Hlín - 01.01.1918, Qupperneq 15
Hlin
ir>
síður en sýslufundir karla, þó það yrði nokkuð á annan
veg, einungis að fundunura þyrfti ekki að flaustra af, svo
starfa mætti í ró og næði að þeim málum, sem fyrir
þeim lægju. Þessir fundir ættu að taka rækilega þátt
í undirbúningi aðalfundar norðlenska Sambandsins, ræða
dagskrá hans, er stjórnin semur, og gera við hana breyt-
ingar- eða viðaukatillögur, ef þurfa þykir, taka til um-
ræðu Ársrit Sambandsins, lög þess o. fl.
Verða hjeraðskonur með svofeldu móti mikið kunnugri
Sambandinu en ella mundi, því fásóttir hljóta jafrtan
Sanrbandsfundir að verða úr þeim hjeruðum, sem fjarst
eru fundarstöðum, en bjer ættu lyjerðskonur að geta fjöl-
ment árlega.
1 Suður-Þingeyjarsýslu liefur sýslusambandsfjelag starf-
að í 13 ár (sbr. skýrslu frá fjelaginu á öðrunr stað í ritinu).
Næsta sýsla með fjelagsstofnun varð Húnavatnssýsla.
Þar stofnuðu 6 fjelög samband með sjer á þessu sumri.
I Eyjafjarðarsýslu er fjelagsstofnun aðeins ókomin á.
Áttu formenn nokkurra fjelaga fund með sjer um laga-
smíð og fleira, er að fjelagsstofnun lýtur, rjett eftir Sam-
bandsfundinn á Akureyri í surnar.
Birtist hjer frumvarp það til laga, er þar var samið.
Frumvarp til sýslusambandslaga.
1. gr.
Fjelagið heitir Sýslusambandsfjelag eyfirskra kvenna.
2. gr.
Stefnuskrá fjelagsins er: Samvinna.
3. gr.
Fjelagið myndast af deildum. er lúta sjerstökum lögum,