Valsblaðið - 01.05.2000, Síða 41
Ungir Valsarar
FF
Geðveikt
3. flokkur kvenna hafnaði í 3.-4. sæti á Gothia Cup í Svíþjóð þar sem
74 lið tóku þátt. Knattspyrnustelpuruar voru landi og þjóð til sóma.
gott veður"
3.flokkur Vals sem fór á Gothia Cup sumarið 2000. Aftari röð frá vinstri: Elísahet Gunnarsdóttir þjálfari, Signý Heiða Guðnadóttir,
Dóra María Lárusdóttir, Ragnhildur Erna Arnórsdóttir, Hjördís Harðardóttir, Jóhanna Lára Brynjólfsdóttir, Dóra Stefánsdóttir, Iris
Björg Jóhannsdóttir og Osk Stefánsdóttir. Miðröð frá vinstri: Helga Bryndís Kristjánsdóttir, Sigrún Þorsteinsdóttir, Sigrún Edda
Oddsdóttir, Lilja Svavarsdóttir, Lea Sif Valsdóttir, Auður Hanna Guðmundsdóttir og Guðrún María Þorbjörnsdóttir. Fremsta röðfrá
vinstri: Rakel Adolphsdóttir, Helga Harðardóttir, Rúna Sif Rafnsdóttir, Valgerður Stella Kristjánsdóttir, Christa Hlín Lehmann,
Halldóra Sigurlaug Olafs, Sandra Gísladóttir, Hildigunnur Jónasdóttir og Regína María Arnadóttir.
Haustið 1999 var ákveðið að fara í
keppnisferð á Gothia Cup 2000, en það
er árlegt knattspymumót sem haldið er í
Gautaborg í Svíþjóð. Mót þetta er oft
nefnt óopinbert heimsmeistaramót ung-
linga. Við söfnuðutn okkur fyrir ferðinni
með því að halda þrjá kökubasara í
Kringlunni, selja hágæða amerískar sal-
ernisrúllur, selja auglýsingar á peysur og
boli, hreinsipakka og margt fleira. Fjár-
öflunin gekk mjög vel og allir lögðu sitt
af mörkum. í lokin voru allir búnir að
safna fyrir ferðinni og flestir kornnir
með gjaldeyri að auki.
Loks rann upp ferðadagurinn rnikli,
13. júlí og þá um morguninn mættum við
í Valsheimilið og biðum eftir rútunni
sem fór með okkur í Leifsstöð. Við lent-
um á flugvellinum í Gautaborg. Rúta
flutti okkur í skóla á Lindholmen þar
sem við gistum.
Þegar við höfðum komið okkur fyrir í
skólanum fórum við allar í ferjunni
Álvsnappen í „Fimmuna" sem er risastór
verslunarmiðstöð þar sem alll mögulegt
fæst. Þar þurftum við að fá okkur að
borða og af einhverjum ástæðum fóru
flestir á Burger King. Svo var verslað og
verslað og...
Daginn eftir var ferðinni heitið á æf-
ingasvæði Heden þar sem tekin var hressi-
leg æfing. Það má segja að það hafi ver-
ið geðveikt gott veður því við vorum all-
ar á toppunum á æfingunni og áhorfið
hjá karlpeningnum var að sönnu mikið.
Svo hófst keppnin sjálf. Hún byrjaði á
riðlakeppni sem fór fram á Grimbo og
Sláttadamm. Við unnum riðilinn og
komumst í 32, 16 og 8 liða úrslit og unn-
urn það allt - svo komumst við í undan-
úrslit en koxuðum á þeim. En okkur
gekk vel miðað við að það voru 74 lið að
keppa í okkar aldursflokki, en við urðum
í 3.- 4. sæti af svo mörgum liðum sem
verður að teljast mjög góður árangur.
Undanúrslitaleikurinn var við lið frá
Dallas í Texas. Leikurinn fór 3-0.
Það sem okkur fannst standa upp úr í
ferðinni var vissulega opnunarhátíðin
sem var á nýja Ullevi. Þar voru skemmti-
atriði, flugeldasýning og margt skemmti-
legt í gangi. Einnig fengum við að fara í
Liseberg tívolíið þar sem eru margir
spennandi rússíbanar og stemmningin var
frábær.
Signý, Guðrún og Ragnhildur
Valsblaöið 2000
41