Fréttablaðið - 24.04.2010, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 24. apríl 2010 19
Nú er liðið á annað ár síðan ég vakti athygli á nauðsyn þess að
stofna nýtt lýðveldi á Íslandi með
alveg nýrri stjórnarskrá (fyrst í
Silfri Egils 11.1.2009 og svo í grein
í Fréttablaðinu 14.1.2009), – og
benti á fordæmi Frakka. Skýrsla
rannsóknarnefndar Alþingis stað-
festir nú hversu hörmulega er
komið fyrir okkur sem þjóð. Í raun
og veru má segja, að bankahrunið
(fjármálakreppan) sé ekki alvar-
legast, heldur hrun traustsins. Allt
brást. Spillingin hefur verið svo
yfirgengileg, að okkur datt ekki í
hug að svo gæti verið. Og nú þegar
þetta hefur verið birt okkur áþreif-
anlega og opinberlega á ábyrg-
an hátt, treystir þjóðin hvorki
stjórnvöldum né eftirlitsstofnun-
um: ekki Alþingi, ekki ríkisstjórn,
ekki forseta Íslands. Þar með er
stjórnkerfið, sjálft lýðveldið í
raun hrunið. Nú ætti að blasa við
öllum hugsandi mönnum, að við
getum ekki haldið áfram á sömu
braut. Við verðum blátt áfram að
hugsa grundvöll tilveru þjóðarinn-
ar upp á nýtt. Það verður ekki gert
með neinni sýndarmennsku, smá-
skammtalækningum eða pólitísk-
um heftiplástri. Þegar stjórnmála-
menn bregðast, verður þjóðin sjálf
að taka í taumana.
Þess vegna er okkur nú lífs-
nauðsyn að kjósa stjórnlagaþing
sem allra fyrst. Ekki til að lappa
upp á gallaða stjórnarskrá, heldur
til að semja nýja, alveg frá byrj-
un. Það eru einu skynsamlegu við-
brögðin. Það var gert í Þýskalandi
eftir hrun nasismans, það var
gert í Suður-Afríku þegar mann-
fjandsamleg kynþáttastefna beið
loks ósigur. Og það þurfum við að
gera í okkar ósigri eftir hrun hinn-
ar ómanneskjulegu frjálshyggju.
Það er eina leið okkar til að end-
urheimta reisn okkar sem þjóð
og orðstír okkar meðal annarra
þjóða. Til þessa stjórnlagaþings
verður að vanda sérstaklega. Þar
má enginn þingmaður sitja, enda
má segja að þeir beri ansi margir
mikla ábyrgð á því hvernig komið
er og séu því hluti af vandanum.
Þótt við blasi ýmsir þættir sem
taka verður á í nýrri stjórnarskrá,
eins og til dæmis hrein aðgrein-
ing hins þrískipta valds, löggjafar-
valds, framkvæmdarvalds og
dómsvalds, þá er fjölmargt annað
sem þarf að huga að vandlega. Það
verður því vandasamt hlutverk
sem væntanlegu stjórnlagaþingi
er falið. Þess vegna þarf þjóðin að
vera árvökul þegar hún velur sér
fulltrúa til þessa erfiða og flókna
verkefnis sem svo mikið veltur á
fyrir framtíð okkar. Brýnt er að
ekkert verði ógert látið til þess að
stjórnlagaþingið takist vel og skili
þjóðinni vandaðri stjórnarskrá til
góðrar leiðsagnar til nýrrar og
betri framtíðar.
Þeir brugðust sem síst skyldi
og trúað var fyrir þjóðargæslu,
hvorki meira né minna. Þeim mun
ekki veitast auðvelt að ávinna sér
traust. En sem betur fer á þjóð
okkar fjölda góðra og vandaðra
manna og kvenna sem er vel fær
um að varða nýjan veg út úr ösku-
þoku gróðahyggjunnar. Margt af
því fólki mun ekki trana sér fram,
en það þurfum við nú að finna og
leiða til öndvegis í nýrri endur-
reisn íslenskrar þjóðar.
Göngum nú einu sinni hreint
til verks. Hreinsum rækilega til í
rústum þess lýðveldis sem hrundi
– og stofnum svo nýtt lýðveldi með
nýrri stjórnarskrá.
Ný stjórnarskrá –
nýtt lýðveldi
Stjórnarskráin
Njörður P.
Njarðvík
Rithöfundur og
prófessor emeritus við
Háskóla Íslands
Brýnt er að ekkert verði ógert látið til
þess að stjórnlagaþingið takist vel … 39.950,-
SPARIÐ
25.000
SPARIÐ
2.000
SUMAR-
TILBOÐ!
FRÁBÆR
HELGAR-
TILBOÐ!
2.995,-
645,-
50%
AFSLÁT
TUR
Reykjanesb
æ
Rey
kjavík
Nýtt og be
tra
hjólbarða
verkstæði
S: 590 200
6 / 590 200
7
Hjólbarðaverkstæði Bílabúð Benna - Tangarhöfða 8 - S: 590 2000 / Nesdekk - Fiskislóð - sími 561 4110 / Nesdekk - Reykjanesbæ - sími 420 3333
Sumardekkin færðu hjá okkur! Vaxtalaus lán frá Visa og Mastercard í allt að 12 mánuði
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…