Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 86

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 86
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/200986 „Þetta er spennandi... og gefUr mikla mögUleika“ fyrirfram gefinn spurningaramma sem byggðist á inntaki rannsóknarspurninganna, en svör kennaranna voru þó að nokkru látin ráða framvindu viðtalsins. Viðtölin voru hljóðrituð á segulband og síðan afrituð yfir í tölvutækt form til úrvinnslu. Upplýsinga var einnig aflað með greiningu skrifaðra gagna (Silverman, 2000), þar sem greind voru markmið og áherslur í aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrám skólanna sex, með tilliti til notkunar tölvu- og upplýsingatækni í myndlistar kennslu. Greining og túlkun gagnanna var í samræmi við eigindlegar aðferðir (Silverman, 2000), þar sem rannsóknarspurningar verkefnisins voru lagðar til grundvallar grein- ingunni og niðurstöður flokkaðar eftir áhersluatriðum undir spurninga verkefnisins. Innan þeirrar flokkunar var greint eftir þemum, sumpart fyrirfram gefnum en að hluta upp úr gögnunum. Með greiningu markmiða í aðalnámskrá var skoðað hvernig kennararnir notuðu tölvu- og upplýsingatækni í kennslu sinni með tilliti til markmiða aðalnámskrár. Þannig var leitað viðmiða til að gera niðurstöður viðtalanna trúverðugar. Með því var vísað til þess hvort sá veruleiki sem rannsóknin sýndi stæðist samanburð við þá sýn sem í námskránum felst (Hitchcock og Hughes, 1995). Aðalspurning rannsóknarinnar var: Hvernig koma áherslur aðalnámskrár grunnskóla 1999 á notkun upplýsinga- og • samskiptatækninnar fram í lýsingum á kennslu sex myndlistarkennara? Eftirfarandi undirspurningar voru lagðar til grundvallar: Aðstæður: Hvernig meta myndlistarkennarar aðstæður í skólunum til notkunar • upplýsingatækni í myndlistarkennslu? Hér var litið til skipulags skólastarfsins, aðgengis nemenda að tölvum og hvernig kennarar skipuleggja kennsluna. Aðalnámskrá: Hvert er mat kennaranna sex á markmiðum í aðalnámskrá grunn-• skóla og hvernig koma markmið myndlistarkennslunnar fram í skólanámskrám skólanna sex? Viðbrögð kennaranna við breyttum áherslum í aðalnámskrá grunnskóla gefa hugmyndir um það hvernig þeir vinna úr markmiðum nám- skrárinnar, hvernig tæknin er notuð sem verkfæri til náms og Netið sem upplýs- ingaveita og námsumhverfi kennslunnar. Kennsla: Hvernig er notkun upplýsinga- og samskiptatækni háttað í kennslu • myndlistarkennaranna sex, hver eru áhrif þeirrar notkunar og ástæður þess að kennarar nota tæknina á þann hátt sem þeir gera? Upplýsingar um notkun tölvu- og upplýsingatækni í kennslustundum varpa ljósi á það hvernig kenn- arar skipuleggja kennslu með tilliti til notkunar tækninnar og hvernig tæknin hefur þjónað inntaksþáttum kennslunnar. Þetta varðar áhrif tækninnar á skap- andi vinnu nemenda, hvernig nemendur setja listasöguna í sögulegt og félags- legt samhengi síns tíma með hjálp tækninnar og hvernig þeir nota tæknina við að þjálfa gagnrýna hugsun og meta list á fagurfræðilegan hátt og rökræða merk- ingu og gildi lista. Við greiningu gagna var notað greiningartæki Twinings (Twining, 2003) í þeim tilgangi að greina notkun tölvu- og upplýsingatækni í kennslu þeirra sex kennara sem komu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.