Búnaðarrit - 01.01.1998, Page 13
BÚNAÐARRIT 1998
Mynd 3. Útgjöld ríkissjóðs til
landbúnaðar 1993-1998 (% af heild).
Heimild: Þjóðhagsstofnun.
* Fjárlög 1998
voru samþykkt búnaðarlög, nr. 70/1998.
Þau leysa af hólmi eldri lög um búfjárrækt
frá 1989, jarðræktarlög frá 1987 og búfjár-
ræktarlög frá 1973. 1 lögunum er kveðið á
um að landbúnaðarráðherra fari með
yfirstjórn þeirra mála sem undir lögin falla
og að hann geri samning við Bændasamtök
Islands til fimm ára í senn um verkefni
samkvæmt lögunum og framlög til þeirra.
Þar skal m.a. kveða á um framlög til
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins vegna
atvinnuuppbyggingar í sveitum og verkefna
sem stuðla að aukinni framleiðni í íslensk-
um landbúnaði. Samningurinn verði endur-
skoðaður og framlengdur annað hvert ár.
Ríkissjóður mun veita framlög til verkefna á
sviði jarðabóta, búfjárræktar og leiðbein-
ingastarfsemi. Bændasamtök Islands hafa á
hendi faglega og fjárhagslega umsjón þeirra
verkefna sem samið er um og annast fram-
kvæmd þeirra nema öðruvísi sé um samið
eða ákveðið með lögum. Með búnaðar-
lögum er Bændasamtökunum Islands einnig
falin fagleg umsjón með leiðbeiningum til
bænda en héraðsráðunautar starfi hjá bún-
aðarsamböndum og leiðbeiningamiðstöðv-
um, sem sinni faglegum leiðbeiningum til
bænda. Fagráð skulu starfa fyrir hverja bú-
grein og á einstökum fagsviðum og skulu
m.a. móta stefnu í kynbótum og þróunar-
starfi hverrar búgreinar, skilgreina rækt-
unarmarkmið og móta tillögur um stefnu í
fræðslumálum og rannsóknum búgreinar-
innar.
I ákvæðum til bráðabirgða er land-
búnaðarráðherra veitt heimild til að leita
eftir samningum við bændur um greiðslur á
sérstökum framlögum vegna framkvæmda á
lögbýlum sem teknar voru út og samþykktar
af héraðsráðunautum á árunum 1992 til
1997 en ákvæði búnaðarlaga gilda um
framkvæmdir á árinu 1998. Um samninga
við bændur verði eftirfarandi reglum fylgt:
Ríkissjóður mun verja 50 millj. kr. hvert ár
á fjárlögum áranna 1998, 1999 og 2000 og
35 millj. kr. á árunum 2001 og 2002 hvort
ár til efnda á samningum.
Þá voru með lögum nr. 69/1998 gerðar
11