Dvöl - 01.07.1945, Side 90

Dvöl - 01.07.1945, Side 90
232 D V ÖI faliö að reka, og eins og við mátti búast af honum, gekk hann ekki beint til verks. Hann sagði konu sinni, hvað þeim ungfrú Thompson hafði farið á milli, og bað hana að tala við frú Davidson. Honum fannst trúboðinn hafa beitt ofríki, og ekki gat það sakað, þótt stúlk- unni væri enn leyft að dvelja í Pago-Pago í hálfan mánuð. En hann var ekki viöbúinn árangrinum af meðalgöngu sinni, Trúboðinn kaus að ræða málið milliliðalaust. „Frú Davidson segir mér, að Thompson hafi talað við yður.“ Eins og títt er um feimna menn, reiddist læknirinn þessari beinu atlögu, sem neyddi hann út úr fylgsninu. Hann kafroðnaði og fann blóð sitt ólga. „Ég fæ ekki séð, að það breyti neinu, þótt hún færi til Sydney í stað San Francisco, og meðan hún lofar bót og betrun, finnst mér fjandi hart, að hún skuli vera ofsótt." Trúboðinn horfði á hann, fast og einarölega.- „Hvers vegna vill hún ekki fara aftur til San Fancisco?“ „Um það spurði ég ekki,“ svaraði læknirinn með nokkrum þjósti. „Og ég er þeirrar skoðunar, að menn ættu ekki að blanda sér í það, sem þeim kemur ekki við.“ Ef til vill skorti nokkuð á kurteisi í þessu svari. „Landstjórinn hefur skipað svo fyrir, að hún skuli fara héðan af eynni með fyrstu ferð. Hann hefur einungis gert skyldu sína, og ég ætla ekki að sletta mér fram í' það. Hér stafar af henni hættp,.“ „Þér eruð miskunnarlaust hörkutól." Konurnar litu báðar skelfdar á lækninn, en ástæðulaust var að óttast rimmu, því að trúboðinn brosti blíðlega. „Það hryggir mig ósegjanlega, að þér skuluð hafa það álit á mér, Macphail læknir. Ég segi yður satt, ég kenni sárlega í brjósti um þessa veslings konu, en ég leitast einungis við að gera skyldu mína.“ Læknirinn svaraði engu. Hann horfði út um gluggann ólundarlegur. Aldrei þessu vant var nú þurrt veður, og handan við flóann sá í þorpið, þar sem frumbyggjarnir höfðu hreiðrað um sig milli trjánna. „Ég ætla að nota þennan skúralétti til þess að koma út undir bert loft,“ mælti hann. „Gerið það fyrir mig að bera ekki óvildarhug til mín, þótt ég geti ekki orðið við ósk yðar,“ sagði Davidson og brosti þunglyndislega. „Ég virði yður mjög mikils, læknir, og mér væri það raun, ef ég geðj- aðist yður ekki.“ „Ég er þess fullviss, að þér hafið nægilega gott álit á yður sjálfur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.