Fréttablaðið - 24.04.2010, Page 34
MENNING 4
Bókmenntir ★★★★
Kvæðaúrval
Kristján Karlsson
Úrval ljóða úr öllum níu ljóðabókum
skáldsins frumsömdum. Frá þeirri
elstu (1976) til þeirrar yngstu (2003).
Ljóðin eru valin af Magnúsi Sigurðs-
syni sem einnig ritar prýðilegan inn-
gang; fræðandi, skýran og skilmerki-
legan. Eiguleg bók og tilvalin þeim
lesendum sem ekki hafa árætt að lesa
(til þrautar) kvæði skáldsins og lifa
sig inn í einstakan ljóðheim Kristjáns
Karlssonar, sem Magnús, með góðum
rökum og ekki að ósekju, skipar á bekk
með öndvegisskáldunum (síðmódern-
istunum) Sigfúsi Daðasyni, Hann-
esi Péturssyni, Þorsteini frá Hamri
og Matthíasi Johannessen – og ber
óspart saman við enskumælandi stór-
skáld/frumkvöðla módernismans:
Eliot, Pound og Wallace Stevens (og
hefði mátt bæta T.E. Hulme við – sem
Eliot kallar „boðbera nýs viðhorfs sem
nefna ætti anda tuttugustu aldarinn-
ar“).
Það er lífseig skoðun og útbreidd að
kvæði Kristjáns séu seintekin (torskil-
in) og vart meðtækileg, jafnvel óskilj-
anleg, öðrum en „hálærðum“ lesend-
um: inngangurinn mælir gegn þeirri
mýtu af rökfestu og með sannfærandi
málflutningi og dæmum. Val kvæð-
anna er vísvitandi lóð á sömu vog-
arskál og leggur inngangi lið við að
ryðja þeirri hindrun úr vegi. Vonandi
að sem flestir bíti á agnið: skáldskap-
ur Kristjáns Karlssonar er heillandi
veröld sem á vinsældir skilið engu
síður en lof og prís. „Eina aðferðin
Rýnt í eðlið
Annað kvöld verður önnur frumsýningin á tveimur
sólarhringum í Norðurpólnum, þar sem leikhópar hafa
hreiðrað um sig í iðnaðarhúsnæði yst á Seltjarnarnesi í
hinum fornu Bygggörðum. Fátæka leikhúsið frumsýn-
ir á sunnudagskvöld verkið Tveir fátækir pólskumæl-
andi Rúmenar eftir Dorota Maslowska.
Um hávetur ferðuðust tveir fátækir pólskumælandi
Rúmenar á puttanum um pólska sveit. Þeir skildu eftir
sig sviðna jörð hvert sem þeir fóru, en ekki eru þó allir
sammála um hvað gerðist í raun og veru, hvað réði
í þeim átökum sem þau lentu í. Verkinu er lýst sem
„Ofbeldisfullu sýrutrippi í gegnum Pólland nútímans
sem er einskonar samblanda af ferðalagi Maríu meyj-
ar og Jóseps til Betlehem, Natural Born Killers, Bad
lands og hinni kunnu frönsku kvikmynd, Ríddu mér.
Svo er, um leið og litið er til endaloka lánleysingja af
hvíta tjaldinu, kinkað kolli náðarsamlegast til þeirra
Bertholts Brecht og Samuels Beckett í fréttatilkynn-
ingum þessa fátæka leikhúss.
Verkið er eftir Dorota Maslowska, fremsta unga rit-
höfund Póllands í dag. Það sló rækilega í gegn þegar
það var frumsýnt í Póllandi og hefur í kjölfarið verið
sýnt um víða veröld.
Sýningin er sett upp án allra styrkja sem er að
verða fátítt hér á landi þar sem framboð leiksýninga
er alfarið tekið að ráðast af því hvaða kommissar-
ar leikhúsa og úthlutunarnenfda ráða framboðinu og
stilla það af. Sviðsetningin er í stjórn Heiðars Sumar-
liðasonar, sem er fæddur 1979. Hann útskrifaðist úr
leiklistarfræði og framkvæmd frá Listháskóla Íslands
2008 og er með MA-gráðu í leikstjórn frá East 15 í
London 2009. Heiðar hefur áður leikstýrt Heteróhetj-
ur: Með fullri virðingu fyrir Ashley Cole (2007) og
Rándýr (2009). Heiðar er höfundur leikritsins Rautt
brennur fyrir, sem sýnt var í Borgarleikhúsinu á síð-
asta ári.
