Dvöl - 01.07.1945, Page 65
D VÖI.
207
Hylurinn
Eftir Gay de Maupassant:
Þórir Friðgeirsson, þýddi
Leopold Rénard, húsgagnabólstr-
ari, stóð fyrir réttinum í Assize.
Umhverfis hann stóðu aðalvitnin í
málinu, frú Flaméche ekkja fórn-
arlambsins, Louis Ladureau, tré-
smiður, og Jean Durdent tin-
smiður.
Skammt frá sakborningnum sat
húsfreyja hans, svartklædd, lítil og
ljót kona, sem líktist mest apa í
kvenklæðum.
Frásögn Renards af harmleikn-
um, sem gerzt hafði, var þannig:
,,Ó, Guð í himninum má vita, að
þetta var óhapp, ógæfa, þar sem ég
er fyrsta og síðasta fórnardýrið.
Vilji minn átti þar engan hlut að
máli. Staðreyndirnar skýra sig
sjálfar, eins og þér munuð heyra,
herra forseti. Ég er heiðarlegur,
iöjusamur maður, húsgagnabólstr-
ari, búsettur síðastliðin sextán ár
i sömu götu, virtur og vel látinn
af öllum, sem þekkja mig, svo sem
nábúarnir geta staðfest. Ég er
sparsamur, hef yndi af vinnu og
geðjast bezt að heiðarlegu fólki og
siðsömum skemmtunum. Þetta
hefur, því miður, valdið óhappi
mínu, en af því að vilji minn átti
ekki hlut að máli, held ég sjálfs-
virðingu minni óskertri.
Við, konan mín og ég, höfum
eytt hverjum einasta sunnudegi í
síðastliðin fimm ár við ána. Þar
höfum við viðraö okkur í hreina
loftinu og dorgað, en í það erum
við jafn sólgin og að borða smá-
lauka. Mélie, truntan sú arna,
kveikti þá ástríðu í brjósti mínu,
og sjálf er hún jafnvel enn þá villt-
’ari en ég í það að dorga. Já, allt
hið illa í þessum atburði er frá
henni runnið, kjaftanorninni, eins
og þér munuð brátt sjá.
Ég er þrekmikill geðprúður mað-
ur. í mér finnst ekki illgirni eða
fúlmennska fyrir tvo aura. En hún.
Ú-hú. Hún lítur nógu meinleysis-
lega út, lítil og mögur, en hún er
grimm eins og hreysiköttur. Ég
neita þvi auðvitað ekki, að hún er
gædd vissum góðum eiginleikum,
einkum fyrir þá, sem einhver við-
skipti hafa með höndum. En skap-
ið! Spyrjið ba-ra nágranna okkar.
Kona dyravarðarins, sem nýlega
hefir leitað til mín sem fagmanns,
hún hefur frá einhverju að segja.
Á hverjum einasta og eilífasta
degi rífst hún og skammast yfir
stillingu minni og geðprýði. „Ég
mundi ekki þola þetta, ég mundi
ekki láta bjóða mér hitt,“ segir
L