Fréttablaðið - 25.03.2010, Síða 41
FIMMTUDAGUR 25. mars 2010 5
MATUR OG GISTING
Upplýsingar á www.einarben.is og á www.smakkarinn.is
Daglega er boðið upp á ljúffenga grænmetis-, kjúklinga- og fiskrétti til að
taka með sér eða njóta á staðnum. Matseðill okkar er endurnýjaður
vikulega og er aðgengilegur á heimasíðu okkar, www.kruska.is
VEITINGASTAÐUR - VERSLUN - TAKEAWAY
Suðurlandsbraut 12 - Sími 557 5880 - www.kruska.is
Opið alla virka daga frá 11:00 til 20:00
HÁLFUR RÉTTUR
Í BOÐI EFTIR KL. 14
GRÆNMETISRÉTTIR - SÚPUR - SALÖT - FISKRÉTTIR - KJÚKLINGARÉTTIR
Nú býðst þér hálfur skammtur af rétti dagsins
eftir klukkan 14 daglega á aðeins 1.050 kr. 1.050 kr.
Hálfur skammtur
„Upphaflega var opnuð hér heima-
gisting fyrir fimmtán árum og þá
vorum við langt fyrir utan þéttbýl-
ið,“ segir Stefán Ágústsson, rekstr-
arstjóri gistiheimilisins Kríuness.
„Björn Ingi, sonur minn, byggði hér
einbýlishús en fyrir var timburhús
sem hann hafði keypt og var far-
inn að leigja út. Svo kviknaði óvart
í hjá leigjandanum og húsið brann
en tryggingarnar vildu ekkert
borga nema byggt yrði upp aftur
svo strákurinn byggði hús með
fjórum tveggja manna herbergj-
um og fjölskyldan gerðist þátttak-
andi í Ferðaþjónustu bænda. Síðan
hefur reksturinn undið upp á sig og
meðal þess sem bæst hefur við eru
þrír misstórir fundarsalir.“
Húsakynni Kríuness eru vel búin
og hlýleg. Í setustofunni er auðvelt
að láta fara vel um sig í þægileg-
um húsgögnum við arininn. Ekki
spillir útsýnið yfir Elliðavatnið,
rammað inn af Akrafjalli, Esjunni
og Bláfjöllunum. Öll herbergin
eru með baði og auk tíu tveggja
eða þriggja manna herbergja eru
þarna tvær svítur. Morgunverð-
arhlaðborð bíður næturgesta og
einnig er hægt að panta hádegis-
og kvöldverð. „Við reynum að hafa
ekki of mikinn veitingahúsabrag á
matnum, heldur hafa hann á heim-
ilislegum nótum,“ segir Stefán. Að
hans sögn eru ráðstefnur, fundir
eða námskeið nánast á hverjum
degi yfir veturinn. „Fyrirtækjum
á höfuðborgarsvæðinu þykir það
dálítið spennandi kostur að geta
fundað á friðsælum stað og vera
þó ekki nema fimmtán mínútur á
leiðinni þangað.“
Stefán segir markmiðið að halda
svæðinu í kring sem náttúruleg-
ustu. „Við erum landvörslumenn,“
segir hann „Meðal annars reynum
við að vernda þetta litla kríuvarp
sem nesið ber nafn sitt af.“
gun@frettabladid.is
Allt byrjaði með bruna
Þótt Kríunes við Elliðavatn geti varla talist vel geymt leyndarmál lengur vegna vinsælda sinna, þá er það
enn rómantískur og heillandi staður utan skarkala borgarlífsins. Þar er bæði gisting og matur í boði.
Úr annarri svítunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stefán og Helga Björnsdóttir, eiginkona hans, búa í Kríunesi.
Hér er Helga í eldhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Búið er að byggja við oftar en einu sinni frá byrjun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Borðsalurinn í Kríunesi hefur mexíkóskt
yfirbragð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Stefán í setustofunni. Viðarklæddir veggir hennar skapa hlýlegan blæ og gegnum sjónauka er auðvelt að fylgjast með fuglalífi
Elliðavatns. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI