Búnaðarrit - 01.01.1998, Blaðsíða 81
BÚNAÐARRIT 1998
förnum árum hefur lítið verið um fjár-
festingar í landbúnaði og byggingar útihúsa
en umtalsverð aukning varð á árunum 1997
og 1998 bæði við byggingar og endurbætur
fjósa og fjárhúsa. Alls hafði bygginga-
þjónustan 70 verkefni með höndum á árinu.
Nautastöðvar
Bændasamtökin reka nautastöð á Hvanneyri
og uppeldisstöð nauta í Þorleifskoti í
Hraungerðishreppi. Tilgangurinn er að
framleiða og dreifa sæði úr úrvalsnautum til
kynbóta á kúastofninum en jafnframt er
dreift holdanautasæði frá Nautastöð Lands-
sambands kúabænda í Hrísey. Á árinu voru
sendir út 50 þús. sæðisskammtar frá Nauta-
stöðinni á Hvanneyri.
Rekstur
Tekjur Bændasamtaka íslands eru einkum af
þrennum toga:
• Hluti búnaðargjalds sem er veltutengt
gjald og er lagt á afurðaverð til bænda.
Tekjur BI af gjaldinu eru misháar eftir
búgreinum (0,125-0,325% af afurða-
verði).
• Framlög úr ríkissjóði til reksturs leið-
beininga- og fagþjónustu og kynbóta-
starfsemi.
• Eigin tekjur af útgáfu, seldri þjónustu og
eignum.
Árið 1998 námu heildartekjur samtak-
anna 238,0 millj. kr. að frátöldum tekjum af
sölu fasteigna en rekstrargjöld voru 249,7
millj. kr. Þar fyrir utan er rekstur nauta-
stöðvanna sem skiluðu 28,6 millj. kr.
tekjum en gjöldin voru 29,8 millj. kr.
Skýr aðskilnaður er í bókhaldi milli
félagslegrar starfsemi og leiðbeiningaþjón-
ustu, en samandregnar niðurstöður úr árs-
reikningi eru sýndar í meðfylgjandi yfirliti.
Rekstraryfirlit Bændasamtaka Islands
1997
Félagsleg starfsemi
Tekjur: þús. kr.
Búnaðargjald 41.857
Seld þjónusta 19.251
Tekjur af útgáfu 39.833
Fjármunatekjur 6.905
Aðrar tekjur (fasteignir o.fl.) 14,967
122.8F3
Gjöld alls: 115.830
Leiðbeiningaþjónusta
Tekjur:
Úr ríkissjóði 101.700
Framlög úr þróunar- og
rannsóknarsjóðum 4.027
Seld þjónusta og aðrar tekjur 9.465
115.192
Gjöld alls: 133.832
L
79