Pólskumælandi Rúmenarnir eru leiknir af Hannesi
Óla Ágústssyni (1981) og Magneu Björk Valdimars-
dóttur (1979).
Hannes útskrifaðist úr leiklistardeild í vor sem leið.
Síðan þá hefur hann farið með aðalhlutverk í Rándýr,
Munaðarlaus og Hnykli. Hannes lék einnig stór hlut-
verk í áramótaskaupinu.
Magnea útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið
2006. Síðan þá hefur hún m.a. leikið í Draumalandinu,
MammaMamma, Ísmerka og Hnykli. Þessi tvö fá nú
það verk að sýna okkur annan heim – gerólíkan þeirri
mynd sem við höfum af hinni sælu Evrópu og þess ber
að geta að athafnir á sviðinu eru ekki við hæfi barna
eða viðkvæmra. Aðrir leikendur sem koma fram í sýn-
ingunni eru Árni Pétur Guðjónsson, Aðalbjörg Árna-
dóttir, Vigdís Másdóttir og Hjörtur Jóhann Jónsson.
Næstu sýningar: 25. apríl, 29. apríl, 5. maí. Miðasala
á Miði.is, eða í síma 845-2387 (á sýningardag) en fjöldi
sýninga verður takmarkaður og því best að drífa sig.
Rúmenaraunir á pólsku
Heiðar, Magnea, Hannes og Aðalbjörg skömmu fyrir rennsli í
vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ljóðasafn Kristjáns Karlssonar kom út á
liðnu ári og er hér metið að verðleikum.
MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
orkoman á sér marga drætti.
Þessa dagana eru lokatónleikar,
tískusýning og stórsýningin í
Hafnarhúsinu framlag þess unga
fólks sem hefur undanfarin ár unnið
við hlið meistara sinna og reynt að ná
tökum á hugmynd, efni og framkvæmd.
Vorsýningar myndlistarskólanna voru
löngum vinsælt tómstundagaman borg-
arbúa og nú er það orðin útbreidd skemmt-
un. Almenningi gefst kostur á að sjá hvað
kraumar og alltaf er lifað í voninni að fram stigi
hinn einstaki, sá sem ýtir frá sér samferðamönn-
um og vekur í örskoti og fáum verkum alþjóða-
athygli, les: athygli þeirra sem hafa tíma til að
fylgjast með í því ótrúlega fjölmenna framboði
myndlistar sem landinn býr við. Myndlistin er í
íslensku samfélagi mikið hreyfingarafl þótt sá
hópur sem stundar myndlistarsýningar sé ekki
stór og nokkuð lagskiptur.
Og á sýningunni sem verður opnuð í dag kenn-
ir margra grasa: Vídeóskúlptúrar, ljósmyndir,
skrímslabangsar, samtímalistasafn, barnabæk-
ur, ýmis húsgögn, málverk, myndljóð, íslenskir
draugar, ímynd kvenna, myndasögur, ljósmynd-
ir, letur
þjóðsag
ingar, t
unnar, p
og er m
veruleik
um útsk
að skila
hússins
klukkun
Sýnin
víkur. Í
sýna ve
og 32 í m
íel Karl
Guðbra
afrakstu
þar sem
endum a
og gera
viðfang
forvitni
Sýnin
fimmtu
ókeypis
LOKSINS FR
Lokahóf hugmynda og verklegra framkvæmda áttatíu krakka sem búin
tísku í þrjú ár. Jorri, eða Jón Þorgeir Kristjánsson, stendur fremstur við v
Sumir
taka próf
í lok skól-
ans sem
þeir eru í,
aðrir halda
hljómleika
eða setja
upp sýn-
ingu. Hin
árlega sýn-
ing útskrift-
arnemenda
Lista-
háskóla
Íslands í
hönnun,
mynd-
list og
arkitekt-
úr verður
opnuð
í dag í
Listasafni
Reykjavík-
ur í Hafn-
arhúsi og
stendur
fram til 9.
maí.
