Búnaðarrit - 01.01.1998, Side 53
BÚNAÐARRIT 1998
voru hins vegar flutt út 2.499 hross að
verðmæti 211 mill. króna. Verulegur sam-
dráttur hefur því orðið í útflutningi hrossa
og má að mestu rekja hann til útflutn-
ingsbanns sem var í gildi fyrrihluta ársins
vegna hrossapestarinnar sem þá herjaði.
Eftir að útflutningsbanni var aflétt náði
útflutningurinn sér nokkuð á strik aftur en
engu að síður er meira en fjórðungs
samdráttur í fjölda útfluttra hrossa á árinu
1998 staðreynd. Meðalverð útfluttra hrossa
var á árinu 1998 heldur hærra en árið áður
og því varð fjárhagstjón útflytjenda ekki eins
tilfinnanlegt og ella hefði verið en sölu-
verðmæti útfluttra hrossa var árið 1998 tæp-
um 13% minna en árið áður. Alls voru flutt
út lífhross til 15 landa, þar af flest til
Svíþjóðar, 516, að verðmæti 53,5 millj. kr.
fob. Tafla 36 sýnir útflutning lífhross árið
1998 eftir löndum.
Tafla 36. Útflutningur á lífhrossum
1998.
Fjöldi Verðmæti þús. kr. fob
Sviþjóð 516 53.538
Þýskaland 489 45.056
Danmörk 233 26.233
Bandaríkin 112 21.172
Sviss 113 14.383
Noregur 77 5.919
Önnur lönd 280 17.760
Samtals 1.820 184.061
Heimild: Hagstofa íslands.
Samkvæmt verðmætaáætlun Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins árið 1998 eru út-
flutningsverðmæti lífhrossa talin kr. 327,6
nrillj. Undanfarin ár hefur sala lífhrossa
verið nokkuð stöðug eða um 2.500-2.700
hross á ári þar til árið 1998 að verulegur
samdráttur varð eins og að framan segir.
Tafla 37 sýnir útflutning lífltrossa árin
1994-1998.
Tafla 37. Útflutningur lífhrossa 1994-
1998.
Útflutt lifhross stk. Útflutnings- verðm. fob þús. kr. Meðalverð kr.
1994 2.671 204.193 76.448
1995 2.515 220.668 87.741
1996 2.735 246.373 90.082
1997 2.499 210.972 84.423
1998 1.820 184.061 101.132
Heimild: Hagstofa íslands.
Markaður fyrir reið- og keppnishross hér
innanlands hefur náð sér nokkuð upp í takt
við bættan hag í þjóðfélaginu og aukinn
áhuga á hestamennsku. Verð á hrossum
virðist fara hækkandi. Samkvæmt verð-
mætaáætlun Framleiðsluráðs landbúnaðar-
ins árið 1997 var meðalverð hrossa á innan-
landsmarkaði talið vera kr. 135.000 á hross
en kr. 150.000 árið 1998. Talið er að árlega
séu um 1.500 lífhross seld til þéttbýlisbúa og
árið 1998 var verðmæti þeirra talið kr. 225
millj.
Framleiðsla og sala hrossakjöts hefur
dregist saman undanfarin ár. Árið 1998 var
nokkur aukning í framleiðslu og varð hún
793 tonn. Það er 9,4% aukning miðað við
árið 1997 þegar framleiðslan var 725 tonn.
Miðað við árið 1994 hefur framleiðsla
hrossakjöts dregist saman um 16 tonn eða
2,0%.
Talsverður samdráttur varð í sölu hrossa-
kjöts innanlands árið 1998 eins og verið
hefur um árabil. Alls seldust 527 tonn en
það svarar til 3,0% af heildarkjötsölu í
landinu. Þetta er 27 tonnum minni sala en
árið áður eða sölusamdráttur um 4,8%.
Miðað við árið 1994 hefur sala hrossakjöts
innanlands dregist saman um 33 tonn eða
5,9%.
Á tímabilinu 1994 til 1998 hefur neysla
51