Hlín - 01.01.1918, Qupperneq 77
Hlin
77
ur“ slnar (1 fyrraliaust mun hafa verið selt hjeðan fyrir um 60 þús.
kr.). Jeg segi stundum að gamni mínu, að hjer sje til tvennskonar
gull, hvítt, nfl. kartöflurnar, og svart, þ. e. mórinn, sem bæði er
hjer mikill og góður. Kvenfólk er hjer mjög vinnusamt og vinnur
alla vinnu. Ekki eru þær síður duglegar í mónum sínum, kon
urnar. Karlmenn stunda hjer flestir sjómensku, svo konurnar mega
tii að sjá um heimilin, móinn og garðana; svo eru þær í fiskvinnu
á milli.----
(Frá Grasa-Ólöfu.) — Jeg var 19 ára að aldri, jregar jeg byrjaði
að fást við lækningar,* en hafði litla tilsögn; blómin lærði jeg
aðallega að þekkja af Grasafræði Odds Hjaltalíns.
A sumrum hef jeg farið víðsvegar að tína grös, hef haft tjald með
mjer og 3—4 manneskjur mjer til aðstoðar. Jeg hef engin grös
látið í lyfjabúðina,** hef ekki haft meira en jeg sjálf hef notað
yfir veturinn. Allsstaðar þar sem jeg hef ferðast um, hefur fólk
greitt ferð mína. Nokkrar stúlkur hafa byrjað að læra hjá mjer,
en þegar fram í sótti vantaði þær stöðuglyndi, og önnur hugsun
fór að uppfylla löngun þeirra; jeg hefði þó fúslega látið þeim alt
það í tje, sem lífsreynsla mín ltefur kent rnjer.
Það hefur olt valdið mjer angri miklu að verða að deyja, án
þess að sjá einhvern taka þetta starf að sjer fyrir alvöru.
Jeg er ekki rik af peningum, hef ekki unnið starf mitt í þeim
tilgangi, en jeg er rík af ánægju yfir að hafa verið til hjálpar
nokkrum.-------***
ískofi.
Oft höfðuin við talað um það hjónin, að næsta framfarasporið
í búskapnum skyldi verða það að koma upp ískofa, svo hafði
okkur vanhagað um hann lengi, fanst okkur. En oftar en einu
sinni varð það úr, að þegar liaustaði, sat annað í fyrirrúmi. En
þegar þetta nú loks komst í framkvæmd á siðastl. hausti, að kol-
inn yrði bygður eða grafinn, því bygging getur það varla heitið,
og jeg hef notað hann eitt sumar, vil jeg ekki láta undir höfuð
leggjast að skýra ykkur konum frá reynslu minni, og biðja ykkur
að láta ekki svo lengi dragast að koma ískofahugmyndinni í frarn-
kvæmd.
* Ólöf er nú rjett sjötug.
** Jeg spurðist fyrir um það; í útlöndum tina margir grös og selja
lyfjabúðum og hafa af því góðar tekjur.
*** Ef einhverjar konur skyldu vilja kynnast ólöfu og starfsemi liennar
nánar, sem ekki væri ólíklegt, cr utanáskrift tiennar: ólöf Helga-
dóttir, Bergstaðastræti 64, Reykjavík.
H. H.