Valsblaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 50
Ungir Valsarar
noðalega tapsár
Fannar Þór Friðgeirsson 5. flokki í handbolta
Fannar Þór Friðgeirsson.
Það má með sanni segja að boltinn rúlli
hratt hjá Fannari Þór því hann hefur ver-
ið að æfa með 5.-4. og 3. flokki í hand-
bolta. Hann varð 13. ára þann 3. júní sl.
og segir að það sé yfirleitt gaman að æfa
svona mikið. „Annars mun ég ekki æfa
með 3. flokki á næstunni. Alagið er svo
sem alveg nógu mikið.“
Fannar Þór er í Langholtsskóla, æfði
með Fjölni þegar hann bjó í Grafarvogi,
en skipti yfir í Val fyrir þrernur árum.
„Það er Óskari Bjama þjálfara að þakka
að ég fór í Val. Hann heillaði mig svo
mikið sem þjálfari að ég ákvað að feta í
fótspor Amars Þórs, bróður míns, sem
leikur með 2. flokki. Ég sakna Óskar
Bjama að vissu leyti því hann er bæði
skemmtilegur og góður félagi. Annars er
Freyr Brynjarsson líka góður þjálfari."
Það sem af er vetri hefur 5. flokkur
hafnað í 4. sæti á fyrstu tveimur túmer-
ingum Islandsmótsins (1. deild) og strák-
amir urðu í 2. sæti á Reykjavíkurmótinu.
„í fyrra lentum við í 5. sæti á íslands-
mótinu," segir hann. Fannar Þór hefur
reynslu af flestum stöðum á vellinum en
leikur þó yfirleitt á miðjunni eða úti
vinstra megin. „I 4. flokki hef ég leikið á
miðjunni og í vinstra horninu. Og með 3.
flokki á línunni. Strákarnir í þeint flokki
eru vitanlega mun sterkari en ég og þess
vegna get ég ekki verið úti.“
Hvað er eftirminnilegast úr boltan-
um?
„Ætli það sé ekki fyrsta árið mitt hjá Val.
Þá komust við í 4-liða úrslit á íslands-
mótinu og lékum til úrslita við ÍR. Við
vorum einu marki undir þegar 5 sekúnd-
ur voru eftir og boltinn fór út af fyrir aft-
an þeirra mark. Við náðum boltanum
strax og skoruðum jöfnunarmarkið frá
miðju. Síðan töpuðum við reyndar með
einu marki í bráðabana."
Hvert stefnirðu?
„Að atvinnumennsku í Þýskalandi. Það
er engin spuming."
Hvað skiptir mestu máli ef þú ætlar að
ná langt?
„Hugarfarið og skapið. Ég er hroðalega
tapsár og get orðið mjög leiðinlegur ef
við töpum. Það er gott að hafa mikið
keppnisskap en maður verður' að geta
tekið tapi.“
Áttu þeir einhverja fyrirmynd?
„Enga þvílíka hér heima en þó hef ég
alltaf dáðst að Valdimar Grímssyni. Öðr-
um ekki.“
Hvað er skemmtilegast að gera utan
boltans?
„Vera með fjölskyldunni og vinum.“
Hvenær var félagið stofnað og hver
gerði það?
„Það var í mars 1911 en ég veit lítið um
stofnandann.“
Ponrablót Vals
Venður haldið að Hlíðanenda
laugardaginn 20. janúan.
Valsmenn fjölmennum!
50
ValsblaðiO 2000