Búnaðarrit - 01.06.1926, Blaðsíða 31
BÚNAÐARRIT
173
Auk þess er óþægilegt a8 skilja skemd og dauð hrogn
frá, af því aö stokkarnir liggja niðri á gólfl.
Jeg mun hjer á eftir leitast við að skýra frá, hvernig
hentast muni vera að reisa klakhús á íslandi. Mun jeg
bæði taka tillit til erlendrar reynslu og íslenskra stað-
hátta.
Húsið.
Heppilegast og ódýrast mun vera að hafa veggina Ur
steinsteypu, en þakið járnklætt. Best er að grafa vegg-
ina alveg í jörðu, þar sem því verður við komið, en
hlaða annars þykkan torfvegg utan á steypuvegginn.
Járnþakið skal einnig klæða torfi, svo að hiti og kuldi
leiðist síður í gegn um það. Rjett er að hafa dyr og
glugga tvöfalda, því að frost má eigi ná inn í húsið.
Veggirnir eiga að vera kalkmálaðir og gólflð helst
steypt eða steinlagt, og þurt.
Húsið á að vera sem allra bjartast, svo að vel sje
verkljóst. Sje húsið graflð í jörð, verður að hafa glugga
á þakinu, og þá ekki of smáa. Rökkur má alls ekki
vera í klakhúsum. Þægilegast er að klakstokkarnir sjeu
í borðhæð frá gólfi, og þarf húsið ekki að vera hærra
undir loft fyrir því. Ekkeit verður sagt fyrir um stærð
húsanna. Hún er fyrst og fremst komin undir vatns-
megninu. Best er að ’byrja smátt, en auka við eða reisa
stærri hús, eftir að góð reynsia er fengin.
Aðrensli.
Best er að leiða vatnið frá læknum (eða lind, ef hún
er notuð) að húsinu eftir opinni rennu, svo að það geti
náð súrefni úr loftinu á leiðinni; Þó má þekja yfir á
köflum, svo að síður frjósi og snjór falli ekki í vatnið.
Ef nauðsyn krefur, má leiða vatnið eftir trje- eða stein-
stokk. Sje hætta á að vatnið fijósi í opinni rennu, verður
að leiða það eftir rörum; en þá þarf að vefja þau vand-
lega með einhverju hlýju eín', eða grafa þau niður.