Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 54

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 54
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/200954 frístUndaheimil i fyrir 6–9 ára börn í reykvískU skólastarfi ingar, opinn skóli, heildstæð skólastefna, einstaklingsmiðað skólastarf – þessi hugtök eru fag- og áhugafólki um skólamál að góðu kunn og standa fyrir þær helstu stefnur sem einkenna eiga íslenska grunnskóla, þótt ekki séu allir á eitt sáttir um hvernig eigi að ná þeim markmiðum sem hugtökin standa fyrir. Víða á Norðurlöndum starfa frí- stundaleiðbeinendur samhliða kennurum innan skólans og rannsóknir benda til þess að slíkt fyrirkomulag efli fjölbreytni kennsluaðferða og auki vellíðan barna. Skipulag ÍTR á rekstri frístundaheimila í Reykjavík, svo sem gott samstarf milli hverfa og frístundaheimila, öflug fræðsla fyrir starfsmenn og útgáfa fræðslu- og kynn- ingarefnis, bendir til þess að mikill áhugi og metnaður sé fyrir áframhaldandi upp- byggingu fagstarfs meðal starfsmanna. Hinsvegar virðast húsnæðismál frístunda- heimila víða vera skipulögð með óviðunandi hætti. Í 10. gr. æskulýðslaga segir: „Standi ríki, sveitarfélag eða aðrir aðilar fyrir starfsemi sem fellur undir lög þessi skal þess gætt að hún uppfylli lög og reglur um aðgengi, aðstöðu, hollustuhætti og ör- yggisþætti.“ (Æskulýðslög, 2007). Brýnt er að stjórnvöld beiti sér til að tryggja megi fullnægjandi aðstöðu fyrir starfsemina, innan eða utan skólans. Standi vinnuaðstaða kennara í vegi fyrir eðlilegri nýtingu á skólahúsnæðinu er eðlilegt að leitað sé lausna. Til að mynda má benda á að í Finnlandi sinna kennarar gjarnan undirbúningi sínum heima við eftir að kennslu lýkur, og hafa ekki bundna viðveru fram eftir degi í skól- anum eins og íslenskir starfsbræður þeirra (Hafsteinn Karlsson, 2007). Fáist ekki við- unandi aðstaða fyrir starfsemi frístundaheimilis innan skólanna þurfa ráðamenn að horfa til þess möguleika að fjármagna sérstakt húsnæði undir reksturinn. Ekki má það gerast í þriðja sinn að breytingar verði á rekstrinum án þess að reynsla og þekking starfsmanna sé nýtt áfram. Tryggja verður að sú reynsla sem starfsmenn ÍTR búa yfir verði nýtt til að þróa starfið og að markmið og gildi frístundafræðinnar verði ríkjandi innan frístundaheimilisins. Mikilvægt er að stjórnendum skóla og frístundaheimila verði gert kleift að ráða hæfa einstaklinga í fullt starf og að börnin njóti samfelldrar og faglegrar umönnunar allan sinn vinnudag, bæði í skóla og í frístundum. Huga þarf sérstaklega að því hvaða kröfur um menntun eru gerðar til starfsmanna á frístunda- heimilum og hvernig ráðamenn geti sem best tryggt að boðið verði upp á nám við hæfi í samstarfi við háskólana. Miðað við það hvað íslenskt uppeldisstarf hefur sótt margt í skipan mála á Norður- löndunum liggur beint við að horfa þangað, bæði hvað varðar markmið, fyrirkomulag og kröfur um fagmennsku. Á flestum Norðurlandanna hafa verið sett sérstök lög um starfsemi frístundaheimila og skóladagvista og þar býðst börnum úr 5.–7. bekk jafn- framt aðgangur að frístundaklúbbum. Í Danmörku og Svíþjóð hefur starf frístunda- leiðbeinenda þróast samhliða þróun kennarastarfsins, og þar er hlutverk frístunda- leiðbeinandans mikilvægt í skóladegi barna. Niðurstöður erlendra rannsókna sýna að frístundaleiðbeinendur geti gegnt mikilvægu hlutverki í námi og þroska barna, ekki síst þeirra barna sem eiga erfitt með að uppfylla námskröfur. Þá hafa norrænar rannsóknir sýnt að dvöl á frístundaheimili getur auðveldað barninu aðlögun að nýju umhverfi og að mikilvægt sé að efla samstarf frístundaheimilis við skóla og leikskóla um móttöku og aðlögun leikskólabarna. Hér á landi hefur verið lögð vaxandi áhersla á samstarf leik- og grunnskóla (Jóhanna Einarsdóttir, 2007; Menntamálaráðuneytið,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.