Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.04.2010, Qupperneq 80

Fréttablaðið - 24.04.2010, Qupperneq 80
44 24. apríl 2010 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is „Fríkirkjan er bara fullkomin, þetta er svo skemmti- legt hús,“ segir leik- og söngkonan Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir. Ísgerður gaf út barnaplötuna Bara plata á dögun- um og heldur útgáfutónleika í Fríkirkjunni í Reykja- vík klukkan 14 í dag. Ekkert kostar inn á tónleikana og Ísgerður lofar að leynigestur stígi á svið. Bara plata er fyrsta plata Ísgerðar, en hún stýrði Stund- inni okkar í Sjónvarpinu á árunum 2006-2008. Er það rétt sem fólk í þínum bransa segir að börn- in séu gríðarlega dómharðir áhorfendur? „Þau eru það náttúrulega.“ Og hvað, standa þau til dæmis upp og fara ef þeim leiðist? „Ég hef bara ekki lent í að þeim finnist ég leiðin- leg (hlær) sjö, níu, þrettán.“ Ísgerður játar að börnin sýni mikla hörku þegar þau biðja um óskalag og virði tilfinningar skemmti- kraftsins að vettugi þegar þeim mislíkar lagavalið. Ísgerður er ánægð með viðtökurnar og hefur þegar fengið góða dóma, t.d. frá börnum vina sinna og vin- kvenna, sem heyra nú rödd vinkonu sinnar talsvert oftar en áður. „Áður en ég gerði plötuna hugsaði ég ekki út í að allir vinir mínir myndu fá ógeð á mér,“ segir Ísgerður og hlær. Þeir sem gefa út barnaplötu á Íslandi koma ekki fram á hefðbundnum tónleikastöðum. Við getum til dæmis ekki búist við að sjá Ísgerði troða upp á Players í Kópavogi. En hvernig ætlar hún að kynna plötuna? „Það eru náttúrulega alls kyns skemmtanir, til dæmis í kringum 17. júní. Svo er ég að hugsa um að fara í tónleikaferðalag um landið og plata einhverja sniðuga með mér.“ - afb Elin Nordegren, eiginkona kylf- ingsins Tiger Woods, dvelur nú ásamt börnum sínum í heimalandi sínu, Svíþjóð. Heimildir herma að Nordegren hafi verið að endurbæta hús sem hún á í Stokkhólmi, en hún hyggst eyða sumrinu þar. Á meðan Nordegren dvel- ur í faðmi fjölskyldu sinn- ar sótti Tiger tónleika með uppáhalds hljóm- sveit sinni, Nickleback, og skemmti sér svo baksviðs með hljómsveitarmeðlim- um að tónleikunum loknum. Almannatenglar og aðrir í kringum kylfinginn hafa unnið hörðum höndum við að bæta ímynd hans undan- farið og mun þetta atvik hafa skaðað þá vinnu. > REIÐ FYRIRSÆTA Ofurfyrirsætan Naomi Campbell er þekkt fyrir bræðisköst sín og þrátt fyrir að vera orðin 37 ára að aldri heldur hún uppi tilteknum hætti. Nýlega sló hún til tökumanns frá sjónvarpsstöðinni ABC og gekk svo út úr sjónvarpsviðtalinu. Samkvæmt starfsfólki Kahala- hótelsins á Honolulu sefur leik- arinn George Clooney ávallt á ofurmjúku laki úr kasmírull. Clooney kom starfsfólki hót- elsins í opna skjöldu með því að biðja um að lakið yrði ávallt sett á rúmið hans þegar búið var um á hverjum morgni. „Við urðum að leggja það yfir hin lökin þegar bjugg- um um rúmið hans,“ sagði hótelstarfsmaður. „Þetta var frekar fyndið. Það var eins og þetta væri öryggislakið hans. George skildi það eftir í her- berginu þegar hann fór af hótelinu og við urðum að senda það á staðinn sem hann ætlaði að fara á. Hann getur greini- lega ekki verið án þess.“ Clooney var staddur á Hawaii við upptökur á kvik- myndinni The Descendants og með honum í för var kær- astan hans, ítalska fyrirsætan og leikkonan Elizabetta Cana- lis. Eins og kom fram í Frétta- blaðinu á föstudag hitti söng- konan Anna Mjöll Ólafsdóttir parið á veitingastað í Honolulu og samkvæmt henni var hinn 48 ára Clooney ákaflega þægi- legur í viðmóti. Kasmírlakið mjúka hefur vafalítið átt sinn þátt í því. Clooney sefur á ofurmjúku kasmírlaki BARA PLATA Ísgerður heldur útgáfutónleika í Fríkirkjunni í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Tigerinn á tónleik- um með Nickleback CLOONEY OG CANALIS Leikarinn vinsæli getur ekki án mjúka kasmír- laksins verið. SKEMMTIR SÉR Tiger