MENNING
PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
Krestina Lauridsen
24 ára frá Helsingör
KUREN er mjög
áhrifaríkleið til
úthreinsunar”
“
FÉKK AFTUR
SLÉTTAN MAGA
HVAÐ GETUR KUREN
GERT FYRIR ÞIG?
„Á morgnana var maginn á mér
sléttur og fínn! En þegar það fór að
líða á daginn blés hann meira og
meira út og leit hann stundum út eins
og ég hefði gleypt stóra blöðru.
Börnin á frístundaheimilinu þar sem
ég starfa spurðu mig oft hvort ég ætti
von á barni.
Gott fyrir meltinguna
Hin 24 ára gamla Krestina Laurisen
átti lengi í þessari uppþembu:
-Ég rakst á auglýsingu í vikublaði
um KUREN, sem er fljótleg og
auðveld úthreinsun. KUREN er
unninn úr náttúrulegum jurtum sem
hjálpa meltingunni af stað og hjálpa
líkamanum í leiðinni að losa sig við
uppsöfnuð úrgangsefni. Þetta fannst
mér hin hreinasta snilld og ákvað ég
því að drífa mig á næsta sölustað og
fjárfesta í KUREN. Afgreiðslukonan
í heilsubúðinni var mjög upplýst og
staðfesti hvað KUREN væri áhrifa-
ríkur þegar kemur að því að hreinsa
líkamann og einnig að hann væri
bragðgóður og auðveldur í notkun.
Ég blandaði KUREN í vatn og mikið
rétt, KUREN smakkaðist vel en ég
mæli með að drukkið sé ríkulega af
vatni með inntöku á KUREN, því
það eykur virkni úthreinsunar.
Maginn á mér aftur
sléttur og fínn
”KUREN virkaði fljótt og vel.
Maginn varð sléttur á ný og
uppþembu tilfinningin hvarf algjör-
lega. Og sem betur fer er ég hætt að
heyra frá þeim sem í kringum mig
eru hvort að ég sé barnshafandi.
Þetta var svo auðveldur kúr í aðeins
10 daga. Ef ég fer að blása út aftur
þá er bara málið að taka aftur annan
kúr á KUREN.“
Orðið „hreinsikúr” eða „detox“ fær suma til
að hugsa um svelti, að drekka einungis
vatn og safa eða huggulega og afslappandi
dvöl í Póllandi, Indlandi, Þýskalandi eða
Reykjanesbæ. Hjá flestum er þetta
draumur sem rætist oftast ekki í amstri
dagsins. Í grunninn byggist hreinsikúr upp
á því að virkja úthreinsibúnað líkamans ef
svo má að orði komast. Þar er átt við nýru,
svita og meltingu. Samsetning jurtanna í
KUREN byggist á því að örva þennan
hreinsibúnað.
Inulin – trefjar sem gagnast meltingunni
KUREN er eini danski hreinsikúrinn sem
inniheldur Inulin í hæfilegu magni en Inulin
eru plöntuættaðar trefjar. Vísindalegar
rannsóknir hafa staðfest gagnsemi þeirra
fyrir lífsnauðsynlegu mjólkursýrubakteríur-
nar (góðgerlana) í meltingarfærunum, en
aðeins ef tekin eru inn 4 til 5 grömm á dag
eins og KUREN inniheldur. Við inntöku á
KUREN örvast hægðarlosun sem margir,
sérstaklega þeir eldri, eru ánægðir með.
Birkiblöð, klóelting og brenninetla eru
afar hjálplegar plöntur þegar kemur að
örvun nýrnastarfseminnar. Það er mjög
mikilvægt að drekka ríkulega af vatni á
meðan 10 daga hreinsikúr KUREN
stendur yfir. Þegar kemur að því að losa
úrgangsefni í gegnum svitaholurnar er
hreyfing áhrifaríkust en einnig geta
króklappa og svartyllir eflt úthreinsiferlið
til muna.
Innihaldsefni KUREN eru:
Inulin (oligofructose), agerpaddeerokke
(klóelting), glat burre (króklappa), hyldeblomst
(svartyllir), birkiblöð og brenninetla.
Útsölustaðir: flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur stórmarkaðanna