Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Síða 111

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Síða 111
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 111 Uppeldi og menntun 18. árgangur 1. hefti, 2009 gEstur guðmundsson Að fara vanbúinn í langferð – Ný framhaldsskólalög Fræðasamfélagið hefur verið þögult um íslenska framhaldsskólann og væntanlega þýðingu framhaldsskólalaga frá 2008 (Lög um framhaldsskóla, 2008), enda hafa fræði- menn á litlu að byggja. Fáar og brotakenndar rannsóknir er að finna á starfsemi fram- haldsskólanna (Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2007) og opinber skýrslugerð veitir litlar upplýsingar um innra starf þeirra. Nú stendur hins vegar fyrir dyrum róttæk breyting á starfi framhaldsskóla, og hér verður gerð tilraun til að meta hana og veita ráð um mótun hennar, á grundvelli þess sem við teljum okkur vita um framhaldsskólana. Þegar frumvarp til nýrra laga um framhaldsskóla var lagt fram árið 2007 fylgdi því engin úttekt á árangri og vandamálum á skólastiginu, né þeim verkefnum sem bíða þess (sjá frumvarp og greinargerð með frumvarpi). Fjölmargar umsagnir bárust um frumvarpið en þær tjáðu að langmestu leyti hagsmuni einstakra hópa og stofnana og leiddu ekki, fremur en viðbrögð þingsins, til breiðari umræðu um stöðu, horfur og markmið framhaldsskóla (sjá nefndarálit meirihluta og minnihluta menntamála- nefndar ásamt fylgiskjölum). Er þetta skýrt dæmi um þau ófullnægjandi vinnubrögð við lagasetningu og umbætur sem eru svo snar þáttur í óheillaferð íslensks samfélags að undanförnu. Það gerir ekki framtíð framhaldsskólans skýrari að nýr menntamálaráðherra kemur úr öðrum þeirra flokka sem lögðust gegn samþykkt laganna. Veigamikill þáttur hinna nýju laga felst í tilfærslu valds frá Alþingi og starfsgreina- ráðum til menntamálaráðherra og -ráðuneytis, þó með þeim hætti að einstakir skólar eiga að setja sér skólanámskrár, en sækja staðfestingu hennar til ráðherra. Annar veigamikill þáttur er áhersla á jafnstöðu iðn- og verknáms við bóknám, bæði hvað varðar gæði náms og að auðveldara verði að halda áfram til stúdentsprófs að loknu starfsnámi. Framhaldsskólar munu áfram þjóna því tvöfalda hlutverki að sjá um starfsnám og um undirbúning undir nám á háskólastigi en jafnframt gera lögin ráð fyrir nýju fram- haldsskólaprófi, sem lokið verði eftir eitt og hálft til tvö ár, og geti slíkt próf bæði verið sjálfstæð námslok og skref í átt að stúdents- eða starfsréttindaprófi. Má segja að með framhaldsskólaprófinu sé verið að endurvekja gamla gagnfræðaprófið, en að þessu sinni með skýrum möguleikum allra á frekara námi. Lögin kveða ekki nema að litlu leyti á um námslengd heldur verður hún mestan part ráðin í þeim dansi sem ráðu-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.