Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 85

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 85
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 85 aðalbJörg maría ólafsdóttir þekkingu með upplýsingaöflun. Slík nálgun er talin leiða til meiri skilnings á við- fangsefninu en aðrar aðferðir, sem sumar byggjast á auðleystum verkefnum sem ekki skilja alltaf eftir mikla þekkingu hjá nemendum (Taylor og Carpenter, 2005). Cason (1998) telur upp þrjú atriði sem hann telur ýta undir námsmöguleika nemenda þegar notuð er gagnvirk margmiðlun. Hann segir að nám sé ferli þekkingaröflunar sem sé andstætt utanbókarnámi og nemendur séu því líklegri til að finna samsvörun í lífs- reynslu sinni með nálgun upplýsingatækninnar en þegar þekkingar sé aflað á annan hátt; í öðru lagi sé mögu leikinn á því að öðlast nýja þekkingu háður umfangi upplýs- inga sem nemandinn geti aflað og virkni þeirrar tækni sem hann noti við upplýsinga- öflunina; og í þriðja lagi sé nemandinn háður þeim aðstæðum sem hann búi við í daglegu lífi og starfi og nám hans og viðfangsefni þurfi að setja í sams konar umhverfi til að hann geti yfirfært þekkinguna yfir í annað samhengi, aðrar námsgreinar (Cason, 1998). Þetta gæti bent til þess að náms umhverfi tölvu- og upplýsingatækni hafi jákvæð áhrif á námsárangur í myndlist (Taylor og Carpenter, 2005). Gott aðgengi að fjölbreyttum skoðunum gerir það að verkum að lesandinn fær ekki uppgefna neina eina sanna merkingu, heldur þarf hann að meta þær upplýsingar sem hann fær og móta sína eigin skoðun. Þannig er hægt að vekja nemendur til umhugs- unar um fagurfræðileg atriði (Taylor, 2004). Gagnrýnin umræða og fagurfræðilegar umræður um listaverk geta leitt til dýpri skilnings á viðfangsefninu. Þess vegna er mikilvægt að hafa aðgang að fjölbreyttum upplýsingum um listaverk sem fjallað er um í listasögukennslu, listgagnrýni og fagurfræðilegum umræðum, þar sem keppst er við að útskýra samtímalistir, tilvist og tilgang listaverksins í fjöl breyttu samhengi (Prater, 2001). Það er mikilvægt að nemendur fái þjálfun í að tjá skoðanir sínar og þjálfa rökhugsun, ekki aðeins í fagurfræði og listum, heldur í öllu námi. aðfErð Í rannsókninni var leitast við að svara því hvernig notkun tölvu- og upplýsinga tækni var háttað í kennslu sex myndlistarkennara í grunnskólum, með hliðsjón af áherslum og markmiðum í aðalnámskrá grunnskóla 1999. Rannsóknin byggist á eigindlegum rannsóknar aðferðum þar sem notað var rann- sóknarsnið tilviksathugana (e. case study) sem talið er henta vel í skólamiðuðum rannsóknum (Hitchcock og Hughes, 1995). Notað var tilgangsstýrt úrtak (e. purposive sampling), sem gerði rannsak anda mögulegt að velja þátttakendur með tilliti til þekkingar þeirra á viðfangsefni rann- sóknarinnar (Silverman, 2000). Send var fyrirspurn á póstlista til rúmlega eitt hundr- að og fimmtíu myndlistarkennara um notkun tölvu- og upplýsingatækni í kennslu í grunnskóla. Ellefu svör bárust, sex af þeim frá kennurum sem notuðu tæknina í kennslu. Óskað var eftir þátttöku þeirra í rannsókninni. Þeir kenndu í misstórum skól- um í þremur skólaumdæmum á landinu. Gagnaöflun fór fram á tímabilinu frá mars til desember 2005. Tekin voru hálf-opin viðtöl (e. semi-structured interview) (Hitchcock og Hughes, 1995). Viðtölin voru tekin á vettvangi kennslunnar, í kennslustofum kennaranna sjálfra. Lagt var upp með
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.