Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Síða 72
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/200972
„látUm ÞÚsUnd blóm blómstra“
að orðalagið er nýtt í lögum um grunnskóla frá 12. júní 2008 og þess vegna ekki enn
notað í stefnu grunnskóla þó að það hafi verið algengt í orðræðu um skólamál síðustu
10–15 ár.
Samkvæmt nýsamþykktum grunnskólalögum eiga foreldrar rétt á að velja grunn-
skóla fyrir börn sín, en hann þarf að vera í sveitarfélaginu þar sem fjölskyldan hefur
búsetu (Lög um grunnskóla, 2008). Til að þetta sé raunhæfur möguleiki þurfa upplýs-
ingar um stefnu skólanna að vera foreldrum aðgengilegar. Heimasíður grunnskóla
eru heppilegar í því sambandi og allflestir foreldrar hafa greiðan aðgang að þeim.
Samkvæmt upplýsingum sem þar fást á samanburður á stefnu skóla að vera auðveld-
ur fyrir foreldra. Þó er einn hængur þar á því að erfitt getur verið að finna út undir
hvaða heiti stefna skólans er birt ef hún er ekki nefnd því nafni á upphafssíðu skól-
ans. Ýmist er hana að finna undir heitinu skólanámskrá, námsvísir, einkunnarorð, sýn
skóla eða upplýsingar til foreldra. Þetta getur reynst flókið fyrir foreldra og aðra sem
vilja kynna sér stefnu skóla, því að ósamræmið er mikið.
Lengi vel hefur megináhersla sérkennslu verið sú að vinna með þætti sem nemend-
ur eiga erfitt með og að aðstoða þá við að styrkja sig í námi út frá þeim. Í rannsókninni
kom fram að sumir skólar leggja áherslu á greiningar með allítarlegri lýsingu á ferli og
framkvæmd. Þarna sjáum við mótsögn við hugmyndir um skóla án aðgreiningar þar
sem greiningar hafa tilhneigingu til að leggja áherslu á fötlun eða þá erfiðleika sem
nemendur glíma við (Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2001). Með þróun í átt að skóla og
námi án aðgreiningar breytist áherslan þannig að skólar taka á móti öllum nemendum
á þeirra forsendum og vinna út frá styrkleikum hvers og eins (Clough, 2000; Marlowe
og Page, 2005; Nind, 2005). Menntun án aðgreiningar gerir ráð fyrir upplýsingum sem
gefa heildarmynd af nemandanum (Hafdís Guðjónsdóttir, 2000). Á heimasíðum skól-
anna fundum við litlar vísbendingar um framkvæmd sem byggir á heildrænu mati og
styrkleikum nemenda. Nauðsynlegt er að skoða þessi mál nánar til þess að átta sig á
stöðu þeirra hér á landi og framþróun.
Athyglisvert er að nokkrir skólar sem segjast byggja á stefnu um skóla án aðgrein-
ingar nefna aldrei sérkennslu eða sérúrræði, þess í stað er stefna þeirra og skólanám-
skrá víð og opin þannig að allir nemendur falla vel undir markmið skólans. Lýsingar
á framkvæmd benda til þess að kennsluhættir séu fjölbreyttir og taki mið af einstakl-
ingum en um leið af hópnum sem heild. Í skólanámskrá kemur vel fram hverjum er
kennt, hvar, hvað og hvernig (Tomlinson og McTighe, 2006). Þessir skólar hafa lagt
áherslu á að byggja upp skólasamfélag sem veitir nemendum og kennurum stuðn-
ing.
Hugtakið menntun eða skóli án aðgreiningar er ekki notað í mörgum skólum. Það
má ef til vill skýra með því að það kemur ekki fyrir í grunnskólalögum fyrr en með
nýjum lögum sem tóku gildi í júní 2008. Fram að þessu hefur orðalag verið almennt í
lögum, reglugerðum og aðalnámskrá grunnskóla og það tekið fram að allir nemendur
eigi rétt á skólagöngu í heimaskóla. Byggt hefur verið á Salamanca-yfirlýsingunni frá
árinu 1994 en íslenska hugtakið skóli án aðgreiningar varð til við þýðingu hennar
(Erna Árnadóttir, 1996).