Búnaðarrit - 01.06.1926, Blaðsíða 162
300
BÚNAÐARRIT
ir (breiðsáð, raðsáð), sáðmagns-tilraunir, þurkunar-
tilraunir, með þreskjun, hreinsun, geymslu fræsins o. fl.
3. Algeng frærækt af bestu og nothæfustu grasfræ-
stofnum innan hverrar tegundar.
Til þess að hægt verði að vinna að grasfræræktinni,
og mögulegt sje að koma henni á fót, þarf að koma
tilraunum þeim, sem að ofan getur, á þann stað og við
þau skilyrði, sem tilraununum hæfa. Eina úrlausnin
verður því sú, að sett verði á stofn sjerstök grasfræ-
ræktarstöð, sem tekur öll atriði viðvíkjandi þessu þjóð-
þrifamáli til tilrauna og ítarlegra rannsókna. Yirðist það
ekki vera ofætlun, þó að annar aðal-atvinnuvegur þjóðar-
innar kæmi slíkri tilraunastöð á stofn og kostaði rekstur
hennar, þar sem slík starfsemi beindist inn á það svið,
að bæta ræktunarhagsæld og vaxandi ræktunaröryggi í
landinu.
Á síðasta Búnaðarþingi kom jeg með tillögur og til-
boð um það, að taka þessar tilraunir að mjer, ef Bún-
aðarfjelag íslands styrkti mig til þess á þenna hátt:
1. Með því að ganga í ábyrgð fyrir jarðarverði og
áhöfn á hana.
2. Að fjelagið útvegaði mjer 2000 kr. lán til verkfæra-
kaupa, og
3. Veitti mjer 3000 kr. árlegan styrk til tilraunanna,
sem í greinargerð málsins var ítarlega skýrt frá.
Eigi var horfið að því ráði, að tilboði mínu væri
tekið, en þess í stað gerð ný ályktun um, að undirbúa
grasfræræktarmálið til Búnaðarþingsins 1927, og þá ætti
stjórn fjelagsins að vera búin að undirbúa svo vel málið,
að sjerstök grasfræræktarstöð gæti þá tekið til starfa. Ekki
var þó ákveðin nein sjerstök fjárupphæð til framkvæmd-
anna, enda situr við sama keip enn, enginn staður eða
jarðarpartur útvegaður enn — þegar þetta er skrifað —
til fyrirhugaðrar grasfræræktarstöðvar.