Hlín - 01.01.1918, Blaðsíða 45
Hlín
45
Að ráði stjórnarinnar og samkvæmt nmmælnm á Sam-
bandsfundum* var verð ritsins haft svo !ágt sem framast
mátti verða (1 kr. 80 bls.), svo það gæti náð til sem flestra,
enda er það mikið útbreitt á Norðurlandi. Talsvert hefur
og verið selt af ritinu utan Sambandssvæðisins.
Þegar þetta nýja Arsrit nú hefur göngu sína, viljum
vjer þakka öllum kærlega hjálpina með hið fyrra ritið:
Þeim, sem styrktu það með ritgerðum, með vinsamlegum
ummælum, með því að greiða götu þess á leiðinni um
lanclið. Vonum vjer að hugsjónir þær, er Sambandið
herst fyrir, megi stöðugt eignast fleiri stuðningsmenn,
karla sem konur; þá er þeim horgið.
Halldóra Bjarnadóttir.
Hugsjónir.
Fyrjrlestur fluttur á Akureyri veturinn 1917
af
Aðalbjörgu Sigurðardóttur.
Jeg heyrði nýlega þann dóm kveðinn upp ylir íslensku
þjóðinni, að hún væri gáfuð og góðhjörtuð, en ætti und-
arlega ilt með að skilja og virða lmgsjónir. Jeg býst við
að við verðum að játa það, að það er æði mikið til í
þessu. Við eigum svo ilt með að trúa á hugsjónir lijá
öðrum mönnum; að Jáegar við heyrum talað um ein-
livern, sem berst af kappi og leggur alt í sölurnar, til
Joess að ná einhverju háleitu takmarki, sem hann hefur
sett sjer, Jrá er okkur gjarnast að ætla, að einhver eigin-
gjarn tilgangur húi á bak við, og vanalega er Jrá ein-
hver svo skarpskygn að finna, hvað það muni vera. Sje
* Konur buðust til að selja ritið sölulaunalaust.