Valsblaðið - 01.05.2000, Qupperneq 3
Efnisyfirlit
Guð er með oss
I nýrri bók rithöfundarins Einars Más Guðmundssonar
„Draumar á jörðu“, segir á einum stað. „Svo stóðu þær við
Grandavörina. Þama settist sólin og þama var Iitli torfbærinn
þar sem Haraldur og Sigrún, afi hennar og amma bjuggu. Torf-
bæimir voru óðum að hverfa þó að sjávamiðurinn léki við
hvert fótmál og öldumar risu sem svipmikil tún, þótt engin
böm hoppuðu lengur á milli sæbarða hnullunga einsog þegar
pabbi hennar var lítill drengur.
„Sjáðu himininn og sólina," sagði Guðný móðir hennar, „hvem-
ig hún glampar á sjónum þar sem guð einn getur speglað sig“.
„Bjó guð til sjóinn?" spyr Sæunn.
„Já, guð býr til allt,“ segir móðir hennar, „og þegar við emm komnar til hans verðurn við hluti
af þessu öllu.“
Svona var hún amma mín bjartsýn. Hún trúði á fegurð sköpunarverksins og mátt bænarinnar,
þrátt fyrir saggafullt kjallaragrenið, fátæktina og baslið. Innra með sér vissi hún að öll él styttir
upp um síðir og hvorki regngrá skýin í loftinu, né bleytukrapinn á gólfinu breyttu neinu þar
um, frekar en önnur hnefahögg heimsins.
Þegar börnin voru farin burt og hún ein eftir átti hún ekkert handa þeim nema bænir og litlar
gjafir sem hún sendi til þeirra á jólunum og þau minnast sem horfinna dýrgripa.
Þessi kafli úr ágætri bók rithöfundarins Einars Más kom upp í huga minn er ég settist niður
til að hugleiða aðventuna, komu jólanna og jólin sjálf. Einmitt á þessum tíma ársins koma upp í
huga okkar allra hinir gömlu góðu tímar. Jólin eins og þau voru haldin hátíðleg fyrr á árum.
Tímamir breytast svo hratt að það sem er nýtt í dag er orðið gamalt á morgun. Við minnumst
jólanna oft sem „horfinna dýrgripa“. Það er ekki óeðlilegt að spyrja sjálfan sig hvort hátíðin,
sem nú er að ganga í garð, séu dýrgripir sem eru horfnir á braut.
Vissulega hefur umgjörð þeirra breyst. Allt hið ytra er glæsilegra en áður var. í dag væri það
ekki merkilegt að fá gefins eitt jólaepli á „litlu jólunum" í skólanum, einsog undirritaður fékk
að gjöf í skólanum sínum Langholtsskóla forðum daga. í dag er jafnvel rætt um það hvort hægt
sé að halda „Iitlu jólin" í skólanum vegna kennsluskyldu kennara og tilhögun á kennslustarf-
inu.Vonandi leggst sá góði siður ekki niður, svo dýrmætur sem hann er öllum nemendum.
Það er rétt, tímamir breytast hratt, það sem er nýtt í dag er orðið gamalt á morgun. Umhverf-
ið mótar öðruvísi í dag en það gerði á uppvaxtarárum mínum. I dag spyrja sum sunnudags-
skólaböm prestinn sinn „hvar eigi að skafa“ á Jesúmyndunum, væntanlega til að sjá lottótöl-
umar. Einhver böm biðja foreldra sína að „spila“ bamamessuna aftur þegar komið er heim á
sunnudegi. Biðja um „replay". Það er rétt hjá þeim að því Ieyti að aðventan og jólasagan kernur
til okkar aftur og aftur, hún er endurtekin. I tvöþúsund ár hefur boðskapur aðventu og jóla verið
fluttur okkur.
Þó að hann berist okkur á annan hátt en hann gerði fyrir nærri tvö þúsund ámm hefur inni-
haldið ekkert breyst. Það er það sama öld eftir öld. Boðskapurinn um það, að guð hafi svo elsk-
að heiminn að hann gaf sinn eingetinn son, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur
hafi eilíft líf. Hið „skærasta ljós“ var tendrað. Ljósið sem átti eftir að lýsa upp allt myrkur.
Ljósið sem sífellt bendir á gleðina, fögnuðinn, fyrirgefninguna umhyggju og kærleika.
Það er þess vegna sem aðventan og jól hafa verið haldin hátíðleg, það er þess vegna sem þau
tala til okkar. Vissulega fá þau okkur til að líta til baka í tímanum, að bamsins einlæga hjarta,
til gömlu góðu stundanna en síður að því sem er framundan og varðað er ljósi hans sem fæddist
á jólum.
Við minnumst þeirra annars vegar vegna „horfmna dýrgripa" en ekki síður sem framtíðar-
sýnar. Sú framtíðarsýn kristallast í orðinu „Immanúel'1 sem þýðir að „Guð er með oss“.
Megi hann „hinn lifandi Guð“ vera með okkur á aðventu og jólum því allt er í höndum Guðs
og hann lætur ekki aðstoð sína bresta.
Guð gefi ykkur helg og gleðiteg jól.
Séra Vigfús Þór Arnason
■ y,
Séra Vigfús Þór Árnason.
Valsblaðiö • 52. árgangur 2000
Útgefandi: Knattspyrnufélagið Valur. Félagsheimili, íþróttahús og leikvellir aö Hlíðarenda við Laufásveg
Ritstjóri: Þorgrimur Þráinsson • Ritnefnd: Ragnar Ragnarsson • Umbrot og útlit: HelgaTómasdóttir
Ljósmyndir: Sigurjón Ragnar, Þorsteinn Ólafs o.fl. • Myndskönnun og plötugerð: ÍP Prentþjónustan ehf.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. • Bókband: Flatey hf. • Sérstakar þakkir til Þorsteins Ólafs fyrir aö lána
myndir og góðan prófarkarlestur.
3
6
10
16
17
23
25
26
28
29
30
30
31
35
38
39
41
42
45
47
47
48
49
50
52
57
58
60
61
66
HugveKja
Geir Sveinsson
Skýrsla aðalstjórnar
Víkingur Arnórsson
Skýrsla knattspyrnuðeildar
Einar Óii Guðmundsson
Elísabet Anna Kristjánsdóttir
Sára Friðrik Friðriksson
Kristrún Njálsdóttir
Skýrsla handknattleíksdeildar
Golfmót Vals
Valsmaður ársins 1999
Valsfjölskyldan
Skýrsla körfuknattleiksdeildar
Matthías Guðmundsson
Gestagangur
Gothia Cup 3. flokkur
Gautaborg Basketball Festeval
Elfa Hreggviðsdóttir
Körfuknattleiksskóli Vals
Óvissuferð
Rising Star
Gothia Cup 2. flokkur
Fannar Þór Friðgeirsson
Hringborðsumræður
Zeljko Sankovic
Sumarbúðir í borg
Snorri Steinn Guöjónsson
Uppskeruhátíö knattspyrnudeildar
Minning
Valsmenn hf.
Valsblaðið 2000
3