Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 25

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 25
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 25 una, karlmannspilsið og viðeigandi búnað sem dæmi um það hvernig svæðisbund- in einkenni (í þessu tilviki úr Hálöndunum) urðu á fáum áratugum á fyrri hluta 19. aldar að einhverjum þekktustu táknum heillar þjóðar sem um getur (Trevor-Roper, 1996). Fortíðin er full af dæmum um eftirsóknarverða eða vítaverða breytni fólks og stöð-• ugt er út af þeim lagt. „Til þess eru vítin að varast þau.“ Þetta tengist þeim almenna misskilningi að sagan endurtaki sig og unnt sé að læra af henni beint. Það er aug- ljóslega rangt því tilteknar sögulegar aðstæður geta hvorki endurtekið sig í tíma né rúmi þótt greina megi margvísleg sameiginleg einkenni tímabila. Hins vegar má draga vissa lærdóma af því sem áður hefur gerst. Fortíðin er allt það sem að baki er en það er líka það eina sem samkennir hana frá • öðru í umhverfi okkar. Ákveðin fortíðarþekking er oft nauðsynleg til skilnings á því sem er meðan annað skiptir litlu eða engu máli. Það er til dæmis mikilvægt að þekkja eitthvað til Páls Kolka, héraðslæknis á Blönduósi, vilji maður skilja stofnun Héraðshælis Austur-Húnvetninga að einhverju marki. Þessi dæmi ættu að duga til að sýna að hina endanlegu sögu verður aldrei hægt að skrifa, heldur leitum við til hennar eftir þörfum og nýtum hana til að styrkja jafnt eigin sjálfsvitund sem hina sameiginlegu með öðrum. Saga er sívirkur þáttur í nútíðarskiln- ingi einstaklinga og þjóðfélagshópa, skynjun á henni er söguvitundin sjálf. Af sjálfu leiðir að áhrifavaldarnir eru margir og oft er vant að sjá hverjir eru sterkastir. Eru það sagnfræðingar, fræðirit, sögukennarar og námsbækur – þeir sem koma með vísinda- og námsgreinina að vopni? Eru það fjölmiðlar, kvikmyndir, sögulegar skáldsögur, listgreinar, félagar og fjölskyldur? Eða allir jafnt? Þessum spurningum hefur meðal annars verið reynt að svara með fyrrnefndum rannsóknum á söguvitund unglinga í ólíkum menningarsamfélögum Evrópu en margt er óljóst í þeim fræðum enn. Hitt er alveg skýrt að öflug söguvitund er örugglega ein af styrkustu stoðum skýrrar sjálfsvit- undar og þar með grundvallarþáttur í sjálfsvitund og um leið ímynd samfélaga. grEnndarVitund Þéttbýli var nánast óþekkt á Íslandi um aldir, helst mátti greina það í kringum bisk- upsstólana og í verstöðvum þar sem skammt var til fengsælla fiskimiða. Við upp- haf tuttugustu aldar bjuggu um 20% þjóðarinnar í þéttbýli, við aldarlok var hlutfallið komið í ríflega 93%. Þróunin varð í megindráttum tvíþætt: Annars vegar flutti fólk úr sveitum á nálæga þéttbýlisstaði sem flestir risu við góðar hafnir og í grennd við gjöful fiskimið. Hins vegar varð mikil sókn í höfuðborgarþéttbýlið. Samkvæmt heimasíðu Hagstofu Íslands áttu tæplega 63% landsmanna heima á svæðinu ofan úr Kjós og suður í Hafnarfjörð árið 2007. Ein afleiðing búferlaflutninganna var stofnun átthagafélaga þeirra sem fluttu til höfuðborgarsvæðisins. Allmörg slík voru stofnuð á fjórða áratug tuttugustu aldar og fljótlega komst útgáfa á þeirra vegum á nokkurn rekspöl. Stundum var útgáfan eingöngu á höndum sunnanmanna, stundum í samvinnu við heimamenn sem jafnvel bragi gUðmUndsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.