Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 47

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 47
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 47 kolbrÚn Þ. pálsdóttir Skortur á samræðu um sameiginleg markmið og gildi Starfið á frístundaheimilinu lýtur öðrum lögmálum en kennsla; markmið starfsins eru önnur, það miðast við val barnsins og áhuga þess, að gefa því kost á að leika sér í vinahópi, efla félagstengsl og taka þátt í ólíkum skapandi verkefnum. Áherslum í innra starfi frístundaheimila svipar að miklu leyti til markmiða leikskólans; báðar stofnanir leggja áherslu á frjálsan leik og skapandi starf, á val barnsins og félagslegan þroska þess (Kolbrún Þ. Pálsdóttir, 2007; Menntamálaráðuneytið, 2006b). Ramminn utan um athafnir barnsins er því víðari á frístundaheimilinu en í hefðbundnu skóla- starfi, börnin eru frjálsari að fara á milli leiksvæða, svo sem á milli úti- og innisvæðis. Þessu fylgir að sjálfsögðu líf og fjör í skólahúsnæðinu, órói og hávaði á göngum þegar börn fara á milli svæða, ekki síst þar sem aðstaðan er oft mjög dreifð um skólann. Sá órói sem börnunum fylgir veldur gjarnan togstreitu þar sem kennarar og aðrir starfs- menn skólans sinna frágangi og undirbúningi á meðan starfsemi frístundaheimilis fer fram í skólahúsnæðinu (Kolbrún Þ. Pálsdóttir, 2006). Athyglisverð er 7. grein hús- næðis- og rekstrarsamnings ÍTR og Menntasviðs þar sem tilgreint er að starfsmenn frístundaheimila fari eftir „sömu samskipta-, umgengnis- og vinnureglum og farið er eftir innan viðkomandi skóla, nema samið sé um annað“. Ber þessi grein vott um að skólinn og menning hans eigi að hafa áhrif á þær reglur sem starfsmenn og stjórnend- ur frístundaheimilis setja, vera einhvers konar yfirvald yfir menningu frístundaheim- ilisins. Hafa þarf hugfast að þó að eðlilegt sé að innan skóla og frístundaheimilis ríki sambærilegar kröfur um góða umgengni og almennar samskiptareglur lýtur starfið á frístundaheimilinu öðrum lögmálum en hefðbundið skólastarf. Jóhanna Einarsdóttir (2007) hefur bent á að ýmsir hafi áhyggjur af því að hug- myndafræði grunnskólans sé að færast inn í leikskólann og að leikskólastarfið verði í auknum mæli skólamiðað. Ýmislegt bendir til þess að það sama geti gerst í samstarfi frístundaheimila og skóla, þ.e. að hugmyndafræði og gildi hins hefðbundna skóla- starfs nái yfirhöndinni. Með því að styrkja stöðu frístundaheimila innan skólanna opn- ast möguleiki á því að snúa þróuninni við og efla barnmiðaða hugsun og leik í starfi með yngstu börnum grunnskólans. Langur vinnudagur barna krefst þess að hann sé brotinn upp með fjölbreyttum verkefnum og að hlustað sé eftir röddum barnanna sjálfra við mótun og þróun starfsins. Starf frístundaheimila ætti að njóta viðlíka sjálf- stæðis og starf leikskóla eða grunnskóla. Það þætti undarlegt ef starfsmenn leikskóla yrðu stöðugt að gæta þess að börnin trufluðu ekki aðra starfsemi í sama húsnæði; þeir þyrftu að standa yfir börnunum í fataklefa, sussa á þau og taka tillit til þess að starfs- fólk annarrar stofnunar fundaði eða sæti að störfum í næsta herbergi. Hér virðist því vera tilefni til að huga að sameiginlegum markmiðum skóla og frístundaheimilis, og það er nauðsynlegt að skilgreina sameiginleg gildi og skýra þá hugmyndafræði sem starfað er eftir í skólanum annars vegar og á frístundaheimilinu hins vegar. Samkvæmt húsnæðis- og rekstrarsamningi ÍTR og Menntasviðs er gert ráð fyrir að umsjónarmaður frístundaheimilis sitji samráðsfundi með „aðilum frá skóla til að fá sem bestar upplýsingar um nemendur og þarfir þeirra“ (Húsnæðis- og rekstrarsamn- ingur frístundaheimila og Menntasviðs, 2006). Þó að sumum gæti þótt undarlegt að slíka setningu sé að finna í samningi um húsnæðis- og rekstrarmál, þá er hún eini
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.