Fréttablaðið - 29.05.2010, Blaðsíða 105
LAUGARDAGUR 29. maí 2010 65
HANDBOLTI Í kvöld leikur íslenska
kvennalandsliðið mikilvægasta
leik sinn frá upphafi. Það mætir
Austurríki í hreinum úrslitaleik
um laust sæti á Evrópumótinu
sem fer fram í desember. Vinni
Ísland, geri jafntefli eða tapi með
minna en fjórum mörkum kemst
það áfram þar sem það vann fyrri
leikinn gegn Austurríki með fjög-
urra marka mun.
Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari
segir stemninguna í liðinu góða.
Stelpurnar hafi verið vonsviknar
með tapið gegn Frökkum í vikunni
en allir séu einbeittir á verkefnið
fram undan.
„Stelpurnar hafa verið einbeitt-
ar og rólegar allan tímann, allt-
af með hugann á verkefninu. Við
þjálfararnir erum búnir að undir-
búa okkur vel, nú snýst þetta bara
um að koma skilaboðunum til
leikmannanna,“ sagði Júlíus við
Fréttablaðið í gær.
Hann segist ætla að koma
Austurríki á óvart í leiknum. „Við
spiluðum 5+1 vörn gegn þeim hér
heima og 6-0 vörn gegn Frökkum á
miðvikudaginn. Ég hef ekki ákveð-
ið endanlega útfærslu núna en
stefnan er að koma með áherslu-
breytingar á okkar leik og koma
andstæðingnum á óvart. Þær eru
mjög sterkar á heimavelli og hafa
endurheimt mjög sterkan leikmann
sem var meiddur í fyrri leiknum.
Þetta verður erfiður leikur,“ segir
landsliðsþjálfarinn.
Það hefur verið nóg að gera hjá
liðinu. Í gær hélt það tvo fundi þar
sem farið var yfir myndbönd auk
þess sem það æfði um kvöldið. Júlí-
us ætlar að hafa létta æfingu í dag
og tvo fundi til viðbótar. „Stelp-
urnar fá aðeins að fara út í sólina
í göngutúra og svona en annars er
full einbeiting í hópnum fyrir leik-
inn. Mestum tíma eyðum við á hót-
elinu og í höllinni.“
Staðan á leikmannahópnum er
góð, allir eru heilir og líður vel.
Júlíus segir að stelpurnar hafi
mikla trú á verkefninu en íslenskt
kvennalandslið hefur aldrei kom-
ist í lokakeppni stórmóts. „Það var
ekki erfitt að gíra stelpurnar upp
í þennan leik. þær hafa verið ein-
beittar að þessum verkefnum þær
vikur sem við höfum verið saman.
Það hefur gengið vel að stilla þær
saman, við höfum undirbúið okkur
vel,“ segir þjálfarinn.
Júlíus segir EM-drauminn hafa
kviknað um leið og dregið var í
riðla og um helgina gæti hann
orðið að raunveruleika. „Frá því
að við sáum mótherjana settum við
markið á að komast í lokakeppn-
ina. Liðið hefur verið að eflast
og það er alltaf að spila betur og
betur. Við höfum rætt um hvernig
þetta er raunverulegur möguleiki
og nú er komið að úrslitastund-
inni,“ sagði Júlíus.
- hþh
Ísland mætir Austurríki í kvöld í hreinum úrslitaleik um sæti í lokakeppni EM:
Úrslitastundin runnin upp
EINBEITTUR OG RÓLEGUR Júlíus er bæði einbeittur og rólegur fyrir leikinn gegn
Austurríki í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Við höfum rætt um
hvernig þetta er raun-
verulegur möguleiki og nú er
komið að úrslitastundinni.
JÚLÍUS JÓNASSON
LANDSLIÐSÞJÁLFARI
FÓTBOLTI Keflvíkingar verða án
aðalmarkmanns síns, Ómars
Jóhannssonar, næstu fjórar
til fimm vikurnar. Þeir leituð-
ust eftir því að fá undanþágu
frá félagaskiptareglum til að
fá markmann að láni en þeirri
beiðni var hafnað.
Árni Freyr Ásgeirsson mun
því verja mark Keflvíkinga í
næstu leikjum. Keflvíkingar eru
mjög ósáttir við ákvörðun KSÍ.
Þorsteinn Magnússon, formaður
knattspyrnudeildar Keflavíkur,
sagði að varamarkmaður Árna
væri nýorðinn sextán ára. „Hvað
gerum við ef Árni meiðist? Við
setjum ekki krakka í markið hjá
okkur.“
Þórir Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, segir að Kefl-
víkingar séu klárlega með vara-
markmann og að undanþágan sé
aðeins veitt í neyðartifellum. „Það
verður að treysta því að Keflvík-
ingar treysti þessum markverði
til að taka við ef hinn meiðist.
Þeir eru klárlega með varamark-
mann,“ sagði Þórir. - hþh
Keflvíkingum hafnað:
Setjum ekki
krakka í markið
ÓSÁTTIR Keflvíkingar eru ósáttir við
ákvörðun KSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fyrsta
Íslandsmeistarakeppni
sumarsins
laugardaginn 29. maí á kvartmílubrautinni
við Straumsvík
Svæðið opnað kl. 11
Keppni hefst kl. 14
Bílar:
RS – rally sport
OS – ofur sport
TS – true street, drag radial
TD – true street, DOT
HS – heavy street
DS – door slammer
OF – opinn flokkur
Bracket
Hjól:
Grunnflokkur
Standard-flokkur
Modified
Opin flokkur
Aðgangseyrir 1.000 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri í fylgd
með fullorðnum.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Þór-Víkingur R. 4-3
0-1 Walter Hjaltested (5.), 0-2 Egill Atlason (9.),
1-2 Atli Sigurjónsson (26.), 2-2 Jóhann Helgi
Hannesson (40.), 2-3 Viktor Örn Guðmundsson
(82.), 3-3 Jóhann Helgi Hannesson (90.+), 4-3
Nenad Zivanovic (90.+).
Njarðvík-KA 1-1
Einar Helgi Helgason (15.) - Dean Martin (75.)
Leiknir R.-ÍA 1-0
1-0 Helgi Pétur Jóhannsson (82.). Leiknismenn
voru manni færri í 70 mínútur í leiknum.
HK-ÍR 0-0
Fjölnir-Þróttur R. 3-0
1-0 Aron Jóhannsson (9.), 2-0 Pétur Markan
(27.), 3-0 Guðmundur Karl Guðmundsson (60.)
STAÐAN Í DEILDINNI:
ÍR 4 3 1 0 6-3 10
Leiknir 4 3 0 1 5-2 9
Þór Ak. 4 2 1 1 9-5 7
Víkingur 4 2 1 1 9-8 7
HK 4 2 1 1 4-3 7
Fjölnir 4 1 3 0 8-5 6
Þróttur 4 2 0 2 5-7 6
KA 4 1 2 1 5-5 5
Fjarðabyggð 3 1 0 2 6-7 3
Grótta 3 0 1 2 3-5 1
ÍA 4 0 1 3 5-8 1
Njarðvík 4 0 1 3 2-9 1
Upplýsingar um markaskorara eru fengar af
vefsíðunni fótbolti.net.
1. DEILD KARLA
KARAKTERSIGUR Leiknismenn voru
færri í 70 mínútur en unnu 1-0 sigur á
Skagamönnum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR