Dvöl - 01.07.1945, Side 114

Dvöl - 01.07.1945, Side 114
256 DVÖL að frá honum muni um siðir koma merki- legt skáldverk, ef honum endist aldur og heilsa til. Áhugann vantar hann ekki. Ég þekki fáa menn jafn lifandi og hug- myndaauðuga og hann er, þótt veikur sé og hafi dvalizt í heilsuhæli undanfar- in ár. Viðhorf hans til vaxtar og kjara þjóðar sinnar koma' hvað bezt fram í „Óði eins dags“. Vonin um, að þjóð hans megi bera gæfu til að lifa vel í landi sínu, er honum hugstæðust á alvarlegu augnabliki í sögu hennar, enda þótt hann sé sjálfur fjarri þeim stað, þar sem fólkið hefur komið saman. Þjóð hefur fylkt fagurhljómandi, loforðalýsandi og ljósboðandi. Og víst skal sú von lifa að mætti slíkt meiru um valda en eins dags glysi og glamfagnaði. í þessum orðum kemur fram tíma- bærari skilningur og viðhorf en í ýmsu öðru, sem haft var yfir á fullveldisdegi okkar, fyrir hálfu öðru ári síðan. 1. des. 1945. Elías Mar. Fífulogar eftir Eerlu. Útgef. Bók- fellsútgáfan 1945. Eria er ekki nýgræðingur og hafði kvatt sér hljóðs á skáldaþingi áður, og hlotið nokkrar vinsældir og góða dóma ýmissa ljóðvina. Flestum hafði þó verið hið rétta nafn hulið, en nú liggur það ekki lengur í láginni, því að á kápu þessarar bókar er nokkuð greint frá skáldkonunni og ævi hennar. Erla heitir réttu nafni Guðfinna Þorsteinsdóttir og er fátæk húsmóðir í sveit á Austfjörðum og níu barna móðir. Hún er komin af gáfuðum og skáld- hneigðum bændaættum og virðist hag- mælskan rík í blóði. Þrátt fyrir vanheilsu, annríki og erfið kjör hefur hún ort mikið, og hafa ljóð hennar birzt víð'a í blöðum og tímaritum. Eina ljóðabók hefur hún áður sent frá sér, „Hélubióm", árið 1937. Þessi nýja bók Erlu, Fífulogar, er nokk- uð stór, um 200 síður og kvæðin nokkuð sett. Margt gott má um þessi ljóð segja. Erla er mjúkhent og næm, seilist aldrei um þverbak eftir sterkyrðum eða skarti á ljóð sín. Mál hennar er lipurt og létt og fellur að hugsuninni hispurslaust og mjúklega. Efni bókarinnar er skipt í þrjá flokka Fremst eru ljóð almenns efnis, þá þulur og barnaljóð og síðast almanak Erlu. Efnið í fyrsta hluta bókarinnar er grip- ið hvaðanæva úr lífinu, og kennir margra grasa. Stundum bregður þar fyrir ein- földum og skemmtilegum athugunum, sem bera stemningu þjóðkvæða, eins og í þessari vísu um kossa: Virðingin kyssir ennið á. Auðmýktin hönd að vörum brá. Aðdáun vanga velur sér. Vináttan kyssir hvar sem er. — Ástin er frekast að því kunn, að hún vill kyssa beint á munn. Þulurnar og barnaljóöin finnst mér vera bezti hluti bókarinnar, og er þar margt vel sagt og rímað við barnahæfi. T. d. finnst mér kvæðið Berjaferð vel gert barnakvæði. Ég held. að kennarar og ýmsir aðrir barnavinir gætu fundið margt til hjálpar sér í þessum kvæðaflokki Erlu. Almának Erlu er það sízta í bókinni. Þar er ein ferskeytla fyrir hvern dag árs- ins. Þar verða visurnar líkar og sviplitlar, þótt alls staðar komi fram rímlípurðin og hagmælskan. Efnið — veðurfar og önnur sérkenni hverrar árstíðar — er svo marg- nýtt í íslenzkum alþýðukveðskap, að þar verður einhverju nýju við að bregða, ef mann á ekki að finnast sem sama vísan sé of oft kveðin. Helzti galli þessarar bók- ar er held ég sá, að hún er of stór, of
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.