Hlín - 01.01.1918, Síða 71

Hlín - 01.01.1918, Síða 71
Hlin 71 að jeg held þessu fram. Fyrst sú, að kembing og spuni er dýrast, útheimtir mestan vinnukraft, og í öðru lagi er það ekki eins skemtileg og fjölbreytt vinna og t. d. vefn- agur, og getur aldrei komið heimilunum að eins miklu gagni. Að minsta kosti ætti að vjelspinna alt prjónaband. Ef rnenn lrefðu ráð á að handspinna, ætti það helst að vera í fína dúka eða prjón, er selja má háu verði, svo sem svuntudúka, kjólatau, hreðasjöl o. fl. Það er hrapar- leg fásinna, að láta handspinna í plögg og nærfatnað, eins dýrt og það er. Skilyrðið fyrir, að þessi breyting kærnist alment á, er að komið verði á fót kembi- og spunavjelum miklu víðar en nú er, t. d. í hverri sýslu landsins. Væri það miklu þægilegra að slíkar vjelar væru víða, en þá minni. I Þingeyjarsýslum er reynsla fengin í þessu efni. Mun það vera alnrent viðurkent þar, að vjelarnar á Halldórs- stöðum í Laxárdal lrafi unnið heimilisiðnaði í þeirn sýsl- um ómetanlegt gagn. Maðurinn, sem átti þessar vjelar og stýrði þeim, hefur sagt, að þegar um það væri að ræða, að koma slíkum vjelum á jót, fyndist sjer ekki ein- göngu bæri að 1 íta á, hvort þessar vjelar borguðu sig bein- línis, heldur hitt, að þær væru vatn á nryllu heimílisiðn- aðarins. Hvort nrargir yrðu til að leggja fje sitt í fyrir- tæki á þeim grundvelli, eins og þessi Þingeyingur, er annað nrál. Frenrur væri ástæða til að krefjast þess af sýslufjelögum eða öðfum fjelögunr, er vinna að einlrverj- unr þjóðþrifum. í sanrbandi við kembingarvjelar, getur líka konrið til mála að nota handsunavjelar. Þær hafa verið notaðár í Þingeyjarsýsl unr og gefist vel. Hafa þessar vjelar til skanrms tíma fengist snrrðaðar þar. En nú hefur S. N. K. skorað á Heimilisiðnaðarfjelag Norðurlands, að sjá unr að gerðar væru tilraunir til að smíða handspunavjelar eftir þingeyskum fyrirmyndum. Er því sennilegt, að ekki þurfi annað en að snúa sjer til þessa fjelags fyrir þá, er vildu fá sjer handspunavjelar. Þetta er einmitt eitt af því,

x

Hlín

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.