Woods skellti sér á tónleika og skemmti sér vel á meðan kona hans og börn dvöldu í Svíþjóð. Bara plata í Fríkirkjunni Vinir Söndru Bullock segja hana staðráðna í að skilja við eigin- mann sinn, Jesse James, eftir að upp komst um framhjáhald hans. Leikkonan mun þó ætla að ganga rólega til verks því hún óttast að annað muni hafa slæm áhrif á börn James. „Hún vill ekki særa börnin og þess vegna hefur hún ákveðið að ganga frá skilnaðinum í rólegheit- um. Jesse og börn hans voru og eru fjölskylda hennar og hún vill fara varlega í sakirnar. En skilnað- urinn mun gerast, þetta er aðeins spurning um tíma,“ var haft eftir heimildarmanni. Fyrir viku var leikkonan mynduð á göngu stuttu frá heimili sínu og athygli vakti að hún bar engan hring á fingri. „Sandra kynntist hlið á Jesse sem fáir höfðu fengið að kynnast, en nú hefur hún fengið að sjá þann Jesse sem allir hinir sáu. En hún er mjög jarðbundin og skynsöm og þeir eiginleikar munu koma henni í gegnum þennan erfiða tíma.“ Sandra mun skilja MUN SKILJA Sandra Bullock mun skilja við eiginmann sinn, hún vill þó ekki ana áfram af tillitssemi við börn hans. NORDICPHOTO/GETTY Sveppi og félagar undirbúa nú gerð framhaldsmyndar í Algjörum Sveppa-flokkn- um. Næsta mynd verður tekin upp í þrívídd. „Þetta eru prufutökur, tækin eru komin til landsins, speglakass- inn og þrívíddarskjárinn, og við erum bara að fikra okkur áfram og athuga hvort mánuður sé nóg fyrir okkur,“ segir Sverrir Þór Sverris- son en hann ásamt Braga Þór Hin- rikssyni eru byrjaður að fikta við þrívíddartæknina fyrir næstu myndina í Algjörum Sveppa- flokknum. Eins og Fréttablað- ið hefur greint frá verður næsta mynd um Algjöran Sveppa tekin upp í þrívídd en fyrsta myndin sló eftirminnilega í gegn á síðasta ári. Sverrir og Bragi hafa komið sér fyrir í myndveri Latabæjar í Garðabæ og ætla að prófa sig aðeins áfram. „Bragi er alveg með í maganum yfir þessu og er að reyna að láta þetta ganga upp. Við viljum gera þetta almennilega, fólk má ekki fá ofbirtu í augun því það er eitt að taka þetta upp og annað að koma þessu á hvíta tjald- ið,“ segir Sverrir sem er þó hvergi banginn. „Kannski standa tökurn- ar yfir í þrjátíu daga og kannski þrjú hundruð daga. James Camer- on var víst nokkur ár með eina þrívíddarmynd,“ segir Sveppi og vísar þar í Avatar-myndina. Leikarinn segir þá vera eins og tvo litla stráka sem hafi fengið snemmbúna jólagjöf. „Við prófuð- um að taka aðeins upp úti í garði í þrívídd og þetta leit alveg ótrúlega vel út,“ segir Sverrir en myndin mun heita Algjör Sveppi og dul- arfulla hótelherbergið. Vilhelm Anton Jónsson og Guðjón Davíð Karlsson endurtaka hlutverk sín frá fyrstu myndinni en við hóp- inn bætast þau Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir og Þröstur Leó Gunn- arsson. Auðunn Blöndal, sem hefur lengi gengið með leikaradraum- inn í maganum, fær ekki hlutverk í þessari fyrstu þrívíddarmynd okkar Íslendinga. „Nei, þetta er enginn fíflaskapur. Pétur Jóhann ætlar kannski að leika lítið hlut- verk ef hann nennir,“ segir Sveppi. freyrgigja@frettabladid.is Sveppi í þrívíddartökum EINS OG LITLIR STRÁKAR Villi, Gói og Sveppi á tökustað í myndveri Latabæjar í gær ásamt Braga Þór Hinrikssyni leikstjóra. Sveppi segir hann og Braga vera eins og litla stráka en þrívíddargræjurnar þeirra eru komnar til landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN www.heilsuhusid.is Heilsuhúsinu Lágmúla kl. 20-22 Glæsileg handbók fylgir með öllum upplýsingum sem þarf. Skráning og nánari upplýsingar á www.30.is og í síma 864 9155. Námskeiðsgjald kr. 6.900 kr. DAVÍÐ KRISTINSSON næringar- og lífsstílsþerapisti heldur fyrirlestur um 30 daga hreinsun á mataræði. Gott tækifæri til að byrja núna að axla ábyrgð á eigin heilsu! Rúmlega 1000 manns hafa lokið 30 daga hreinsun með mjög góðum árangri! Miðvikud. 28. apríl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.