Valsblaðið - 01.05.2000, Side 19

Valsblaðið - 01.05.2000, Side 19
3.fIokkur kvenna, að loknum 3:2 sigri á ÍBV úti í Eyjum á Islandsmótinu: Efri röð frá vinstri: Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari, Hildigunnur Jónasdóttir, Sigrún Þorsteinsdótt- ir, Guðrútn María Þorbjörnsdóttir, Sandra Gísladóttir, Regína María Arnadóttir, Ragn- hildur Erna Arnórsdóttir, Rúna Sif Rafnsdóttir, Jóhanna Lára Brynjólfsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Auður Hanna Guðmundsdóttir, Osk Stefánsdóttir, Halldóra Sigurlaug Olafs, Dóra Stefánsdóttir, Valgerður Stella Kristjánsdóttir, Iris Björg Jóhannesdóttir, Signý Heiða Guðnadóttir, Dóra María Lárusdóttir. Mynd: Þ.O. markmið um sæti í úrvalsdeild næðist ekki. Var bölsýnin slík að jafnvel eftir að úrvalsdeildarsæti var í höfn höfðu menn allt á homum sér. Hefur kveðið mjög rammt að þessum undirgangi, sem sprottinn var úr okkar eigin röð- um. Vil ég nota þetta tækifæri til að óska Ejub Purisevic og leikmönnum m.fl.ka innilega til hamingju með það afrek að vinna Val sæti meðal þeirra bestu á ný. Þá vil ég færa Vallarvinum þakkir, en þeir hafa í mörg ár unnið óeigingjamt starf við undirbúning heimaleikja m.fl. ka. að Hlíðarenda Framundan er viðamikið uppbygging- arstarf, sem miðar að því að tryggja veru Vals í úrvalsdeild um leið og skapaðir eru möguleikar fyrir unga og stórefni- lega leikmenn félagsins til að þroskast og skapa kjama í meistaraliði Vals fram- tíðarinnar. 2. INNVIDIR OG SKIPULAG I unglingastarfinu hefur margt jákvætt áunnist. Unnin hefur verið mikil skipu- lagsvinna og innviðauppbygging undir stjóm Ólafs Más Sigurðssonar, formanns unglingaráðs og hefur hann og hans fólk unnið frábært starf á liðnu starfsári. Hvað íþróttalegan árangur varðar vom 4. fl. ka. og 3. fl. kv í fararbroddi. 4. fl. Tveir ungir Valsmenn og vinir, Kristján Már Olafs (t.h.) og Jónatan Jónatansson á afmœlismóti KRR. Mynd: Þ.O. ka. komst í úrslitakeppni íslandsmótsins og 3. fl. kv. varð í 2. sæti íslandsmótsins auk þess að ná 3. sæti í Gothia Cup og vinna flest smærri mót sem flokkurinn tók þátt í. í starfi 3. fl. ka. komu fram þeir erfið- leikar, sem verða, þegar ekki næst að halda utan um hvem árgang í flokki, en á eldra aldursári þessa flokks voru einung- is örfáir drengir. Þegar komið er svo of- arlega í aldri, er líkamlegur þroski farinn að skipta verulegu máli og galt flokkur- inn mjög fyrir fámennið. Starf unglingráðs og öflugra foreldra- ráða í kringum hvem flokk heldur nú áfram. Gengið hefur verið frá þjálfaramálum fyrir alllöngu og sinna nú vel menntaðir þjálfarar öllum flokkum drengja og stúlkna. Þá hefur verið ráðinn yfirþjálf- ari, Zeljko Sankovic. Zeljko er hámennt- aður knattspymuþjálfari, sem m.a. þjálf- aði unglingalandslið Króata með ekki ómerkari menn en Boban og Suker inn- anborðs. Hann kemur til okkar frá Vest- mannaeyjum, þar sem ég veit að hans er sárt saknað. Auk yfirþjálfarastarfa, sem m.a. fela í sér umsjón með knattspymulegum þroska allra ungmenna í Val, mun Zelko þjálfa 5. fl. og 2. fl. ka. Við Valsmenn væntum mikils af störfum Zelko og bjóðum hann velkominn til starfa. Þá eru uppi hugmyndir um stofnun dómararáðs til að styrkja þennan nauð- synlega þátt unglingastarfsins, en því miður voru dómararmál ekki í nógu góð- um farvegi áður. Verður byggt á tilraun sem gerð var í sumar og lofar góðu. En að koma skikki á hlutina er einung- is fyrsta vers. Næstu stóru verkefni unglingaráðs eru samræmd knattspymustefna fyrir Val en sú vinna hefur enn ekki komist til fram- kvæmda og tenging þeirrar stefnumótun- ar við útbreiðslustarf, þ.e. fjölgun iðk- enda og daglegt starf í flokkunum. Hefur ráðið fengið hauk í homi, sem er Hrefna Halldórsdóttir. Hún hefur í einu orði sagt unnið frábært félagslegt starf í Val undanfama mánuði. Fyrst lét hún að sér kveða með Fjölskyldudegi að Hlíðarenda í júlí og síðan með kynning- ardegi í Valsheimilinu í tengslum við opnun skólanna í september. Hún lét ekki deigan síga og stóð fyrir fræðslu- kvöldi fyrir foreldra um forvamir þann 28. nóvember. Svona einstaklingar eru hverju íþróttafélagi hvalreki. 3. UPPBYGGING KVENNAKNATTSPYRNU 2. fl. kv. stóð sig frábærlega á síðasta ári eins og árið áður undir stjórn Asgeirs Pálssonar. Stelpumar urðu íslandsmeist- arar og spiluðu til úrslita í bikarkeppn- inni og í Gothia Cup auk þess að vinna öll önnur mót sem þær tóku þátt í. Því miður var m.fl. kv. ekki í sama formi og niðurstaðan því lakasti árangur, sem menn muna í Islandsmótinu. Flokk- urinn stendur nú á tímamótum og er nýr þjálfari, Ásgeir Pálsson, að móta nýtt lið sem byggir á landsliðskonum okkar og stórefnilegum stúlkum úr 2. fl. Eru mikl- Valsblaöið 2000 19

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.