Hlín - 01.01.1918, Blaðsíða 22
22
Hlin
sjóð, sem svo ávaxtaðist þangað til mögulegt yrði að
koma þessum stofnunum á fót. Auðvitað dylst það eng-
um, að mikið Ije þarf til þess að þær geti orðið fullnægj-
andi, en liitt er líka víst að sigursæll er góður vilji.
Það virðist vera vel til fallið að minnast látinna vina
á þann hátt að leggja minningargjafir í þennan fyrirhug-
aða sjóð í staðinn fyrir kransagjafir, sem ekki er annað
en hverfull hjegómi.
Það er áreiðanlega kominn tími til þess fyrir Norð-
lendinga að rísa upp af svefni og reyna að vinna bót á
þessu hryllilega þjóðarböli. Það er kominn tími til að
taka saman höndum og vinna að því með sameinuðum
kröftum að koma í veg fyrir að þessi voðaveiki svifti fjölda
manns á besta aldri lífi og Iieilsu.
A nna Magnúsdóttir.
Norskar konur og berklaveikin.
Kvenfjelögin, er heyja stríð við tæringuna í Noregi,
skifta hundruðum, og fjelaga má þar telja í tugum þús-
unda, svo nærri má geta að mikið vinst á, er fjelög þessi
leggjast á eitt, enda var ekki vanþörf á að hefjast handa
með samtaka starli fjöldans, því tæringin var á liáti stigi
í Noregi og er að vísu enn, þó mikið sje hún í rjenun,
sem þakka nrá öflugri baráttu þjóðarinnar við þessa
landplágu.
Langar mig til að skýra íslenskum konum nokkuð frá
starfsemi frændsystra okkar, samkvæmt skýrslu, er Sam-
bandsfjelagsbákn þetta gefur út. Er htin 500 bls., og má
þar margs vís verða um þetta stórmerka starf. Má það
vera lýðum ljóst, hvílíkt feiknaverk það er að safna öll-
um þessurn dreifðu kröltum í eitt allsherjar skipulegt
starf, enda eru forkólfar þessa lyrirtækis snillingar í fje-
lagslegri stjórnsenri ('administration).