Fréttablaðið - 29.05.2010, Blaðsíða 46
„Við leitumst mikið til við að taka
gamla íslenska rétti og færa þá
til nútímahorfs, en þó með fullri
virðingu fyrir sögu þeirra,“ segir
Brynjar Eymundsson sem hefur
nýopnað Höfnina, nýjan veitinga-
stað að Geirsgötu 7c.
Hann segir Höfnina leggja
mikla áherslu á íslenskt hráefni,
meðal annars humar og makríl og
nautalundir, og einnig bjóði veit-
ingastaðurinn upp á sinn eigin,
séríslenska smurbrauðsstíl, þar
sem finna má meðal annars rækju-
kokkteil í skonsu, grafið nautakjöt
og margt fleira.
„Við ætlum að hafa mikið úrval
allan daginn. Fólk getur komið
hingað í vinnugallanum í hádeginu
og líka fínt út að borða á kvöldin,“
segir Brynjar. kjartan@frettabladid.is
Uppfæra gömul gildi
Höfnin, nýr veitingastaður við Geirsgötu, var opnaður nýlega. Brynjar Eymundsson eigandi segist leitast
við að uppfæra gamla og góða rétti í nútímalegra horf, eins og uppskriftirnar hans sýna.
Grilluð lambahryggsneið og „frikasse“
með humri og dilli ásamt bakaðri kart-
öflu og hvítum spergli. Fallegt útsýni er frá veitingastaðnum yfir Reykjavíkurhöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Brynjar Eymundsson og Elsa Guð-
mundsdóttir, eigendur Hafnarinnar.
Grilluð lambahryggsneið
og „frikasse“ með humri
og dilli.
8 stk. lambakótilettur
1 kg lambaskankar
8 stk. humrar
1 stk. shallotlaukur
2 stk. gulrætur
½ stk. blaðlaukur
¼ stk. sellerírót
10 stilkar dill
5 stilkar timjan
1 stk. lárviðarlauf
5 stk. piparkorn
3 dl hvítvín
3 dl rjómi
5 dl soðið af skönkunum
8 stk. hvítur spergill
Sítrónusafi
Sjóðið lambaskanka í
vatni þar til kjötið dettur
auðveldlega af beinunum,
ásamt dilli, timjan, shall-
otlauk, lárviðarlaufi og
pipar. Skrælið og snyrtið
grænmetið og bætið út í
soðið undir lokin. Sigtið
soðið og lagið sósu úr
lambasoðinu, hvítvíni og
rjóma sem er svo bragð-
bætt með sítrónusafa,
salti og pipar. Pillið kjötið
af beinunum og bætið út
í sósuna ásamt græn-
metinu.
Grillið kótiletturnar,
humarinn og spergilinn
og kryddið með salti og
pipar. Raðið réttinum
saman og skreytið með
fersku dilli.
„Skelfiskur og stemn-
ing“
4 kg kræklingur frá Norð-
urskel í Hrísey
2 stk. shallotlaukar
2 stk. hvítlauksgeirar
3 dl hvítvín
½ búnt steinselja
4 stk. bökunarkartöflur
Sítróna
Saxið laukinn, hvítlauk-
inn og steinseljuna og
sjóðið í hvítvíninu. Bætið
ferskum kræklingnum út í
pottinn og lokið pottinum
vel aftur.
Hvítvínið þarf ekki að
fljóta yfir kræklinginn þar
sem gufan sér um að
sjóða og opna skelina á
ca 3-4 mín.
Skerið kartöflurnar í
fallegar franskar kartöflur
og sjóðið þær í létt söltu
vatni þar til þær eru
alveg mjúkar, þá eru þær
þerraðar og svo djúp-
steiktar.
TVEIR GÓMSÆTIR RÉTTIR HAFSINS
Grilluð lambahryggsneið og Skelfiskur og stemning FYRIR 4
GAMLI BÆRINN Í LAUFÁSI Opnar dyrnar upp á gátt á sunnu-
daginn. Hlaðborð kræsinga verður í boði auk þess sem leiðsögn verður
um bæinn. Bærinn er opinn daglega í sumar frá 9 til 18.
Strætó fækkar ferðum á níu leiðum á morgun. Vagnar númer 1, 2, 3, 4, 6, 11,
12, 14 og 15 munu aka á 30 mínútna fresti í sumar í stað 15 mínútna. Nokkrar
smávægilegar breytingar verða einnig gerðar á öðrum leiðum.
„Eftirspurn eftir þjónustu Strætó er árstíðabundin og á vorin þegar skólastarfi
lýkur og sumarfrí eru í nánd dregur umtalsvert úr henni. Við því bregðumst við
með fækkun ferða. Þeim verður svo fjölgað aftur í haust,“ segir Bergdís I. Egg-
ertsdóttir, yfirmaður þjónustuvers Strætó bs. Hún tekur fram að upplýsingar
um sumaráætlunina sé að finna á vefnum www.straeto.is og í síma 540 2700.
Nýjar leiðabækur eru líka fáanlegar á öllum sölustöðum.
Strætó fækkar ferðum
ÁRLEG SUMARÁÆTLUN STRÆTÓ BS. TEKUR GILDI Á MORGUN.
Eftirspurn eftir strætóferðum minnkar yfir sumarið og því fækkar ferðunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Vikulöng námskeið sem hefjast 8. júní og standa yfir í 8 vikur
Kennt er allan daginn frá klukkan 9-16. Heitur matur í hádeginu
Dagsetningar sem í boði eru:
Farið verður vandlega yfir umhirðu hestsins ásamt almennri
reiðkennslu. Leiðbeinandi er Anna Bára Ólafsdóttir
Nánari upplýsingar og bókanir í síma 861-4186
www.vindholl.is
Enn eru laus pláss í eftirfarandi flokka:
1. 4. júní - 10. júní (10-12 ára)
4. 25. júní - 1. júlí (9-10 ára)
7. 16. júlí - 22. júlí (9-11 ára)
8. 4. ágúst - 10. ágúst (14-17 ára).
KFUM og KFUK - Holtavegi 28 - 104 Reykjavík - Sími 588 88 99 - www.kfum.is
sunnudaginn 30. maí 2010
Kaffisala í Vindáshlíð
kl. 14.00-17.30
guðsþjónusta kl. 14.00
Ásta Arnardóttir • 862 6098 • asta@this.is
Lótus jógasetur • www.this.is/asta
YOGA
BYRJENDANÁMSKEIÐ HEFST 31.MAÍ
LIFANDI FÆÐI OG YOGA Í JÚNÍ
YOGAVEISLA 2 FYRIR 1 Í JÚLÍ OG ÁGÚST
ÞriðjudagaJóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki