Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 90

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 90
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/200990 „Þetta er spennandi... og gefUr mikla mögUleika“ Notkun tækninnar í kennslustofunni Til að greina notkun tölvu- og upplýsingatækni í kennslu hefur verið hannað grein- ingarlíkan, Computer Practice Framework (CPF), og er líkaninu ætlað að greina hve mikið tölvur eru notaðar í kennslu, í hvaða tilgangi og hvernig þegar upplýsinga - tæknin er notuð sem námstæki (Twining, 2002). Handhægt virðist vera að nota þetta greiningartæki til að greina hvernig notkun tækninnar er háttað í mynd listar kennslu samkvæmt lýsingum þeirra sex kennara sem tóku þátt í rannsókn inni. Ef skoðuð eru áhrif innleiðingar upplýsinga- og samskiptatækni í myndlistar- kennslu með hliðsjón af greiningarviðmiðum Twining (2002) um notkun tækninnar í kennslu kemur ekki beinlínis fram í niðurstöðum rannsóknarinnar hve langan tíma tölvan er í notkun í kennslustundum hjá kennurunum sex, en sá tími er ekki langur. Nemendur virðast ekki fá markvissa þjálfun í notkun tækninnar þannig að það styðji alla þætti námsins. Tölvur eru hvorki notaðar markvisst til að efla færni nemenda né sem námstæki í myndlistarkennslunni. Tveir kennaranna nefna þó vaxandi notkun tölva í hönnunarvinnu verkefna og þróun hugmynda en aðrir virðast nota tæknina eingöngu sem aukaverkefni og oft þegar öðrum viðfangsefnum er lokið, aðallega til að vinna verkefni á Netinu, sem notuð eru til að skerpa á ýmsum þekkingar atriðum myndlistar. Tölvur eru því lítillega notaðar til að styðja við nám. En ekki verður séð að tölvur hafi verið markvisst notaðar sem verkfæri til náms í myndlistar kennslunni, hvorki til útvíkkunar eða umbreytingar á námi. Það verður því ekki séð að notkun tölvu- og upplýsingatækni hafi haft veigamikil áhrif á innihald kennslunnar eða aðferðir því að áherslur virðast vera þær sömu hvort sem notaðar eru tölvur eða ekki við lausn viðfangsefna, ef marka má niðurstöður. Það kemur heldur ekki fram hvort verkefni þar sem tölvur eru notaðar krefjast notkunar tækninnar eða hvort allt eins er hægt að nota önnur verkfæri við lausn þeirra með sama árangri. Þó nefnir einn kennaranna að verkefni sem áður var unnið með hefð- bundnum aðferðum myndlistar hafi öðlast meira gildi þegar tölvur voru notaðar við þróun hugmynda. Kennararnir sögðust líta á tölvur sem eitt verkfærið enn, í viðbót við þau sem fyrir voru, blýant, pensil og fleiri áhöld. Það kom því nokkuð á óvart í niðurstöðum rannsóknar innar að aðeins tveir myndlistar kennarar af sex höfðu lagt fyrir nemendur að teikna myndir í tölvu. Annar sagði enn fremur að það litla sem nemendur teiknuðu í tölvum hjá sér væri í gegnum Listavef Námsgagnastofnunar (Námsgagnastofnun, 2003a). Slíkt hið sama má segja varðandi listasögu kennslu, nem- endur notuðu ekki tæknina í kennslustundum. Kennararnir hafa ekki lagt til hliðar þær kynningar og kennslugögn sem þeir áttu fyrir á glærum og nota þau jöfnum höndum, svo og þær bækur sem til eru í skólanum. En það kom fram í viðtölunum að listasögukennsla hafi átt nokkuð undir högg að sækja vegna þess hve erfitt hafi verið að afla efnis til kennslunnar. Með tölvu- og upp- lýsingatækni hafi sú aðstaða breyst mjög til batnaðar. Þetta styðja aðrar rannsóknir á notkun upplýsingatækni í listasögukennslu (Dobbs, 1998; Macko, 1997). Kennararnir segja auðveldara núna að finna efni til að nota um erlenda listamenn, listastefnur og hvaðeina sem tengist kennslunni, en það gildi auðvitað eingöngu um erlent efni þar sem íslenskt efni er að mestu bundið höfundarrétti. Möguleikar til upplýsinga öflunar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.