Valsblaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 23

Valsblaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 23
Ungir Valsarar Besti félaginn var valinn: Benedikt Oddsson Mestuframfarir: Sveinn Halldór Skúlas. Besta ástundun: Aron Heiðar Gunnarss. 6. flokkur kvenna Illa gekk að finna þjálfara á flokkinn en Edda Lára Ludvigsdóttir og Jóhanna Lára Brynjólfsdóttir tóku við honum í desember. Fram að þeim tíma æfðu stúlkumar undir stjóm Elísabetar þjálfara 3. flokks. Flokkurinn var afar fámennur í upphafi tímabils en það fjölgaði í hópn- um þegar á leið. Markmiðið var að kenna stúlkunum grunnatriði íþróttarinnar. Þær tóku þátt í nokkrum mótum á tímabilinu og stóðu sig með prýði. Besti fél. var valin: Guðlaug Rut Þórsd. Mestu framfarir: Vigdís Þóra Másdóttir. Besta ástundun: Guðríður Jónsdóttir. 7. flokkur karla I upphafi tímbils var Ami Viðar Þórar- insson ráðinn-þjálfari flokksins en þegar á leið bættist Heiðar Bimir Torleifs við og unnu þeir í sameiningu að þjálfun 6. og 7. flokks. Flokkurinn samanstóð af um 30 drengjum og var markmiðið að þeir hefðu gaman af æfingunum og að kenna þeim um leið undirstöðuatriði íþróttarinnar. Flokkurinn tók þátt í nokkrnm mótum á tímabilinu en þar ber þó hæst Króksmótið á Sauðárkróki þar sem strákamir skemmtu sér vel og voru félaginu til mikils sóma. Besti fél. var valinn: Einar Jóhann Geirss. Besta ástundun: Gunnar Smári Eggertss. Landsliðsmenn Fleiri vom valdar í yngri landsliðin í ár heldur en árið á undan. Eftirtaldar stúlkur voru valdar f U-17 ára landsliðið sem keppti í Finnlandi í sumar: Málfríður Erna Sigurðardóttir Guðný Petrína Þórðardóttir Kristín Yr Bjarnadóttir Ingunn Einarsdóttir Rakel Þormarsdóttir Eftirtaldir leikmenn úr Val Iéku með U-18 ára landsliðinu: Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir Guðný Petrína Þórðardóttir Málfríður Erna Sigurðardóttir Þóra R. Rögnvaldsdóttir Getraunanúmer lfals 101 „l/bpum þreyttir Einar íli Guðmundsson 3. flokki í knattspyrnu Einar Óli er 14 ára, fæddur 23. júní árið 1986. Hann er í 9. bekk í Austur- bæjarskóla og hefur æft með Val í 9 ár. Hann leikur yfirleitt sem miðvörður eða „sweeper" með 3. flokki en síðast- liðið sumar var hann á fyrra ári í flokknum. „Sweeperstaðan hentar mér vel því ég er 185 sm hár og mér þykir gaman að vera í vörninni," segir Einar Óli. Strákarnir vom aðeins einum leik frá því að leika til úrslita um Islands- meistaratitilinn í 3. flokki en þeir töp- uðu fyrir IA í undanúrslitum, jafnvel þótt þeir hefðu unnið ÍA fyrr um sum- arið, 4-1. „Já, þetta var svekkjandi því við höfðum bæði unnið IA og FH með þriggja marka mun áður en svo léku þau lið til úrslita um titilinn. Við vor- um efstir í okkar riðli á íslandsmótinu og lentum í auðveldari riðli í úrslita- keppninni. Það fór mikil orka í leikinn við Austurland sem endaði með jafn- tefli. Síðar rúlluðu Haukar yfir Austur- land og við rúlluðum svo yfir Hauka. Þetta var því dálítið skrýtið. Eg held að við höfum bara verið orðnir of þreyttir til að geta lagt IA að velli. En við lærðum heilmikið á þessu.“ 3. flokkur fór í eftirminnilega æf- ingaferð til Portúgals síðastliðið sumar en alls voru 22 leikmenn með í för auk fararstjóra. „Þetta var mjög skemmti- legt,“ segir Einar Óli, „við bjuggum í Algarve og lékum við lið frá Portúgal og Spáni og unnum þau bæði.“ Hvert stefnir þú í boltanum? „Ég stefni bara á að ná sem lengst. Maður þarf að setja sér háleit mark- mið og æfa vel utan æfingatíma ef maður ætlar að taka miklum framför- um. Ég reyni að vera mikið í fótbolta í skólanum en það er leiðinlegt til lengdar að vera í fótbolta á malbiki. Annars er mjög gaman að nýji ung- Einar Óli er stoltur Valsari. lingaþjálfarinn, Zeljko, er með okkur í tækniæfingum tvisvar í viku fyrir utan hefðbundna æfingatíma.“ Attu þér uppáhaldsleikmenn og lið? „Val hefur ekki gengið neitt sérstak- lega vel síðustu árin þannig að ég held ekki upp á neinn í Val. Hins vegar finnst mér Hermann Hreiðarsson góð- ur og Paulo Maldini hjá AC Milan. Ég hélt með Manchester United en er að spá í að breyta til af því að nánast allir halda með því liði. Islendingaliðin eru í uppáhaldi, sérstaklega Ipswich.” Veistu hvenær Valur var stofnaður og hver gerði það? „Það var séra Friðrik Friðriksson, þann 11. maí 1911.“ Valsblaðið 2000 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.