Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 61

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 61
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 61 Hafdís guðjónsdóttir jóHanna Karlsdóttir „Látum þúsund blóm blómstra“ Stefnumörkun um skóla án aðgreiningar Rannsókninni sem hér verður greint frá er ætlað að varpa ljósi á stefnu skóla og yfirlýsingar skólayfirvalda um skóla án aðgreiningar út frá alþjóðlegum samþykktum, íslenskum lögum um grunnskóla og aðalnámskrá grunnskóla. Markmið rannsóknarinnar var að skoða stöðuna hérlendis og bera hana saman við stefnu og rannsóknir erlendis um skóla án aðgreiningar til að styrkja umræðu og stefnumörkun í þessum efnum. Upplýsingaöflun fólst í því að skoða stefnuskjöl fjögurra fjölmennustu sveitarfélaga landsins á heimasíðum þeirra og heimasíður 68 grunnskóla í þessum sveitarfélögum. Helstu niðurstöður eru þær að einungis fjórðungur skólanna birtir stefnu um skóla án aðgreiningar en mun fleiri, eða ríflega helmingur, er með stefnu um sérkennslu, sérdeildir og námsver af ýmsu tagi. inn gang ur Íslenskt samfélag hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Í því sam- bandi má nefna tækniþróun, upplýsingastreymi, aukið aðgengi að menntun, fjöl- breyttari störf og að fólki af erlendum uppruna hefur fjölgað mikið hér á landi. Þrátt fyrir breytingar á samfélaginu er erfitt að breyta hefðbundnum skilningi á námi og kennslu og þar með skólastarfi. Viðhorf samfélagsins til skólans breytast hægt, svo og skipulag skólastarfs, og rannsóknir á því eru yfirleitt hefðbundnar (Lankshear, Gee, Knobel og Searle, 1997). Fullan (1993) hefur rannsakað þróunarstarf í skólum vítt og breitt um Bandaríkin og Kanada og komist að þeirri niðurstöðu að jafnvel skólar sem tóku hugmyndum um breytingar fagnandi hafi átt erfitt með að þróa skólastarf og ekki síður að viðhalda þeim breytingum sem átt hafa sér stað. Hann telur að skólarnir og starfið sem þar fer fram séu á byrjunarreit í þeirri viðleitni að mæta þörfum allra nemenda (Fullan, 1993, 1999). Hugmyndir um menntun án aðgreiningar (e. inclusive education) eru viðbrögð við margbreytileika nemenda og kröfunni um að þróa fjölbreytt skólastarf sem kemur til móts við alla nemendur. Í þessari grein fjöllum við um stefnu grunnskóla um menntun án aðgreiningar í ljósi skólanámskráa og skipulags skólastarfs og er hún byggð á rannsókn sem fólst í Uppeldi og menntun 18. árgangur 1. hefti, 2009
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.