrkjunámsskeiðið
í Einarsnesi 1916.
A námsskeiði því í jarðyrkju, er haldið var í Einars-
nesi í vor, voru 6 nemendur. Yoru þeir þessir:
Jón Sigurgeirsson á Stafni, S.-Þingeyjarsýslu,
Pétur H. Lárusson í Reykjavík,
Steinar St. Stefánsson á Blómsturvöllum, Eyjafj.s.,
Steingrímur Ingvarsson á Sólheimum, Húnav.s.,
Sveinn Jónsson í Fjalli, Árnessýslu,
Tryggvi Sigtryggsson á Hallbiarnarstöðum, S.-Þing.
Námsskeiðið hófst 17. maí og stóð yfir til júníloka.
Unnið var að ýmiskonar jarðyrkju.
Með þaksléttuaðferð voru sléttaðir 3300 □ metrar.
Var rist ofan af með undirristuspaða og síðan plægt og
herfað með spaðaherfi og fært til og jafnað með litlum
tréslóða. Er það ódýrt og hentugt áhald við þaksléttu í
minni stíl.
Lokræsi var grafið, 272 metrar að lengd. Var efri
helmingurinn fullgerður sem malarræsi, en neðri helm-