Dvöl - 01.07.1945, Page 13

Dvöl - 01.07.1945, Page 13
D VÖL 155 ákaft um. „Ég gleymdi að það var tvær mílur burtu. Hvers vegna heldurðu mér? Slepptu. Ég verð að opna dyrnar.“ „í Guðs bænum hleyptu honum ekki inn,“ veinaði gamli maðurinn og skalf á beinunum. „Þú ert hræddur við son þinn,“ æpti hún og brauzt um. „Slepptu mér. Ég er að koma; Herbert; ég er að koma.“ Aftur og aftur var bankað. Gamla konan sleit sig lausa með snöggu viðbragði og hljóp út úr herberginu. Maður hennar elti fram á loftskörina og kallaði eftir henni í bænarrómi, er hún þaut niður stigann. Hann heyrði glamra í keðjunni og slagbrandinn að neð- an dreginn hægt og þyngslalega úr grópinni. Svo kallaði gamla konan móð og másandi. „Komdu niður. Ég get ekki náð lokunni.“ En gamli maðurinn var kominn á fjóra fætur og fálmaði æðisgeng- inn um gólfið í leit að loppunni. Bara að hann gæti fundið hana áður en sá, sem úti var, kæmist inn. Höggin buldu á húsinu eins og stórskotahríð, og hann heyrði að kona hans dró stól fram að úti- dyrunum. Hann heyrði ískra í lok- unni, er hún þokaðist hægt frá, og í sama bili fann hann apalopp- una og stundi upp þriðju og síðustu óskinni. Höggin hættu allt í einu, þótt þau ómuðu enn um húsið. Hann heyrði að stóllinn var dreginn frá og dyrnar opnaðar. Kaldur gustur gaus inn um dyrnar, og kona hans rak upp hátt og sárt örvæntingar- kvein. Þá fékk hann hug til að hlaupa niður til hennar og síðan út að hliðinu. Götuljósið andspæn- is húsinu varpaði flöktandi bjarma á auða og hljóða brautina. Ung, bókmenntahneigö kona, sem átti heima í Columbíu, spuröi eitt sinn kennara viö námskeið, er hún tók þátt í, hvort hann hefði lesið met- sölubókina, sem núna væri mest talað um. Þegar hann viðurkenndi, að það hefði hann ekki gert, varð hún mjög undrandi og svaraði: „Nú, yður veitir þá ekki af að fara að byrja á því, það eru þrír mánuðir síðan hún kom út.“ „Ungfrú," svaraði kennarinn. „Hafið þér lesið hinar snilldarlegu kome- diur Dantes. Nú, ekki það? Yður veitir þá ekki af að fara til þess, því að það eru sex hundruð ár síðan þær voru skrifaðar." — Ég hugsa aldrei um það, hvort ég muni græða peninga á kvikmynd- um mínum eð'a ekki, sagði Samuel Goldwyn, kvikmyndakóngur, við George Bernard Shaw, þegar verið var að semja um kvikmyndatöku af bók hans Pygmalion. — Það er listin, sem mér er fyrir öllu. — Já, það er nú einmitt það, sem okkur greinir á um, svaraði Shaw þurrlega. — Þér hugsið eingöngu um listina, en ég hugsa aðeins um pen- ingana.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.