Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.01.1998, Page 36

Búnaðarrit - 01.01.1998, Page 36
BÚNAÐARRIT 1998 tilraunastigi og því ekki fullmótað enn sem komið er. Niðurstöður fram til þessa lofa þó góðu um framhaldið og þegar er farið að nota þær, þó gera verði ráð fyrir að sú notkun verði almennari og öruggari í framtíðinni. Haustið 1998 tóku 257 bú þátt í þessum rannsóknum og alls voru dæmdir 1.429 hópar. Á vegum búnaðarsamband- anna voru haustið 1998 skráðar ómsjár- mælingar á 7.360 hrútlömbum og 28.496 gimbrum. Sauðfjársæðingar gegna veigamiklu hlut- verki við dreifmgu erfðaefnis um landið. I desember 1998 voru starfræktar tvær sauð- fjársæðingastöðvar. Þaðan voru sæddar sam- tals 20.000 ær sem eru verulega fleiri ær en verið hefur um langt árabil. Framleiðsla og sala Framleiðsla kindakjöts hefur farið minnk- andi um nálega 1-3% á ári undanfarin ár. Árið 1998 varð framleiðsla kindakjöts 8.176 tonn en það er aukning um 3,5% miðað við árið 1997. Dilkakjötsframleiðslan varð 7.921 tonn en kjöt af veturgömlu og fullorðnu 885 tonn. Hlutfallslega varð meiri aukning í framleiðslu kjöts af fullorðnu fé og má eflaust skýra það að nokkru með að engin útflutningsskylda var á kjöti af fullorðnu fé í haustslátrun haustið 1998 en svo hefur verið undanfarin ár. Hefðbundin sauðfjárslátrun stendur yfir frá miðjum september og fram yfir miðjan október. 1 kjölfar samnings um framleiðslu sauðfjár- afurða, sem gerður var í október 1995, var með sérstökum aukagreiðslum hvatt til slátrunar utan hefðbundins slátrunartíma. Árið 1998 voru 583 tonn af kjöti framleidd utan hefðbundinnar sláturtíðar eða um 7% af framleiðslu lambakjöts. Mestur hluti þessa kjöts er seldur ferskur. Innvegin ull árið 1998 var 667 tonn en var 715 tonn árið áður. Sala kindakjöts innanlands árið 1998 var 7.027 tonn, þar af var lambakjöt 6.276 tonn en kjöt af fullorðnu 751 tonn, eða samtals 25,7 kg á íbúa. Þetta er 309 tonnum eða 4,6% meiri sala en árið áður. Hámarki náði kindakjötssalan árið 1982 en þá voru seld 10.916 tonn eða 46,7 kg á hvern íbúa. Hlutdeild kindakjöts í heildarkjötneyslu landsmanna árið 1998 var 40,0%. Birgðir kindakjöts jukust um 1,9% frá ársbyrjun til ársloka og voru 5.607 tonn hinn 31. desember 1998. I þeim birgðum var meðtalið það kjöt sem flytja átti út samkvæmt útflutningsskyldu á árinu 1999. Síðustu tvö ár hafa birgðir af kindakjöti í upphafi og lok ársins verið minni en um árabil og svarað til rúmlega 9 mánaða sölu á innanlandsmarkaði. Framleiðsla og sala sauðfjárafurða innan- lands árin 1994-1998 er sýnd í töflu 16. Tafla 16. Framleiðsla og sala sauðfjárafurða 1994-1998, kg. Framleiðsla kjöt Sala kjöt Sala kjöts á íbúa Framleiðsla ull 1994 8.797.748 7.224.341 27,2 693.883 1995 8.690.243 7.144.606 26,7 844.133 1996 8.131.000 6.941.458 25,8 726.504 1997 7.903.166 6.718.442 24,8 715.199 1998 8.176.608 7.026.945 25,7 666.747 Heimild: Framleiösluráö landbúnaðarins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.