Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 42

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 42
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/200942 frístUndaheimil i fyrir 6–9 ára börn í reykvískU skólastarfi Kennarar tóku við faglegu skipulagi og framkvæmd þjónustunnar í stað fóstra, sem leitt höfðu starf skóladagheimilanna, og starfið átti að byggjast á „meginsjónarmiðum kennslu og uppeldisstarfs, sem mörkuð eru í 2. gr. grunnskólalaga um fagleg sjón- armið“ (Skólaskrifstofa Reykjavíkur, 1995). Hafa ber í huga að þó að kennarar hafi verið meirihluti starfsmanna fyrstu veturna fór þeim fljótlega fækkandi (Freyja Birg- isdóttir, 1998; Kári Arnórsson, 1993). Því er ljóst að ábyrgð á daglegu starfi hvíldi ekki síður á vaxandi hópi ófaglærðra starfsmanna sem sinntu börnunum í leik og starfi. Ástæður þessarar þróun hafa án efa verið margvíslegar, en m.a. voru uppi raddir um að hlutverk kennara væri að kenna, ekki að sinna dagvistun eða tómstundum. Þá var launakostnaður skólanna töluvert hærri þegar ráðnir voru kennaramenntaðir starfs- menn og virðist sem það hafi skipt máli. Ljóst er að með hugtakinu heilsdagsskóli var verið að vísa til skólans í heild, þ.e. að hver grunnskóli væri heilsdagsskóli. Áhugavert er að skoða hvernig skipt er um hugtök, sum hverfa og önnur koma í staðinn, og gefur það vísbendingar um áherslur stjórn- valda. Í ársskýrslum Fræðslumiðstöðvar (síðar Menntasviðs) er hugtakið heilsdags- skóli lítið notað, en í staðinn eru hugtökin lengd viðvera (Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, e.d.-a) og skóladagvist tekin upp (Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, e.d.-b, e.d.-c, e.d.-d). Ef til vill stafaði það af því að misvísandi hafi þótt að nota orðið skóli um þjónustuna sem börnunum var boðið eftir hefðbundna kennslu, ekki síst eftir að kennaramenntuðum starfsmönnum fór fækkandi. Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi þáverandi minni- hluta, gagnrýndi rekstur heilsdagsskólans harðlega í Morgunblaðinu (19. apríl 1994) og sagði m.a. að heilsdagsskólinn væri ekki skóli heldur gæsla, sem væri ekki nema að litlu leyti tengd hinu daglega starfi skólans. Umsjón með rekstrinum var alfarið á ábyrgð hvers skóla á þessu tímabili og lítið formlegt samráð milli umsjónarmanna skóladagvista um innra starfið. Deildarstjóri rekstrardeildar skólaskrifstofu Reykjavíkurborgar hafði umsjón með miðlægum rekstrarmálum og úrlausn mála, s.s. varðandi húsnæðismál, en strax í upphafi var ljóst að víða þrengdi mjög að starfseminni innan skólanna (Hermann Valsson, 1994). Jafnframt var kennsluráðgjafa á Fræðslumiðstöð falið að skipuleggja fundi með um- sjónarmönnum skóladagvista og standa að fræðslu eftir þörfum og óskum starfs- manna (Skólamálaráð, 1992). Haldnir voru reglulegir fundir yfir skólaárið með um- sjónarmönnum og þar gafst tækifæri til að skiptast á hugmyndum um innra starf og skipulag (Matthildur Guðmundsdóttir, 1997). Dæmi voru um vel heppnað samstarf við einkaskóla, svo sem danskennslu, skipulagt íþróttastarf og blokkflautunám, en þar sem framboð á tómstundastarfi var (og er) mjög mismunandi milli hverfa reyndist mörgum skólum erfitt að koma til móts við ólíkar óskir foreldra þar að lútandi. Könnun á starfsemi heilsdagsskólans árið 1998 bendir til þess að lítið hafi farið fyrir því mikla lista- og menningarstarfi sem áformað hafði verið að bjóða upp á í samvinnu við margs konar einkaskóla (Freyja Birgisdóttir, 1998). Mikill munur var á milli skóla á dag- skrá heilsdagsskólans en áhersla var á frjálsan leik á úti- og innisvæðum eftir langan skóladag, skipulagt starf ýmisskonar og aðstoð við heimanám (Freyja Birgisdóttir, 1998). Víða fór fram öflugt og skapandi starf innan skóladagvistanna sem meðal ann- ars birtist í því að á mörgum stöðum voru haldnar metnaðarfullar sýningar að vori
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.