Fréttablaðið - 29.05.2010, Blaðsíða 51
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Nánari upplýsingar veita:
Brynhildur Halldórsdóttir, brynhildur@hagvangur.is
Kristín Guðmundsdóttir, kristin@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til 6. júní nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sölu- og markaðsstjóri
Þekkt og öflugt fyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða sölu- og markaðsstjóra.
Ábyrgðar- og starfssvið:
• Stjórnun og gerð markaðs- og söluáætlana
• Umsjón með vöruþróun og markaðsherferðum
• Skýrslugerð og markaðsgreiningar
• Ímyndar- og kynningarmál
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Háskólamenntun í viðskipta- eða markaðsfræði
• Framhaldsmenntun er æskileg
• Hugmyndaauðgi og keppnisskap
• Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni
• Lífsgleði og framkvæmdagleði
Erum við að
leita að þér?
Nánari upplýsingar um störfin veita Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is
Actavis hf. Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 7. júní nk.
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu
og sölu hágæðasamheitalyfja. Actavis hf. er eitt af dótturfyrirtækjum
samstæðunnar og er framleiðslueining fyrirtækisins hér á Íslandi.
Fyrirtækið er staðsett í Hafnarfirði og hjá okkur starfa um 300
starfsmenn, flestir á framleiðslu- og gæðasviðum.
Störf í pökkunardeild
Í pökkunardeild fer fram vélakeyrsla í kartona- og þynnupökkun, uppgjör eftir
vinnslu og skjalfesting. Einnig tæknileg umsjón/aðstoð við uppsetningu auk
breytinga og stillinga á pökkunarlínum. Unnið er á þrískiptum vöktum.
Störf í töfludeild
Í töfludeild fer fram lyfjablöndun sem felur í sér vigtun, blöndun og frumvinnslu
hráefna. Einnig sér töfludeild um framleiðslu á töflum og hylkjum. Í starfinu felst
samsetning á vélum, skýrslugerð og skjalfesting. Unnið er á þrískiptum vöktum.
Ef þú ert…
hress og jákvæð/ur
stundvís
samviskusöm/samur og getur tileinkað þér nákvæm vinnubrögð
verklagin/n
með grunnþekkingu í ensku
góð/ur í að vinna í hópi
…þá bjóðum við
snyrtilegan og öruggan vinnustað
fjölskylduvænt starfsumhverfi
góðan starfsanda
gott mötuneyti
fræðslu og þjálfun
iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga og lækni sem sinna heilsuvernd starfsmanna
árlegan styrk til íþróttaiðkunar auk fræðslustyrks
öflugt starfsmannafélag
Sérfræðingur í framleiðsluteymi
Starfið tilheyrir gæðatryggingardeild Actavis hf. og felur í sér útgáfu og viðhald
rannsóknar- og geymsluþolsforskrifta og gæðalýsinga framleiðsluvöru, rýni, yfirferð
og samþykkt á framleiðsluskrám. Sömuleiðis þarf viðkomandi að sinna mati á
frávikum/utanmarkaniðurstöðum, þátttöku í innri úttektum og eftirliti, gerð og
viðhald skriflegra leiðbeininga og þjálfun starfsmanna. Starfið felur í sér talsverð
samskipti við aðrar deildir Actavis. Um er að ræða tímabundið starf.
Við leitum að einstaklingi
með háskólamenntun á sviði raunvísinda
sem býr yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu
með góða tölvukunnáttu
sem tileinkar sér hratt ný vinnubrögð og þekkingu
Gildin okkar hjá Actavis
Finnum lausnir
- vísar í þá ögrandi hugsun sem býr innan Actavis
Hugsum lengra
- vísar í að við sýnum frumkvæði og grípum tækifærin sem gefast
Veljum einfalt
- vísar til þess að við viljum ná hámarks skilvirkni í ferlum og verklagi
Verum tengd
- vísar til þess að við vinnum saman til að hámarka árangur okkar