Búnaðarrit - 01.01.1998, Blaðsíða 37
BÚNAÐARRIT 1998
Útflutningur
Útflutningur kindakjöts árið 1998 var 794
tonn en var 1.047 tonn árið áður. Út-
flutningur kindakjöts hefur verið 1.000-
2.000 tonn árlega undanfarinn áratug en
mestur var hann árið 1979 en þá voru flutt
út 5.052 tonn. Helstu útflutningslönd hafa
jafnan verið Norðurlöndin en samkvæmt
verslunarskýrslum Hagstofu Islands var
kindakjöt flutt út til 15 landa árið 1998.
Mikilvægustu viðskiptalöndin með tilliti til
verðmætis eru sýnd í töflu 17.
Tafla 17. Útflutningur á kindakjöti
1998.
Tonn Þús. kr.
Færeyjar 388 94.164
Bretland 188 44.127
Danmörk 27 14.505
Belgía 19 13.083
Japan 88 12.062
Önnur lönd 84 15.438
Samtals 794 193.379
Heimild: Hagstofa íslands.
Meðal útflutningsverð (fob) var um kr.
219 á kg. Af þeim löndum sem kaupa yfir
10 tonnum af kjöti fékkst hæsta nteðal-
verðið í Belgíu, kr. 689 á kg. Megnið af
útflutningi þangað eru verðmætustu hlutar
skrokksins, þ.e. hryggir, læri og lamba-
vöðvar.
Verðlagsmál
Frá áramótum til ágústloka 1998 var kinda-
kjöt verðlagt af Sexmannanefnd. Verð
hækkaði unt 1,7% í byrjun árs 1998 vegna
breytinga á fyrirkomulagi í innheimtu sjóða-
gjalda. Meðalverð frá afurðastöð var ákveðið
kr. 225,25 á kg en beingreiðslur, sem eru
föst heildarfjárhæð, eru greiddar til fram-
leiðenda í hlutfalli við greiðslumark þeirra í
ærgildum. Nýr verðlagsgrundvöllur var gef-
inn út 2. mars 1998 en þá tók gildi nýtt
kjötmat, s.k. „EUROP“-kjötmat. Þetta kjöt-
mat er sambærilegt við það sent notað er í
löndum ESB. Við breytinguna fjölgaði
gæðaflokkum dilkakjöts úr 7 í 30 og
gæðaflokkum kjöts af fullorðnu úr 8 í 12.
Með breytingu á búvörulögum sem sam-
þykktar voru á Alþingi vorið 1998 var
ákveðið að afnema opinbera verðlagningu
kindakjöti frá og með 1. september 1998.
Landsamtökum sauðfjárbænda var jafn-
framt heimilað að gefa út viðmiðunarverð
fyrir sauðfjárafurðir. Þessi heimild var nýtt
1. september 1998 og hækkaði verð á
dilkakjöti um 1% en kjöt af fullorðnu unt
20% og fengu bændur uppgjör fyrir haust-
slátrun eftir viðmiðunarverðinu. 1 ljós kom
að í kjölfar nýs kjötmats var nokkur
breytileiki í mati milli sláturhúsa en að
teknu tilliti til skiptingar eftir gæðaflokltum
varð meðalverð dilkakjöts í haustslátrun kr.
237,31 á kg. Meðalverð á kindakjöti til
framleiðenda miðað við verðlagsgrund-
35