Fréttablaðið - 24.04.2010, Síða 55
LAUGARDAGUR 24. apríl 2010 5
Bara plata er yfirskrift útgáfutón-
leika Ísgerðar Elfu í Fríkirkjunni í
dag klukkan 14. Hún gaf nýlega út
barnaplötu með sama nafni.
Árlegir barnatónleikar Lúðrasveit-
ar verkalýðsins verða í Íslensku
óperunni í dag klukkan 14. Á efn-
isskránni er m.a. Happy Go Lucky,
Buglers Holiday, Sandpaper Ball-
et þar sem sandpappír skipar stór-
an sess í slagverkssveitinni, þekkt
lag eftir Michael Jackson og syrpa
úr Kardimommubænum svo fátt
eitt sé nefnt. Kynnir á tónleikun-
um verður Felix Bergsson. Stjórn-
andi Lúðrasveitar verkalýðsins er
Snorri Heimisson.
Ævintýrahöllin á Fríkirkjuvegi 11
mun óma af fögrum tónum í dag.
Hljómsveitin Amiina fer með gesti
í töfraheim þar sem sýningar á
gömlum animation-myndum taka
völdin við lifandi undirleik hljóm-
sveitarinnar.
Einnig mun Kammersveit
Reykjavíkur halda stofutónleika í
Ævintýrahöllinni undir yfirskrift-
inni Myndir af Mozart. Fluttur
verður Óbókvartett í F-dúr KV 370
eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Börnin fá tækifæri til að spyrja
spurninga og saman veltum við
fyrir okkur hver Mozart hafi eig-
inlega verið: Undrabarn, strákur,
hljóðfæraleikari, prakkari, tón-
skáld, ferðalangur?
Dyndilyndi kallast dagskrá Mynd-
listarskóla Íslands sem haldin
verður í Listasafni Íslands á Frí-
kirkjuvegi 7 á morgun frá 11 til 17.
Börn, hönnuðir, myndlistarmenn,
arkitektar, dansari, leikarar, rit-
höfundar, hljóðmyndasmiðir og
tónskáld leggja til þræði úr sköp-
unarhölum sínum.
Klukkan 13.30 er á dag-
skrá DÝRlingasögur:
Kólibrífugl. Höfund-
ur er Harpa Arnar-
dóttir en um leikinn
sér Ingvar E. Sig-
urðsson.
Klukkan 14 legg-
ur Megas sem Vox
Animalis til tón og
texta ásamt sýni-
legum eða ósýni-
legum barnakór
ofan á hljóðmynd Hilmars Arnar
Hilmarssonar.
Klukkan 14.30 verður leiðsögn
um Dyndilyndi í umsjá Margrétar
H. Blöndal, myndlistarmanns og
sýningarstjóra
Frá 15 til 16.30 verður listsmiðja
fyrir börn og fullorðna. Tinna
Gunnarsdóttir vöruhönnuður og
Brynhildur Þorgeirsdóttir mynd-
listarmaður leiða. Nánari upp-
lýsingar um dagskrá eru á www.
dyndilyndi.is.
Stórsveitarmaraþon verður í Ráð-
húsi Reykjavíkur á morgun frá
13 til 17. Stórsveitin heldur mar-
aþonið nú í 14. sinn og að vanda
býður hún til sín yngri stórsveit-
um landsins. Dagskráin verður
fjölbreytt og skemmtileg og gera
má ráð fyrir að flytjendur verði
um 150 talsins.
Lokatónleikar Barnamenning-
arhátíðar verða í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum með lögunum
af Vísnabókarplötunum, Einu sinni
var og Út um græna grundu. Meðal
söngvara eru Eyþór Ingi, Stefanía
Svavarsdóttir, Edgar Smári Atla-
son og Kristján Gíslason. Gunn-
ar Þórðarson útsetur tónlistina og
stjórnar tónleikunum, en honum til
fulltingis er Stúlknakór Reykjavík-
ur undir stjórn Margrétar Pálma-
dóttur, strengjanemendur undir
stjórn Hjörleifs Valssonar, blás-
arasveit úr Tónlistarskóla FÍH og
landslið rokkara.
Margt annað er á
dagskrá barnamenn-
ingarhátíðar en
hana má sjá á www.
barnamenningar-
hatid.is.
Tónlistarhelgi
barnanna
Barnamenningarhátíð nær hámarki um helgina. Dagskráin er þétt og
er hluti hennar helgaður tónlist. Meðal þeirra sem hljóma um helg-
ina eru Amiina, Lúðrasveit verkalýðsins og Stórsveit Reykjavíkur.
Ævintýrahöllin að Fríkirkjuvegi 11 mun hljóma af ævintýralegum tónum Amiinu.
Í tilkynningu segir að Ísland sé
draumaland jarðvísindamannsins
með Atlantshafshrygginn og heit-
an reit undir landinu. Þetta veld-
ur mikilli gosvirkni sem skapar nýtt
land og umbyltir því gamla. Gosið
í Eyjafjallajökli er nýjasta birtingar-
mynd máttar náttúruaflanna.
Meðal dagskrárliða má nefna
umfjöllun Björns Oddssonar um
eldgos undir jökli og erindi Guð-
rúnar Marteinsdóttur um nytja-
stofna. Þar veltir hún fyrir sér hvort
hamfaraflóð eftir eldgos geti haft
áhrif á klak og þar með viðgang
þorskstofnsins sem hrygni sunn-
an undir landinu. Þá mun Sigurð-
ur S. Snorrason fjalla um bleikjuna
í Þingvallavatni en þar finnast fjög-
ur afbrigði og svo virðist sem þau
hafi lifað af gosið sem myndaði
Sandey fyrir 2000 árum. Fjölmarg-
ir sérfræðingar Háskóla Íslands á
sviði náttúru- og jarðvísinda munu
síðan segja frá í máli og myndum.
Dagskráin er haldin í tilefni af Degi
umhverfisins og Degi jarðar sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa sér-
staklega tileinkað líffræðilegri fjöl-
breytni í ár. Hún stendur frá 11 til
15. - ve
Líf á eldfjallaeyju
OPIN DAGSKRÁ UM JARÐFRÆÐI
OG LÍFFRÆÐILEGA FJÖLBREYTNI
ÍSLANDS FER FRAM UNDIR YFIR-
SKRIFTINNI LÍF Á ELDFJALLAEYJU
Í ÖSKJU, NÁTTÚRUFRÆÐIHÚSI
HÁSKÓLA ÍSLANDS Í DAG.
Ísland er draumaland jarðvísinda-
mannsins.
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504
30% afsláttur
af sóttum pizzum
Tilboðið gildir frá 19–25. apríl
„Bjóðum einnig upp á speltpizzur“
Sími: 577-3333
Dalvegur 2, 201 Kóp.
Opið alla daga frá kl. 11–1
Dalshrauni 13, Hafnarfjörður
Opið sun – fim frá kl. 11–23,
fös og lau frá 11–23:30