Fréttablaðið - 24.04.2010, Síða 76
40 24. apríl 2010 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
persónur sem eru í sífelldri mótun
og endurnýjun. Kristján Árnason
snarar ljóðabálki Óvíds úr löngu
útdauðu tungumáli yfir á lifandi
og skemmtilegt lausamál og gerir
það einkar glæsilega. Hann hefur
unnið að þýðingu sinni áratugum
saman og verður hún að teljast
bæði stórvirki og menningarvið-
burður. Kristján býr yfir miklum
orðaforða, skáldgáfu, innsæi og
þekkingu á myndmáli og stíl sem
birtist vel í þýðingu hans. Hún er
afar læsileg og aðgengileg, það
er hægt að grípa niður hvar sem
er og sökkva sér ofan í sögur af
örlagaglettum hinna fornu guða.
Alls staðar eru dæmi um útsjón-
arsemi og næmi þýðandans fyrir
blæbrigðum tungumálsins, bæði
frummáls og þýðingar. Af handa-
hófi má nefna fræg endalok hins
sjálfhverfa unglings, Narkissu-
sar, sem málgefna dísin Ekkó elti
á röndum: „En er Narkissus sá
þetta í vatninu, sem var nú aftur
orðið slétt sem spegill, þá var
honum öllum lokið, og svo sem hið
gula vax bráðnar af léttum eldi og
klaki leysist upp af yl sólarinnar,
þannig bráðnaði hann af ást og
tærðist upp smám saman af inni-
byrgðum eldi. Þá hvarf roðinn af
björtu hörundi hans, honum þvarr
máttur og megin, og fegurð hans
bliknaði, sá líkami sem Ekkó hafði
unnað svo mjög varð ekki nema
svipur hjá sjón“ (106-7).
Kristján hefur með þýðingu
sinn á Ummyndunum eftir Óvíd
fært nútímalesendum fornklass-
ískan sagnaheim á gullaldarís-
lensku eða eins og þeir Óvíd orða
það (432): Hann hefur „lokið verki
sem hvorki bræði Júpíters né eldur
né járn né tönn tímans munu fá
grandað.““
Dómnefnd skipuðu þau Hjörleif-
ur Sveinbjörnsson, Þórdís Gísla-
dóttir og Steinunn Inga Óttars-
dóttir. pbb@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 24. apríl 2010
➜ Leikrit
20.00 Nemendaleikhúsið sýnir leikrit-
ið Stræti eftir Jim Cartwright. Sýningar
fara fram í Smiðjunni við Sölvhólsgötu.
Nánari upplýsingar á www.lhi.is og
www.midi.is.
20.00 Leikfélag Borgarholtsskóla
sýnir Rokksöngleik um Lísu í Undra-
landi. Sýningar fara fram í Bæjarleik-
húsinu við Þverholt í Mosfellsbæ. Nán-
ari upplýsingar á www.midi.is.
20.00 Davíð Þór Jónsson
og Steinn Ármann Magn-
ússon flytja verkið Villidýr
/ Pólitík eftir Ricky Gervais
í Borgarleikhúsinu við
Listabraut. Nánari upp-
lýsingar á www.midi.is.
➜ Opnanir
14.00 Útskriftarnemar við listnáms-
braut Fjölbrautaskólans í Breiðholti
opna sýningu í Galleríi Tukt, Hinu Hús-
inu við Pósthússtræti.
14.00 Útskriftarsýning nemenda
myndlistardeildar og hönnunar- og
arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands
verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur
við Tryggvagötu. Opið alla daga kl. 10-
17, fimmtudaga kl. til kl. 22.
➜ Kvikmyndir
16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
mynd Peter Greenaway The Cook, the
Thief, His Wife …” (1989). Sýningin
fer fram í Bæjarbíói við Strandgötu í
Hafnarfirði. Nánari upplýsingar á www.
kvikmyndasafn.is.
➜ Tónleikar
15.00 Afmælistónleikar Álafosskórs-
ins verða í Guðríðarkirkju í Grafarholti.
Fjölbreytt efnisskrá.
15.00 Vörðukórinn sem er blandaður
kór úr uppsveitum Árnessýslu verður
með söngskemmtun í Salnum við
Hamraborg í Kópavogi. Á efnisskránni
verða eingöngu íslensk lög: þjóðlög,
dægurtónlist, sönglög, leikhústónlist og
kirkjutónlist.
23.00 Hljómsveitirnar Perla, Mom-
entum og Hoffman halda tónleika á
Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu.
