Valsblaðið - 01.05.2000, Qupperneq 29

Valsblaðið - 01.05.2000, Qupperneq 29
Starfið er margt . Valsstúlkur sigurvegarar Ársskýrsla handknattleiksdeildar árið 2000 Keppnistímabilið 1999-2000 hjá hand- knattleiksdeild Vals var ekki það besta í sögu deildarinnar. Það var heldur ekki það versta og hægt er að draga margt gott fram í dagsljósið. Meistaraflokkur karla hóf tímabilið með ágætum en þeg- ar leið á keppnistímabilið varð liðið að sætta sig við þá staðreynd að lenda í 9. sæti í deildinni og varð því ekki meðal þeirra 8 liða sem komust í úrslitakeppn- ina. Þetta var annað árið í röð sem meist- araflokki karla tókst ekki að komast í úr- stlitakeppnina og muna elstu menn ekki annað eins. Þó voru bjartar hliðar á lið- inu enda tveir af atvinnumönnum Vals, þeir Geir Sveinsson þjálfari og Júlíus Jónasson, komnir heim til að leika með liðinu. Liðið féll sömuleiðis snemma úr leik í bikarkeppninni þannig að það varð að sætta sig við að vera titlalaust þetta tíma- bilið eins og á undan. Keppnistímabilið leið þó ekki án þess að titlar bærust að Hlíðarenda. Meistaraflokkur kvenna end- aði í 7. sæti í deildinni og lenti á móti sterku liði FH-inga í úrslitakeppninni. Valur sigraði í öðrum leiknum en beið lægri hlut 1-2 í hrinunni og féll þannig úr leik. En það var bikarúrslitaleikur kvenna í febrúar sem gerði Valsmenn stolta. Kvennalið Vals hafði með glæsi- legum leik og ótrúlegri baráttu komist alla leið í úrslitaleikinn í bikarkeppninni og háði leik gegn Gróttu-KR fyrir þétt skipaðri Laugardalshöll. Leikurinn verð- ur lengi í minnum hafður sökum þess hversu líflegur hann var því liðin skipt- ust á að skora nánast allan leikinn þannig að framlengja varð tvisvar. Og það voru að sjálfsögðu Valsstúlkur sem stóðu uppi sem sigurvegarar og fögnuðu vel og lengi. Bama- og unglingastarf var í blóma síðastliðið tímabil. Veg og vanda að því starfi hafði Óskar Bjami Óskarsson, sem nú hefur horfið á braut til Noregs, þar sem hann þjálfar karlalið Stabæk. Hand- knattleiksdeild Vals hefur verið það Valsstúlkurnar urðu bikarmeistarar á tímabilinu og héldu heiðri félagsins á lofti. Agúst Jóhannsson þjálfari starir stoltur á stúlkurnar sínar. Agúst þjálfari, sem nú er orðinn lands- liðsþjálfari kvenna, fékk kalda sturtu „með öllu“ eftir bikarsigur meistara- flokks kvenna á síðasta keppnistímabili. lánsöm undanfarin ár að njóta starfs- krafta nokkurra bestu handboltaþjálfara landsins og hefur það góða fólk skilað frábærum árangri. Yngri flokkar Vals stóðu sig vel þegar litið er á heildina en nauðsynlegt er fjölga iðkendum á næsta ári. Hæst ber árangur 2. flokks stúlkna en Valur varð Islandsmeistari í þeim flokki enda skipa margar af efnilegustu handboltastúlkum landsins þann hóp. Félagsstarf var með ágætum og ber að þakka þeim fjölmörgu sem tóku þátt í því. Hvort sem það var að skipuleggja Þorrablót, heimaleiki, bikarúrslitaleik eða annað. Valsmönnum öllum, nær og fjær, sendi ég kveðjur árs og friðar. Karl Jónsson, leiðtogi handknattleiksdeildar Vals. Valsblaðið 2000 29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.