Valsblaðið - 01.05.2000, Side 16
Ungir Valsarar
Víkingur Arnórsson 10. flokki í körfubolta
Víkingur Arnórsson er sannur Valsmaður
og ekki sá eini í fjölskyldunni sem hefur
æft að Hlíðarenda. Systir hans Hrafn-
hildur, sem er nýkomin með bílpróf, lék
fótbolta með Val og Manela, sem er ekki
nema 7 ára, æfir líka með Val. „Þetta er
svo sem ekkert skrýtið því allir í pabba-
fjölskyldu voru í fótbolta," segir Víking-
ur Valsmaður.
Víkingur bjó í 7 ár í Bandaríkjunum
þegar faðir hans, Amór Víkingsson, var í
framhaldsnámi í læknisfræði. Hann kom
heim 10 ára gamall og byrjaði í fótbolta
hjá Val en sneri sér allsnarlega að körf-
unni. „Eg æfði fólbolta í Bandaríkjunum
og var langbestur ásamt syni þjálfarans.
Þegar ég kom heim var ég langlélegastur
og þess vegna sneri ég mér alfarið að
körfunni. I Bandaríkjunum er fótbolti
notaður til að hafa ofan af fyrir stórum
hópi krakka því 20 krakkar geta verið að
elta einn bolta tímunum saman. Ég varð
reyndar mjög hrifinn af ameríska fótbolt-
anum og hafnarbolta og hefði örugglega
stundað þær íþróttir hér ef það hefði ver-
ið hægt.“
Víkingur, sem varð 15 ára þann 19.
mars, stundar nám í Háteigsskóla. „Þeg-
ar ég og vinur minn byrjuðum í körfunni
hjá Val vorum við einu leikmenn 7.
flokks. Þess vegna lékum við með 8.
flokki. Ég var því aldrei í minniboltanum
hjá Val.“
Víkingur segir að hann sé „drippler"
og vill meina að liðið (10. flokkur) hafi
bætt sig töluvert á þessu ári. „Sumir í
liðinu er frekar smeykir við að keppa á
móti öðrum Iiðum og eru bara yfirleitt
góðir á æfingum. Þá vantar nokkra
stráka töluvert sjálfstraust. Þetta er þó
allt að koma núna því við erum búnir að
vinna 14 leiki af 17 það sem af er keppn-
istímabilinu. Og 2 tapleikjanna voru gegn
eldri strákum."
Hvað er eftirminnilegast frá ferlinum
þótt hann spanni reyndar ekki mörg
ár?
„Líklega ferðin til Svíþjóðar síðastliðið
sumar þegar við urðum B-meistarar í 9.
flokki. Það var draumur í dós og sú ferð
mjög skemmtileg í alla staði.“
Hvert stefnirðu í íþróttum?
„Eins langt og ég kemst. Þó efast ég um
að ég komist í NBA deildina. Ætli maður
verði ekki að vera raunsær. Annars er
mikilvægast í boltanum að gefast aldrei
upp og hafa trú á því að maður geti unn-
ið leiki. Svo þarf maður að vera dugleg-
ur að hvetja félagana til dáða. Að gera
sitt besta skiptir öllu máli.“
Hver er þín áhugamál ef boltinn er í
boltapokanum?
„Tónlist. Ég er mjög hrifinn af rapptón-
list, svona svertingjatónlist eins og R&B
spila. Svo fíla ég allar íþróttir, sérstak-
lega hafnarbolta og amerískan fótbolta.
En Jordan er náttúrlega fyrirmyndin."
Víkingur Arnórsson œtlar að verða biss-
nessmaður, ekki lœknir.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert
orðinn stærri?
„Allavega ekki læknir eins og pabbi.
Mér finnst ógeðslegt að vera alltaf útat-
aður í blóði. Annars er ég ákveðinn í að
verða ríkur og ætli það sé ekki best að
verða bara bissnessmaður."
Veistu hver stofnaði Val og hvenær
það átti sér stað?
„Var það ekki 1891? Annars man ég ekki
hvað karlinn heitir en ég veit að hann var
frændi minn.“
Flugeldasala Vals
Flugeldasala Vals verður í gamla félagsheimilinu og hvetjum viö
Valsmenn til aö kaupa flugeldana að Hlíðarenda. Paö en mjög hentugt
aö mæta í hádeginu á gamlánsdag og fylgjast með útnefningu á íþnótta-
manni Vals 2CDOO, fá sén kaffisopa, honfa á „gamlingjana" spila fótbolta
í íþnóttahúsinu og vensla síöan flugelda til að fagna ánamótunum.
16
Valsblaðið 2000