➜ Dagskrá
Í tilefni af Degi umhverfisins verður
boðið upp á dagskrá fyrir alla fjölskyld-
una í Öskju, náttúrufræðihúsi HÍ við
Sturlugötu kl. 10.30-15. Jarðfræði og
líffræðileg fjölbreytni Íslands í máli og
myndum.
➜ Djass
Jazzhátíð Garðabæjar stendur yfir til
25. april. Nánari upplýsingar á www.
gardabaer.is. Aðgangur er ókeypis á alla
tónleika hátíðarinnar á meðan húsrúm
leyfir.
20.30 Cathrine Legardh og félagar
verða með tónleika í Kirkjuhvoll, safn-
aðarheimili Vídalínskirkju við Kirkjulund.
Á efnisskránni verður hennar eigið efni
ásamt þekktum djassslögurum og nor-
rænum lögum.
Sunnudagur 25. apríl 2010
➜ Tónleikar
13.00 Stórsveit Reykja-
víkur stendur fyrir árlegu
Stórsveitamaraþoni í
Ráðhúsi Reykjavíkur kl.
13-18. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill á meðan
húsrúm leyfir, en áhorfend-
um er frjálst að koma og
fara á meðan maraþonið
stendur yfir.
14.00 Ísgerður Elfa Gunn-
arsdóttir heldur útgáfutónleika
í Fríkirkjunni þar sem hún flytur
lög af barnaplötunni Bara plata.
17.00 Tónleikar verða í Hjallakirkju
við Álfaheiði í Kópavogi þar sem
Kammerkór kikjunnar flytur dagskrá.
Á efnisskránni verða meðal annars verk
eftir W.A. Mozart, J. Rutter, A. Dvorák og
Jón Ásgeirsson. Enginn aðgangseyrir.
➜ Kvikmyndir
15.00 MÍR sýnir í salnum að Hverfis-
götu 105, fransk-ítölsku kvikmyndina
Þýskaland árið núll (1948) eftir leik-
stjórann Roberto Rossellini. Enskur texti.
Aðgangur ókeypis.
➜ Leikrit
20.00 og 21.30 Mánudagsleikhúsið
verður með tvær aukasýningar af verk-
inu Nei Dorrit í Iðnó við Vonarstræti.
➜ Djass
Lokadagur Jazzhátíðar í Garðabæ.
Nánari upplýsingar á www.gardabaer.
is. Aðgangur er ókeypis á alla tónleika
hátíðarinnar á meðan húsrúm leyfir.
20.30 Lokatónleikar Jazzhátíðarinnar
verða í Vídalínskirkju við Kirkjulund.
Fram koma Kór kirkjunnar, Gospelkór
Jóns Vídalín og hljómsveit.
➜ Leiðsögn
13.00 Guðrún Guðmundsdóttir
verður með leiðsögn um sýninguna
Ævispor sem nú stendur yfir í Þjóð-
minjasafninu við Suðurgötu en þar
sýnir Guðrún útsaumsverk.
14.00 Ingibjörg Jóhannsdóttir verður
með leiðsögn um sýninguna Dyndi-
lyndi sem nú stendur yfir í Listasafni
Íslands við Fríkirkjuveg.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Kl 16.
Elsti karlkór landsins, Þrestir úr
Hafnarfirði, gengst fyrir vortónleik-
um í dag. Kórinn var stofnaður 1912.
Verða tónleikarnir í Grafarvogs-
kirkju, en aukatónleikar verða síðan
þegar Þrestir fara með stóran hluta
af söngdagskránni og flytja í Skál-
holtskirkju laugardaginn 1. maí .
> Ekki missa af
Tónleikum Kórs Menntaskólans
í Reykjavík í Seltjarnarneskirkju
á sunnudagskvöld, kl. 20.00
Á dagskrá kórsins eru kirkju-
leg og veraldleg verk, bæði
íslensk og erlend. Þar er að
finna útsetningar úr íslenskum
söngarfi eftir Róbert A. Ottós-
son, Smára Ólason, Hjálmar H.
Ragnarsson og Árna Harðarson.
Af öðru má nefna verk eftir
Báru Grímsdóttur og Finn Torfa
Stefánsson.
Á þessum tónleikum kórsins
verða u.þ.b. 40 söngvarar,
stjórnandi kórsins er Guðlaugur
Viktorsson.
Vorkoma Akureyrarstofu fór fram í
Ketilhúsinu sumardaginn fyrsta í björtu
og fallegu sumarveðri og voru veittar
alls sjö viðurkenningar, auk þess sem
tilkynnt var um val á bæjarlistamanni
Akureyrarbæjar. Það er Björn Þorláks-
son rithöfundur sem hlýtur starfslaun
listamanns í sex mánuði og hyggst
hann nýta starfslaunatímann til þess
að vinna að sjötta ritverki sínu en efni
þess er enn sem komið er leyndarmál.
