Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 27

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 27
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 bragi gUðmUndsson 27 undirstöðum þeirrar samvitundar sem bundið hafði íbúa einstakra svæða saman. Við- brögðin urðu um margt fálmkennd. Það fellur ágætlega að þeim orðum Stuarts Hall að tími sé kominn til að líta fremur á menningarlega samvitund sem framleiðslu eða þróun en sem safn sameiginlegra staðreynda og reynslu. Við glímum sífelldlega við að skilgreina okkur, svara því hver við séum, hvað hafi orðið úr okkur og hvað muni verða. Þar með er bæði sjálfsvitund einstaklinganna og samvitund stærri hópa orðin framtíðarvæntingar ekkert síður en fortíðargrunnur. Samvitundin blandar saman og vinnur úr rúminu og tímanum, sögunni og menningunni, sem aftur veldur því að hún tekur stöðugum breytingum (Hall, 1990; Jensen, 2000). Með sama hætti verður grenndarvitundin aldrei ein og óbreytt, allra síst á örum þróunarskeiðum, áleitnari er spurningin um það hvernig birtingarform hennar breytast og hvar áherslurnar liggja hverju sinni. umhVErfisVitund Í Aðalnámskrá grunnskóla, samfélagsgreinar (2007) er umhverfisvitund ein þeirra þriggja vitunda sem sagt er að mikilvægt sé að börn og unglingar tileinki sér við nám í sam- félagsgreinum. Þar er hugtakið skilgreint með því að segja að í því felist þekking á um- hverfinu, umhyggja fyrir því og hæfileikar til að greina samhengi mannlegra athafna og náttúru. Maðurinn hefur ætíð borið tilfinningar í brjósti til umhverfis síns. Stundum ósvikna ást, stundum blendnari tilfinningar, jafnvel hatur. Náttúran setur athöfnum manna skorður og stundum geta hindranir hennar virst óyfirstíganlegar. Oftar leiðir sambúð manns og náttúru þó til virðingar hins fyrrnefnda fyrir sköpunarverkinu. Þá virðingu er ómögulegt að mæla, skynjun verður aldrei í tölum talin. Hún er samt órjúfanlegur hluti af samsömun manns og náttúru og sterkur hlekkur í sjálfsvitund sem samvit- und. Nægir þar að benda á aragrúa lausavísna og kvæða af öllum gerðum sem sett hafa verið saman og gjarnan haldið á lofti, ekki síst í söng. Má þar til dæmis nefna kvæðin „Yndislega ættarjörð“ eftir Sigurð Jónsson frá Arnarvatni, „Skagafjörður“ eftir Matthías Jochumsson og „Svarfaðardalur“ eftir Filippíu Kristjánsdóttur, Hugrúnu. Söngvar af þessu tagi eru vitnisburður um ættjarðarást, trú á heimahagana. Þeir eru því vel fallnir til að vekja samkennd. Umhverfisvitund í þeim skilningi sem við þekkjum er oftast rakin til bókarinnar Silent Spring eftir Rachel Carson, bandarískan líffræðing. Bókin kom út árið 1962 en í henni gerði Carson skefjalausa eiturefnanotkun í landbúnaði að umtalsefni. Í kjölfarið efldust náttúruverndarsamtök að miklum mun og er upphaf nútíma náttúruvernd- arstefnu yfirleitt rakið til nefndrar bókar. Viðvaranir Carson áttu rétt á sér og tímasetning bókar hennar reyndist hárrétt því hún fékk athygli fjölmiðla sem almennings. En hvorki í Bandaríkjunum né á Íslandi var þessi umræða ný. Af íslenskum vettvangi má benda á merka ræðu eins af frum- kvöðlum skipulegrar náttúruverndar hérlendis, Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings, sem hann hélt haustið 1949. Þar sagði hann meðal annars:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.