Búnaðarrit - 01.06.1926, Blaðsíða 177
BÚNAÐARRIT
315
33 fyrirlestra, og að heiman heflr hann verið á árinu
165 daga. — Reynd var heyskúffa Andrjesar G. ísfelds,
og honum veitt 500 kr. þóknun, enda fái fjelagið eina
skúffu sem sýnishorn. — Einnig voru reyndir 3 þúfna-
skerar (sbr. „Frey“ 22. ár, bls. 77—82 og „Búnaðarrit"
XL. ár, bls. 132—136).
Mælingar til undirbúnings ávoitnm, framræsln,
sandgræðslu 0. fl. Þessar mælingar hefir jarðabóta-
ráðunauturinn (P. E.) framkvæmt og gefið leiðbeiningar
í sambandi við þær, litið eftir eldri framkvæmdum á
þessu sviði og haft eftirlit með viðhaldi verkanna.
Svæði þau, sem mæld hafa verið og kortlögð, 57,7 km3
að flatarmáli, eru þessi:
Tilheyrandi Skeiða-áveitunni.............42,4 km2
-----sandgræðslu ríkisins.............12,7 —
----öðrum svæðum (mest framr.) 2,6 —
Auk þeirrar aðstoðar, sem áður er getið (Þ. G.), vann
Jóhannes Porsteinsson með Pálma að kortagerð í 3 vikur.
Alls hefir ráðunauturinn verið að heiman í 155 daga
í mælingaferðum. — í forföllum Sig. ráðunauts Sigurðs-
sonar kendi hann skýrsluhald á námsskeiði eftirlitsmanna.
Fóðurræktar-tilraunir. Þær tilraunir hafa verið
reknar að mestu leyti með sama sniði sem áður. Hið
helsta úr skýrslum ráðunautar, sem ástæða þykir til
að benda á hjer, er það, að reyndar voru 4 tegundir af
köfnunarefnisáburði, sem ekki hafa verið reyndar áður
hjer á landi, svo kunnugt sje. Þessar tegundir voru :
Ammo-Phos I — Ammo-Phos II,
hvorttveggja amerískur köfnunarefnis- og fosfórsýru-
áburður, reyndur fyrir tilmæli Mjólkurfjelags Reykjavikur.
Leuna-saltpjetur, þýskur köfnunarefnis-
áburður, er Nathan & Olsen höfðu flutt inn, og