Þrjár heiðursviðurkenningar voru veittar
til einstaklinga sem þykja hafa lagt
mikið af mörkum til menningarlífs á
Akureyri, hver á sinn hátt. Þetta eru Heiðdís
Norðfjörð rithöfundur, Ingvi Rafn Jóhanns-
son söngvari og Arngrímur Jóhannsson
athafnamaður.
Tvær viðurkenningar voru veittar
vegna byggingalistar. Arkitektastofan
Kollgáta, sem er í eigu Loga Más Einars-
sonar og Ingólfs Freys Guðmundssonar,
hlaut viðurkenningu fyrir vel útfærða
viðbyggingu á funkishúsi í Helgamagra-
stræti 3 á Akureyri og arkitektinn Ágúst
Hafsteinsson hlaut viðurkenningu fyrir
Glerárvirkjun, stöðvarhús Norðurorku í
Glerárgili.
Í ár voru í fyrsta skipti veitt athafna- og
nýsköpunarverðlaun Akureyrarbæjar og
féllu þau í skaut fyrirtækjanna RAF sem
fær viðurkenningu fyrir nýsköpun og
frumkvöðlastarf og SS Byggir fyrir athafnasemi
og kraftmikla starfsemi. Það var Pétur Bergmann
Árnason sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd
RAF og Sigurður Sigurðsson frá SS Byggir.
Björn bæjarlistamaður Akureyrar
BJÖRN
ÞORLÁKSSON
Kristján Árnason hlaut í
gær Íslensku þýðingaverð-
launin sem afhent voru við
hátíðlega athöfn á Gljúfra-
steini. Verðlaunin hlýtur
Kristján fyrir þýðingu sína
á Ummyndunum eftir Óvíd.
Eftirtaldir þýðendur voru til-
nefndir: Elísa Björg Þorsteins-
dóttir fyrir Málavexti eftir Kate
Atkinson (Bjartur); Guðbergur
Bergsson fyrir Öll dagsins glóð,
safn portúgalskra ljóða frá 1900–
2008 (JPV útgáfa); Kristján Árna-
son fyrir Ummyndanir eftir Óvíd
(Mál og menning); María Rán
Guðjónsdóttir fyrir Kirkju hafs-
ins eftir Ildefonso Falcones (JPV
útgáfa) og Sigurður Karlsson fyrir
Yfir hafið og í steininn eftir Tapio
Koivukari (Uppheimar).
Í umsögn dómnefndar segir:
„Dómnefndin glímdi við það
vandasama hlutverk að velja eina
þýðingu úr þessum hópi öndveg-
isþýðinga og urðu Ummyndan-
ir eftir rómverska skáldið Óvíd í
þýðingu Kristjáns Árnasonar fyrir
valinu. Kristján (f. 1934) hefur ort
ljóð, þýtt skáldsögur, ljóð og leik-
rit og skrifað greinar, erindi og
ritgerðir um bókmenntir, skáld-
skaparlist og heimspeki. Hann er
allt í senn, ljóðskáld og þýðandi,
heimspekingur, kennari og bók-
menntafræðingur. … „Dagur mun
koma að kveldi og Föbus mun baða
lafmóða fáka sína í sjávardjúpun-
um, áður en ég fái upp talið allt
það sem hefur tekið á sig nýja
mynd“ (418), segir Óvíd. Hinn
forni bókmenntaarfur á latínu
hefur öldum saman verið helsta
undirstaða menntunar í Evrópu og
endalaus uppspretta túlkunar og
listsköpunar. Nægir að nefna góð-
kunningja úr Ummyndunum eins
og Orfeif og Evridýku, Andróm-
edu og Pygmalíon sem dæmi um
KRISTJÁNI ÁRNASYNI SÓMI SÝNDUR
BÓKMENNTIR Kristján Árnason skemmtir mennta- og menningarmálaráðherranum,
Katrínu Jakobsdóttur, og Rúnari Helga Vignissyni, formanni Bandalags þýðenda
og túlka, á Gljúfrasteini í gær þegar hann tók mót verðlaunum fyrir þýðingu sína á
Ummmyndunum Óvíds. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tómasarmessa
í Breiðholtskirkju í Mjódd
sunnudaginn 25. apríl kl. 20
Hryggð mun
snúast í fögnuð
Fjölbreytt tónlist og fyrirbæn
Allir velkomnir