Fréttablaðið - 24.04.2010, Page 78
42 24. apríl 2010 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Hönnuðurinn Hildur Yeoman átti
eina líflegustu sýninguna á Reykja-
vík Fashion Festival í mars og
sýndi þar gullfallega fylgihluti.
„Ég hef unun af fögru handverki
og leitast við að nota gamlar og
gildar aðferðir við hönnun mína,“
útskýrir hún. „Mér er einnig mikið
í mun að þekkingin sem er fólgin í
gömlu handverki glatist ekki. Með
þetta að leiðarljósi nýti
ég netagarnið sem minn-
ir um margt á gamlan sjó-
mannsarf Íslendinga, vísar í veður-
ofsa, hörku og slor. Efniviðinn set
ég þó í nýtt samhengi í ferskum og
fáguðum aukahlutum.“
Í nýju línunni breikkar Hildur
svið sitt frá töskum og sýndi einnig
hárskraut og hálsfestar. Innblást-
urinn segist hún sækja til ömmu
sinnar. „Magga amma mín var
mikið tískuíkon og leyfi ég mér að
líkja henni við „músuna“ og lífs-
kúnstnerinn Catherine Baba. Frá
henni koma litir línunnar, stemn-
ing og form.“ Þess má einnig geta
að verk Hildar sem voru gerð í
sameiningu við ljósmyndarann
Sögu Sigurðardóttur og voru sýnd
í Kling og Bang hanga uppi í versl-
uninni Kron Kron og er þetta síð-
asta tækifæri fyrir áhugasama um
að festa kaup á einum af þeim fáu
eintökum sem eftir eru. - amb
LÍFLEGT Fallegt hárskraut og svartir
svanir um hálsinn.
Buxur, buxur, buxur. Flíkin sem konur byrjuðu ekki að nota fyrr en
Coco Chanel kom hinum vestræna heimi í skilning um að sjálfstæðar
konur þyrftu að vera í þægilegum og praktískum fatnaði. Svartar
„skinnies“ hafa verið fastur liður í daglegum
klæðnaði mínum í mörg ár og persónulega er
ég skelfilega íhaldssöm þegar það kemur að
buxnatískunni. Eitt er það tískufyrirbrigði
sem ég skil ekki en sé oftar og oftar á öld-
urhúsum borgarinnar. Sætar skvísur sem
klæða sig í einhvers konar „eighties“ snið af
buxum með fellingum á mjöðmum og pokast
yfir rass og læri. Versta útgáfan af þessu er
úr hvítri bómull. Meira að segja grennsta
manneskja fær vægast sagt ólögulegan vöxt
með þessari katastrófu og þar sem ég vil
endilega að kvenfólk geri sem mest úr sínum
kvenlegu línum skil ég hreint ekki málið.
Ég rakst á skemmtilega grein í breska
dagblaðinu The Guardian í vikunni sem
benti á að þeir sem geta ekki hugsað sér
annað buxnasnið en þröngar mjóar gallabux-
ur (líkt og ég sjálf) hafi hugsanlega verið
heilaþvegnir og að þetta snið sé auðvitað
kolómögulegt fyrir margar konur. Greinin færði mér þau stórtíðindi
að útvíðar buxur séu að komast aftur í tísku og að heitasta gallabuxna-
sniðið í sumar muni helst minna á hippa áttunda áratugarins. Annar
og kannski dálítið meira spennandi kostur eru buxur sem hafa fengið
heitið „Flare-ette“ á engilsaxnesku og þýðist lauslega sem „pínkupons-
ulítið útvíðar buxur.“ Um er að ræða þröngar buxur sem víkka örlítið
út yfir ökklann og munu því drepa endanlega tískuna þar sem stígvél
eru höfð yfir þröngum gallabuxum. Það besta við þessar fréttir er að
þá komast kúrekastígvél og „chelsea boots“ undir buxnaskálmina svo
að maður geti verið strákalegur, rokkaður og töff. Nú, ef þetta virðist
allt saman vera orðið of flókið og fær Cheap Mondays-fólkið til að titra
og skjálfa þá er væntanlega alltaf öruggt að ganga bara í pilsi.
Þröngu buxurnar í geymsluna?
… nýi Hello Kitty ilmurinn er væntanlega
ætlaður litlum stúlkum og er ótrúlega
léttur, frísklegur og ögn vanillukenndur
svona eins og litlar stelpur eiga að anga.
Mæður þeirra eiga án efa eftir að stelast í
glasið líka.
… þessi ynd-
islegi stutti
sumarkjóll
er úr silki og
skartar fisk-
um og sjáv-
ardýrum.
Fæst í GK,
Laugavegi.
… kyn-
þokkafullur
samfestingur
frá Top Shop
er djammdress
helgarinnar.
OKKUR
LANGAR Í
…
BLÁIR SVANIR
Síðar heklaðar
keðjur og
svanir um
hálsinn.
HILDUR YEOMAN SÝNIR FYLGIHLUTI Á RFF:
Innblásið af ömmu
> AFRAKSTUR NÁMSINS
Áhugafólk um framtíð íslenskrar tískuhönnunar ætti
að bregða sér í Hafnarhúsið í dag þar sem flíkur
útskriftarnema úr fatahönnunardeild Listaháskóla
Íslands verða til sýnis. Í dag verður listasafnið undir-
lagt af nemum skólans sem sýna þar útskriftarverk sín
úr öllum deildum. Í gærkvöldi átti sér stað glæsileg
tískusýning fatahönnunarnemanna en prófdómari að
þessu sinni var engin önnur en franski hönnuðurinn
Martine Sitbon.
SÍÐAR FESTAR
Fallegar heklaðar
festar setja
skemmtilegan
svip á klæðnaðinn.
Borgarleikhúsinu
26. 27. og 28. apríl, kl. 18 og 20
Um sýninguna:
Nemendur JSB kafa í heim vísindanna
eftir dansefnivið. Varpað er ljósi á ýmis
undur og tilraunir gerðar í gegnum
dans og leik
Miðaverð 2.000 kr. - frítt fyrir 6 ára og yngri
Miðasala er í Borgarleikhúsinu og á www.midi.is
N
em
en
da
le
ik
h
ús
J
SB
2
01
0